Útlendingalög (dvalarleyfi)
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (dvalarleyfi). Endurflutt að hluta.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-39/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 944)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. apríl 2023)
Alls bárust sex umsagnir vegna frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga (dvalarleyfi) og tók frumvarpið smávægilegum breytingum með tilliti til þeirra. Meginþorri athugasemda umsagnaraðila voru almenns eðlis og þótti ekki ástæða til að bregðast sérstaklega við þeim með breytingum á frumvarpinu. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 30. mars 2023.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Magnús Óskarsson
Lýsi ánægju með þessi frumvarpsdrög og vona að þau verði að lögum sem fyrst, sérstaklega 9. gr. þeirra um lengingu á hámarks tíma í vistráðningu (au-pair) úr 1 ári í 2 ár og vonast til þess að sú tillaga verði að lögum sem fyrst. Það er til samræmis við þær reglur sem gilda í Noregi og Danmörku. Frá sjónarhóli barnafjölskyldna á Íslandi þá er vistráðning (au-pair) eitt af fáum úrræðum sem barnafjölskyldur geta sjálfar gripið til vegna skorts á leikskólaplássum og því gott að auka örlítið svigrúm í þeim efnum. Ánægjulegt að sjá að ríkisvaldið er að reyna að bregðast við þeim málum. Sérstaklega… Lesa alla
Lýsi ánægju með þessi frumvarpsdrög og vona að þau verði að lögum sem fyrst, sérstaklega 9. gr. þeirra um lengingu á hámarks tíma í vistráðningu (au-pair) úr 1 ári í 2 ár og vonast til þess að sú tillaga verði að lögum sem fyrst. Það er til samræmis við þær reglur sem gilda í Noregi og Danmörku. Frá sjónarhóli barnafjölskyldna á Íslandi þá er vistráðning (au-pair) eitt af fáum úrræðum sem barnafjölskyldur geta sjálfar gripið til vegna skorts á leikskólaplássum og því gott að auka örlítið svigrúm í þeim efnum. Ánægjulegt að sjá að ríkisvaldið er að reyna að bregðast við þeim málum. Sérstaklega vegna þess að umsóknir taka núna 6 mánuði hjá Útlendingastofnun og í því ljósi hvað umsóknarferlið getur kallað á mikla vinnu og samskipti við Útlendingastofnun á mjög löngu tímabili eru 2 ár ekki langur tími. Magnús Óskarsson, hrl.
- #2Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um útlendingalög (dvalarleyfi)
- #3Pétur Ástvaldsson
Reykjavík, 7. mars 2023 Efni: Umsögn Háskóla Íslands um frumvarp til breytinga á útlendingalögum (dvalarleyfi), mál nr. 39/2023 Um er að ræða frumvarp til breytinga á útlendingalögum nr. 80/2016 en umsögn þessi varðar eingöngu fyrirhugaðar breytingar á c. lið 1. mgr. 51. gr. laganna (sbr. b. lið 2. gr. frumvarpsins) og á 1. málsl. 1. mgr. 69. gr. laganna (sbr. a. liður 10. gr. frumvarpsins) en efni þeirra ákvæða fjalla um atriði sem geta varðað starfsemi Háskóla Íslands með einum eða öðrum hætti. Háskóli Íslands fagnar þeirri breytingu sem b. liður 2. gr. gerir ráð fyrir að verði á c. li… Lesa alla
Reykjavík, 7. mars 2023 Efni: Umsögn Háskóla Íslands um frumvarp til breytinga á útlendingalögum (dvalarleyfi), mál nr. 39/2023 Um er að ræða frumvarp til breytinga á útlendingalögum nr. 80/2016 en umsögn þessi varðar eingöngu fyrirhugaðar breytingar á c. lið 1. mgr. 51. gr. laganna (sbr. b. lið 2. gr. frumvarpsins) og á 1. málsl. 1. mgr. 69. gr. laganna (sbr. a. liður 10. gr. frumvarpsins) en efni þeirra ákvæða fjalla um atriði sem geta varðað starfsemi Háskóla Íslands með einum eða öðrum hætti. Háskóli Íslands fagnar þeirri breytingu sem b. liður 2. gr. gerir ráð fyrir að verði á c. lið 1. mgr. 51. gr. laganna, þ.e. að bætt verði við á eftir tilvísuninni ,,skv. 64. gr.“ viðbótinni ,,eða dvalarleyfi vegna doktorsnáms skv. 65. gr.“. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í breytingunni felist að doktorsnemar megi vera staddir hér á landi þegar þeir sækja um dvalarleyfi og vísað til þess að ,,einstaklingar í slíkri stöðu hafa lokið samsvarandi meistaranámi og þurfa að fara í gegnum ítarlegt umsóknarferli hjá viðkomandi háskóla.“ Að mati Háskóla Íslands er þessi breyting eðlileg viðbót við ákvæðið. Þeir sem koma hingað til lands til þess að leggja stund á doktorsnám koma í vel skilgreindum tilgangi og þurfa, eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu, að uppfylla ákveðin fyrir fram gefin skilyrði til þess að fá inngöngu í doktorsnámið. Doktorsnemar vinna í námi sínu að sérhæfðum og skilgreindum rannsóknarverkefnum undir handleiðslu sérhæfðs starfsfólks. Að mati Háskóla Íslands er einnig ávinningur af þeirri breytingu sem felst í a. lið 10. gr. frumvarpsins sem gerir ráð fyrir að tilvísun til m.a. 64. gr. laganna verði bætt við í 1. málsl. 1. mgr. 69. gr. laganna. Þessi breyting felur m.a. í sér að sérhæft starfsfólk á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings á þess kost að hafa með sér fjölskyldu sína hér á landi á meðan á slíkri dvöl stendur. Um þetta segir í greinargerð með frumvarpinu að breytingin sé nauðsynleg til að gera slík dvalarleyfi meira aðlaðandi fyrir fjölskyldufólk sem vill koma hingað til lands og starfa en gildandi lög heimila ekki þessum dvalarleyfishöfum að taka fjölskyldu sína með til landsins. Tekur Háskóli Íslands undir þau sjónarmið sem koma fram í greinargerð með frumvarpinu hvað þetta varðar, um að þessi heimild geti átt þátt í að laða frekar að slíkt sérhæft starfsfólk. Í því felst ávinningur fyrir m.a. Háskóla Íslands þar sem telja verður að þessi ráðstöfun sé líkleg til að auðvelda sérhæfðu fólki að koma til skemmri dvalar í þessum tilgangi og að þannig aukist möguleikar til þess að gera tímabundna samninga um t.a.m. samstarf við erlenda háskóla og rannsóknastofnanir. Í báðum tilvikum er um að ræða breytingar sem munu að mati Háskóla Íslands greiða enn frekar fyrir því að háskólar hér á landi geti fengið til sín bæði nemendur og utanaðkomandi sérfræðinga sem lið í uppbyggingu rannsókna- og fræðistarfa hér á landi. Virðingarfyllst, f.h. Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson, rektor
- #4Útlendingastofnun
Sjá umsögn í viðhengi. Fh. Útlendingastofnunar Alda Karen Svavarsdóttir
- #5Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (dvalarleyfi), mál nr. 39/2023.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.