Breytingar á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga (tilfærsla á innheimtu meðlaga)
Lagabreytingar sem miða að því innheimta meðlaga verði færð frá sveitarfélögum til ríkisins.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-142/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 22. ágúst 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (1. nóvember 2022)
Ein umsögn barst frá bæjarráði Ísafjarðarbæjar þar sem áréttuð er bókun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um að staðið verði vörð um störf tengd innheimtu meðlaga í Ísafjarðarbæ. Tekið verður tillit til þessa við tilfærsluna en verkefnisáætlun ráðuneytisins vegna tilfærslunnar miðar að því að efla starfsemina á Ísafirði með því að auglýsa laus störf á þeirri starfsstöð.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Ísafjarðarbær
Á 1206. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, þann 15. ágúst 2022, var mál um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga, nr. 54/1971 lagt fram. Bæjarráð bókaði eftirfarandi umsögn um málið: "Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við áform um lagabreytingu, en áréttar bókun bæjarstjórnar frá 6. janúar 2022, um að staðið verði vörð um störf tengd innheimtu meðlaga í Ísafjarðarbæ, auk þess sem mikil sóknarfæri geta skapast til fjölgunar starfa og fleiri verkefna með því að samþætti starfsemina við aðra starfsemi opinberra stofnanna á vegum ríkisins."
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.