Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-134/2022 · Forsætisráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019

Áformað er að breyta lögum um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019 til að bæta lagarammann um ákvarðanatöku á sviði fjármálaeftirlits og skýra valdsvið fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Með lögum nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands var eftirlit með fjármálastarfsemi flutt til Seðlabanka Íslands. Jafnframt voru gerðar breytingar á stjórnkerfi Seðlabankans. Þannig var m.a. lögfest að þrjár nefndir skyldu taka ákvarðanir um beitingu valdheimilda Seðlabankans varðandi peningastefnu og fjármálastöðugleika og á sviði fjármálaeftirlits. Í meðförum þingsins var bætt við frumvarp það sem varð að lögum nr. 92/2019 ákvæði til bráðabirgða sem fól í sér að fyrir lok árs 2021 skyldi ráðherra flytja Alþingi skýrslu þriggja óháðra sérfræðinga á sviði peninga- og fjármálahagfræði og fjármálaeftirlits um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands eftir gildistöku laganna, m.a. með hliðsjón af skiptingu verkefna á milli fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar. Forsætisráðherra skipaði þann 9. júní 2021 nefnd sérfræðinga til að annast úttektina og skilaði nefndin skýrslu til ráðherra í nóvember 2021. Ráðherra flutti Alþingi skýrslu sína í lok janúar 2022. Í maí 2022 skipaði ráðherra síðan starfshóp sem hafði það hlutverk að yfirfara tillögur úttektarnefndarinnar og setja fram tillögur til breytinga á lögum nr. 92/2019 þar að lútandi. Úrlausnarefnið var að innleiða að hluta þær umbótatillögur sem úttektanefndin setti fram í skýrslu sinni sem þjóna sem best því meginhlutverki Seðlabanka Íslands að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Lagt er til að ákvæðum 15. gr. laga um Seðlabanka Íslands verði breytt þannig að seðlabankastjóri verði formaður fjármálaeftirlitsnefndar og að varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits verði staðgengill hans. Einnig er lagt til að ákvæðum 2. mgr. 3.gr. og 15. gr. laga um Seðlabanka Íslands verði breytt þannig að Seðlabanka Íslands verði falið að taka ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu samkvæmt lögum og stjórnvaldsfyrirmælum, en að fjármálaeftirlitsnefnd skuli taka nánar skilgreindar ákvarðanir sem teljast meiri háttar.

S-134/2022· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. ágú. 2022 – 17. ágú. 2022· 1 umsögn

Áform um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019

Áformað er að breyta lögum um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019 til að bæta lagarammann um ákvarðanatöku á sviði fjármálaeftirlits og skýra valdsvið fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-134/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. ágúst 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 541)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. júlí 2024)

Enginn umsögn barst við áformaskjalið. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 (fjármálaeftirlitsnefnd) var samþykkt á 153. löggjafarþing (sjá hlekk á samþykkt lög)

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-134/2022: Áform um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 · Alviti