Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-60/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting yfirlita).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Meginmarkmið frumvarpsins er að leggja til rýmkun á heimildum lífeyrissjóða til fjárfestinga í eignum í erlendum gjaldmiðlum þannig að þeir geti betur nýtt þær heimildir sem þeir hafa til þess háttar fjárfestinga. Lagt er til að hámark gjaldmiðlaáhættu verði fært úr 50% af heildareignum í 65% yfir 15 ára tímabil frá árinu 2024. Til að draga úr gjaldmiðlaáhættu fyrir sjóðfélaga er lagt til í frumvarpinu að lífeyrissjóðir þurfi að lágmarki að eiga eignir í sama gjaldmiðli og væntar lífeyrisgreiðslur þeirra til næstu þriggja ára. Einnig er að finna tillögu um að hámark gjaldeyrisáhættu verði eingöngu bindandi á viðskiptadegi fjárfestingar. Það hefur í för með sér að ef gengisþróun eða verðþróun á mörkuðum leiðir til þess að erlendar eignir lífeyrissjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess að komast niður fyrir hámarkið líkt og nú er. Frekari fjárfestingar sem auka gjaldmiðlaáhættu verða þó óheimilar á meðan fjárfestingar eru umfram hámark. Þá er í frumvarpinu að finna tillögu sem varða afleiðuviðskipti lífeyrissjóða sem eiga að auka möguleika þeirra til að nýta afleiður til gjaldeyrisvarna. Að lokum er í frumvarpinu lögð til sú meginregla að lífeyrissjóðir birti sjóðfélögum yfirlit og upplýsingar með rafrænum hætti á vefsvæði sem krefst rafrænnar auðkenningar sjóðfélaga. Sjóðfélagar geta þó áfram óskað eftir því að fá send gögn og upplýsingar þeim að kostnaðarlausu.

S-60/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 7 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting yfirlita).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-60/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 568)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. ágúst 2022)

Frumvarpið náði ekki fram að ganga og verður endurflutt á 153. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-60/2022: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting) · Alviti