Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (rafvæðing smábáta)
Ákvæði frumvarpsins um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, veita efnahagslegan hvata sem stuðla eiga að rafvæðingu smábáta á strandveiðum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-203/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. nóvember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 539)
Niðurstöður samráðs (19. nóvember 2022)
Drögin voru til umsagnar frá 24. okt. - 7. nóv. 2022. Í umsögnum kom m.a. fram að ívilnun ætti einnig að ná til tvíorkubáta og kostnaður við rafvæðingu gæti verið mikill. Bent var á þörf á uppbyggingu á innviðum í höfnum og að horfa þyrfti einnig til annarra leiða og hvata. Frumvarpinu er ætlað að ná eingöngu til rafvæðingar smábáta á strandveiðum og er ívilnun varanleg. Frumvarpið er eitt af nokkrum sem eru í vinnslu á sviði orkuskipta. Ekki er gert ráð fyrir mjög mörgum slíkum rafvæddum bátum fyrst um sinn og því er ekki þörf á uppbyggingu í höfnum sérstaklega út af efni frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Guðlaugur Jónasson
Ég botna ekkert í svona vitleysu, vildi óska þess að þetta væri framkvæmanlegt, er einhver tækni í boði sem býður upp á þetta ? Ef ég rafvæði minn handfærabát þá þurfa batterýinn í honum að vigta ca 6t til að geta siglt ca 100 sjómílur, Hann myndi stein sökkva við það. Það væri umhverifsvænna og gáfulegra ef frumvarðið hljóðaði þannig, þeir sem róa með árum eða seglum geta veitt eins mikið og þeir vilja.
- #2Arthur Örn Bogason
Reykjavík 7. nóvember 2022 Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Efni: Umsögn Landssambands smábátaeigenda (LS) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (rafvæðing smábáta) LS vísar í umsögn frá 31. ágúst sl. varðandi málið. Á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda hinn 21. október sl var eftirfarandi samþykkt: • LS telur áríðandi, að teknu tilliti þess samfélags sem við byggjum og loftlagsmarkmiða stjórnvalda, að viðurkennt verði að veiðar með handfærum séu vistvænni en aðrar veiðar sem stundaðar eru hér við land. Jafnt og eigendur… Lesa alla
Reykjavík 7. nóvember 2022 Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Efni: Umsögn Landssambands smábátaeigenda (LS) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (rafvæðing smábáta) LS vísar í umsögn frá 31. ágúst sl. varðandi málið. Á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda hinn 21. október sl var eftirfarandi samþykkt: • LS telur áríðandi, að teknu tilliti þess samfélags sem við byggjum og loftlagsmarkmiða stjórnvalda, að viðurkennt verði að veiðar með handfærum séu vistvænni en aðrar veiðar sem stundaðar eru hér við land. Jafnt og eigendur tvinn bíla eiga handfæraveiðar að njóta ívilnunar. Greinargerð: Veiðarnar eru stundaðar á tvinn bátum, þ.e. þeir hafa tvær aflrásir, önnur sem nýtir jarðefnaeldsneyti til keyrslu að og frá veiðistað og hin sem knúin er af orku frá rafgeymum sem nýtt er til veiða. Rafgeymar eru svo hlaðnir á keyrslu og með landrafmagni. LS styður heilshugar orkuskipti í sjávarútvegi. Þau umskipti þurfa hins vegar að byggja á raunhæfum lausnum. Núverandi tæknistig hvað rafvæðingu varðar fullnægir ekki slíkri umbyltingu í smábátaflotanum. Sú tillaga að 100 kg aukaafli rafvæddra smábáta á strandveiðum er góðra gjalda verð en breytir engu þar um. LS hefur kynnt sér kostnað hvað varðar hönnun og nýsmíði rafvædds smábáts sem myndi passa inní strandveiðikerfið. Kostnaðurinn er svo gríðarlegur að litlar líkur eru á því að slíkur bátur verði smíðaður í náinni framtíð. LS furðar sig á þeirri áherslu sem stjórnvöld leggja á að smábátaveiðarnar verði frumkvöðull orkuskipta í fiskveiðunum. Smábátaflotinn veiðir u.þ.b. 16,5% árlegs botnfiskafla á Íslandsmiðum og löngu vitað að þessar veiðar eyða minnstri orku við öflun sjávarfangs. Strandveiðibátar (sem eingöngu stunda handfæraveiðar) sigla á miðin og af þeim á jarðefnaeldsneyti, en stunda veiðarnar undantekningalítið á rafmagni. Arthur Bogason formaður Örn Pálsson framkvæmdastjóri
- #3Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.