Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-53/2023 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Breyting á lögum um handiðnað (útgáfa sveinsbréfa)

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lögum um handiðnað, nr. 42/1978. Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá áðurnefndu ráðuneyti til sýslumanna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar).

Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti til sýslumanna en verkefnið fellur vel að þeirri þjónustu sem sýslumenn veita í héraði. Lög um handiðnað hafa að geyma heimild fyrir ráðherra til að fela öðrum útgáfu sveinsbréfa að fullnægðum skilyrðum laga en hafa ekki að geyma sérstaka grein um efni reglugerðar. Er því lagt til að lögfest verði ákvæði sem fer núorðið í flest frumvörp sem snúa að framkvæmd verkefna sýslumanna. Reikna má með að rafrænum umsóknum og afgreiðslum fari fjölgandi næstu árin og því er nauðsynlegt að lögfesta heimild til að fela einum sýslumanni framkvæmd verkefnanna fyrir landið allt. Samhliða þeirri breytingu á lögum um handiðnað sem að ofan greinir er lagt til að 5. töluliður 15. gr. laga um handiðnað falli niður, en hann felur í sér sektarheimild. Umrætt ákvæði fellur að réttu lagi undir málefni framhaldsskólalaga og hefur seinni hluti þess reynst fámennum greinum og fámennum svæðum erfiður í framkvæmd.

S-53/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 13. mar. 2023· 3 umsagnir

Breyting á lögum um handiðnað (útgáfa sveinsbréfa)

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lögum um handiðnað, nr. 42/1978. Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá áðurnefndu ráðuneyti til sýslumanna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-53/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 948)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. maí 2023)

Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið, frá Félagi iðn- og tæknigreina, sameiginlega frá Rafiðnaðarsambandi Íslands, Samiðn, Matvís og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna sem og frá Samtökum iðnaðarins. Umsagnaraðilar höfðu höfðu verulegar athugasemdir við fyrirætlan um brottfall tiltekins sektarákvæðis í lögunum. Í ljósi athugasemdanna var fallist á að hverfa frá brottfalli sektarákvæðisins í 5. tölul. 1. mgr. 15. gr. laganna að sinni og taka það álitamál upp við heildarendurskoðun á lögum um handiðnað sem fyrirhuguð er.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-53/2023: Breyting á lögum um handiðnað (útgáfa sveinsbréfa) · Alviti