Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-61/2022 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu er lagt til að tvö ný bráðabirgðaákvæði bætist við lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, þar sem kveðið verði á um sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem er skylt að tilkynna um raunverulega eigendur til fyrirtækjaskrár samkvæmt lögunum en hafa ekki sinnt þeirri skyldu samkvæmt lögunum. Tillögur frumvarpsins felast að meginstefnu til í skilvirkari úrræðum fyrir ríkisskattstjóra til að koma fram skiptum eða slitum á skráningarskyldum aðilum sem hafa vanrækt skráningarskyldu samkvæmt gildandi lögum. Í a-lið 1. gr. frumvarpsins, sem lagt er til að verði að ákvæði til bráðabirgða II, er að finna sérreglur um aðgerðir ríkisskattstjóra í aðdragandanum, þ.e. um að skora á aðila að sinna skráningarskyldu að því viðlögðu að krafist verði skipta á þeim fyrir dómi eftir reglum 6.–8. mgr. 17. gr. laganna, ellegar slita á þeim eftir sérstakri málsmeðferð sem fjallað er um í b-lið 1. gr. frumvarpsins. Í b-lið 1. gr. frumvarpsins, sem lagt er til að verði að ákvæði til bráðabirgða III, er mælt fyrir um skjótvirkari málsmeðferð fyrir dómstólum til að koma fram slitum á tilteknum skráningarskyldum aðilum sem skirrast við að fullnægja skyldu um að tilkynna ríkisskattstjóra um raunverulega eigendur sína. Um er að ræða sérreglur um slitameðferð sem eru bundnar við afmarkaðan hóp skráningarskyldra aðila sem hafa lítil sem engin fjárhagsleg umsvif.

S-61/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2022 – 24. mar. 2022· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-61/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 586)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. apríl 2022)

Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 11. - 24. mars 2022. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið. Umfjöllun um umsagnirnar og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi (586. þingmál á 152. löggjafarþingi), sjá nánar um þinglega meðferð málsins á vef Alþingis: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=152&mnr=586

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Valdimar Össurarson
    Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrét… Lesa alla

    Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrétt, eins og hann er skilgreindur í lögum. Fallist forráðamaðurinn ekki á þessa ólöglegu eignaupptöku er honum hótað dagsektum og aðför. Með þessu er brotin meðalhófsregla stjórnsýslulaga; enda er ekkert sem réttlætir slíka óhóflega valdbeitingu, hvað sem líður samþykktum Evrópusambandsins. Þessi óskapnaður gengur einnig gegn þriðju lögunum sem Alþingi ber að virða; lögum um íslenska tungu. Til að taka af öll tvímæli í þessum efnum leitaði ég álits þeirrar stofnunar sem gleggst veit um meðferð íslensks máls; Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Meðfylgjandi er svar málfarssérfræðings Árnastofnunar, sem staðfestir minn skilning varðandi þessi ólög. Sjálfur er ég forráðamaður einkahlutafélags og gat með góðri samvisku játast undir eignarhald á því. Öðru máli gegndi um áhugamannasamtök sem ég er formaður fyrir. Ég neitaði að sölsa undir mig það félag með því að skrá mig "raunverulegan eiganda" þess. Mér var þá hótað dagsektum og einhverju verra, en gaf ekki eftir. Um það samdist loks milli mín og skattyfirvalda að ég mætti undirrita með mínum fyrirvörum; sem ég gerði. Ég vil þó nota tækifærið hér og mótmæla því harðlega að vera þannig þvingaður til lögbrota vegna gallaðrar lagasetningar frá Alþingi. Auðveldlega má ná tilgangi laganna án þess að níðast með þessum hætti á íslensku máli, með því að nota orðið "forráðamaður" eða "forsvarsmaður" í stað "eigandi", þar sem um er að ræða lögaðila í dreifðri eignaraðild. Ég skora því á Alþingi að gera úrbætur í þá veru á þessum lögum; jafnvel þó slíkt sé ekki efni þeirra breytinga sem hér standa til. Jafnframt skora ég á Alþingi að vanda til alls málfars í lagasetningu. Bregðist Alþingi þeirri skyldu sinni að standa vörð um íslenska tungu og íslenskan málskilning er engin von til að almenningur geri betur. Hnignun íslenskrar tungu er um leið hnignun sjálfstæðis þjóðarinnar. Meðfylgjandi eru bréfaskriftir mínar við sérfræðing Árnastofnunar frá 2020, ofanrituðu til staðfestu.

  • #2Samtök fjármálafyrirtækja

    Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Virðingarfyllst, F.h. SFF Margrét A. Jónsdóttir, lögfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-61/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019 · Alviti