Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð
Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Frumvarpið felur í heildarendurskoðun á lögum nr. 2/2003 um Vísinda- og tækniráð.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-150/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. september 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 188)
- Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð
- Tillaga verkefnishóps um breytt lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Pétur Ástvaldsson
Umsögn Háskóla Íslands: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð Óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Háskóli Íslands fagnar heildarendurskoðun laganna og telur margt jákvætt í frumvarpinu, má í því sambandi nefna langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, öflugri sjálfstæða gagnagreiningu og eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu milli ráðuneyta. Einnig er jákvætt að stefnt er að einfaldara fyrirkomulagi og betri upplýsingagjöf en áður. Í skýrslu verkefnishó… Lesa alla
Umsögn Háskóla Íslands: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð Óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Háskóli Íslands fagnar heildarendurskoðun laganna og telur margt jákvætt í frumvarpinu, má í því sambandi nefna langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, öflugri sjálfstæða gagnagreiningu og eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu milli ráðuneyta. Einnig er jákvætt að stefnt er að einfaldara fyrirkomulagi og betri upplýsingagjöf en áður. Í skýrslu verkefnishóps var gerð tillaga um einfaldara fyrirkomulag markáætlana, m.a. í því skyni að auðveldara yrði að bregðast hratt við aðsteðjandi vanda með nýjum markáætlunum. Þær tillögur er því miður ekki að finna í frumvarpinu. Því er brýnt að fylgjast vel með því hvort nýtt fyrirkomulag leysi þann vanda sem bent var á og laut einkum að of litlum sveigjanleika við framkvæmd markáætlana. Í tillögum verkefnishópsins kom jafnframt fram að setja skyldi á fót skrifstofu vísinda- og nýsköpunarmála. Það er miður að sú tillaga hafi ekki ratað í frumvarpið, en í greinargerðinni kemur fram að gert sé ráð fyrir að sérfræðingar innan ráðuneytisins muni veita ráðinu ráðgjöf og faglega þjónustu, einkum við greinar- og textavinnu á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni. Slík eining mun væntanlega þjóna hlutverki áðurnefndrar skrifstofu. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að rjúfa þau beinu tengsl sem nú eru á milli annars vegar ráðherra og hins vegar stjórnenda og sérfræðinga úr háskóla- og vísindaumhverfinu og atvinnulífi. Fyrirhugað er að ná þessu fram með lögfestingu sérstakrar ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun, þar sem eingöngu sitja ráðherrar, og með skipan níu manna ráðgefandi Vísinda- og nýsköpunarráðs sem hittir ráðherranefndina tvisvar á ári líkt og getið er í greinargerð. Háskóli Íslands telur að framangreindur aðskilnaður sé varhugaverður. Á það var bent í umsögn Háskólans um tillögur verkefnishópsins og er það hér með ítrekað. Með framangreindum lögum um Vísinda- og tækniráð, sem sett voru árið 2003, var markmiðið að færa stefnumótun á sviði háskóla, vísinda og nýsköpunar á efsta stig stjórnsýslunnar. Markmiðið var jafnframt að styrkja með formlegum hætti samtal stjórnvalda við háskóla- og vísindasamfélagið auk atvinnulífs. Þetta var gert að erlendri fyrirmynd en víða um heim er þróunin ennþá í þessa átt. Þetta er mikilvægt, ekki síst vegna nýrrar þekkingar um mikilvægi menntunar, vísinda og nýsköpunar og hvernig unnt er að beita málaflokkunum í þágu samfélagsins. Frumvarpið gerir ráð fyrir framtíðarsýn til tíu ára í senn og aðgerðaráætlun til tveggja ára. Háskóli Íslands bendir á að heppilegra væri að aðgerðaráætlunin tæki til lengri tíma. Það er mat Háskóla Íslands að fyrirhuguð ráðherranefnd ásamt vísinda- og nýsköpunarráði verði verr í stakk búin en núverandi Vísinda- og tækniráð til að annast sannfærandi stefnumótun á sviði háskóla-, vísinda- og nýsköpunarmála. Háskólinn telur mikilvægt að ráðherrar og vísindasamfélagið starfi, ásamt fulltrúum atvinnulífsins, áfram á sameiginlegum vettvangi til að takast á við þær margvíslegu samfélagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Það þarf að efla þetta samstarf fremur en að veikja það. Virkur samráðsvettvangur af þessu tagi er nauðsynlegur til að tengja ákvarðanir um eflingu háskólamenntunar, rannsókna og nýsköpunar beint við aðrar meginákvarðanir stjórnvalda um samkeppnishæfni og framtíðaruppbyggingu samfélagsins. Í þessu sambandi er rétt að benda á að í skýrslu starfshópsins kemur fram að algengast sé (í 68% tilvika samkvæmt úttekt OECD) að í ráðum af þessu tagi á alþjóðlegum vettvangi sitji ráðherrar, fulltrúar háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og atvinnulífs saman, þ.e. rétt eins og Vísinda- og tækniráð er nú skipað (bls. 53). Háskóli Íslands ítrekar mikilvægi samtarfs ráðherranefndar og Vísinda- og nýsköpunarráðs. Háskóli Íslands leggur því til að sett verði ný málsgrein í 3. gr. laganna þar sem kveðið er á um að Vísinda- og nýsköpunarráð haldi að jafnaði tvo fundi árlega með ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun. Samkvæmt frumvarpinu er Vísinda- og nýsköpunarráðið skipað fulltrúum eftir tillögu sérstakrar tilnefningarnefndar á vegum ráðherra. Háskólinn bendir á mikilvægi þess að gerð verði rík krafa um sérfræðiþekkingu til þeirra sem sitja í því ráði. Með vísan til framangreinds er margt jákvætt í frumvarpinu en virkt samstarf ráðherranefndar og Vísinda- nýsköpunarráðs er mikilvæg forsenda þess að vel takist til við að styrkja íslenskt þekkingarsamfélag og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
- #2Íris Lind Sæmundsdóttir
Vísað er til upplýsinga um samráðs um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð, sem birtar voru í samráðsgátt stjórnarráðsins, 23. ágúst 2022, sbr. mál nr. 150/2022. Meðfylgjandi eru athugasemdir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og dótturfélaga, við frumvarpið.
- #3Hólmfríður Sveinsdóttir
Umsögn Háskólans á Hólum: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Nafnbreytingin á frumvarpinu, þ.e. „nýsköpun“ í stað „tækniþróun“ er mikilvægt og stórt skref. Til að breytingin þjóni tilgangi sínum er mikilvægt að samræma skilning á hvernig nýsköpun er skilgreind, a.m.k. almennt. Hugtakið nýsköpun er mun víðara hugtak en tækniþróun, sbr. eftirfarandi sem stendur í greinargerð (bls. 8-9) með frumvarpinu (samhljóða því sem sagt er bls. 11 í tillögu verkefnahópsins). Þetta virðist vera í eina skiptið í þessum skjölum þar skilgreining hugtaksins nýsköpun er rædd: „Lagt er til a… Lesa alla
Umsögn Háskólans á Hólum: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Nafnbreytingin á frumvarpinu, þ.e. „nýsköpun“ í stað „tækniþróun“ er mikilvægt og stórt skref. Til að breytingin þjóni tilgangi sínum er mikilvægt að samræma skilning á hvernig nýsköpun er skilgreind, a.m.k. almennt. Hugtakið nýsköpun er mun víðara hugtak en tækniþróun, sbr. eftirfarandi sem stendur í greinargerð (bls. 8-9) með frumvarpinu (samhljóða því sem sagt er bls. 11 í tillögu verkefnahópsins). Þetta virðist vera í eina skiptið í þessum skjölum þar skilgreining hugtaksins nýsköpun er rædd: „Lagt er til að nafn ráðsins verði Vísinda- og nýsköpunarráð frekar en Vísinda- og tækniráð. Er það í takt við breytta hugtakanotkun á síðustu 20 árum þar sem hugtakið nýsköpun hefur víða komið í stað hugtaksins tækniþróun. Hugtakið nýsköpun er víðara en tækniþróun, enda tekur það einnig til nýsköpunar sem felur ekki í sér þróun tækni, svo sem nýsköpunar í þjónustu. Finnar gerðu sambærilega nafnbreytingu árið 2009.“ Punkturinn er að þessi nafnabreyting getur, og mun örugglega hafa áhrif á stefnumótun um þessi mál í framtíðinni, sem og alla umræðu. Til dæmis er mjög líklegt, og reyndar ekki óeðlilegt að þetta hafi áhrif á sjóðakerfið, sem vel að merkja er ekki lagt til að breytist með þessu frumvarpi. Mætti t.d. sjá fyrir að stefna um markáætlun gæti brugðist við þessu fyrst, enda heitir hún: Markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Hvað varðar beina tillögu mætti benda á að í greinargerð með frumvarpinu, og hugsanlega í frumvarpinu sjálfu mætti skerpa á skilgreiningu á hugtakinu nýsköpun og færa ítarlegri rök fyrir hvers vegna nafnabreytingin sé nauðsynleg. Þannig mætti nefna að nýsköpunahugtakið vísar til beitingar nýrrar og víðtækari sýnar og þekkingar (bæði frá vísindum og listum) í atvinnulífinu, í mótun nýrra, árangursríkra og sjálfbærra vinnubragða í hvers kyns auðlindanýtingu (í landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónust o.s.frv.), og ekki síst í viðbrögðum við umhverfisvánni, eins og loftslagsbreytingum og tapi líffræðilegrar fjölbreytni. Að lokum, hér er á ferðinni þarft og gott mál, en markmið og árangur styrkist ef ítarlegri, skýrari og meira leiðbeinandi sýn er gefin á þessu stigi.
- #4Rannsóknamiðstöð Íslands
Sjá meðfylgjandi umsögn Rannsóknamiðstöðvar Íslands
- #5Verkfræðingafélag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Verkfræðingafélags Íslands.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.