Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-61/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. mars 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. apríl 2022)
Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 11. - 24. mars 2022. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið. Umfjöllun um umsagnirnar og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi (586. þingmál á 152. löggjafarþingi), sjá nánar um þinglega meðferð málsins á vef Alþingis: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=152&mnr=586
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Valdimar Össurarson
Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrét… Lesa alla
Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrétt, eins og hann er skilgreindur í lögum. Fallist forráðamaðurinn ekki á þessa ólöglegu eignaupptöku er honum hótað dagsektum og aðför. Með þessu er brotin meðalhófsregla stjórnsýslulaga; enda er ekkert sem réttlætir slíka óhóflega valdbeitingu, hvað sem líður samþykktum Evrópusambandsins. Þessi óskapnaður gengur einnig gegn þriðju lögunum sem Alþingi ber að virða; lögum um íslenska tungu. Til að taka af öll tvímæli í þessum efnum leitaði ég álits þeirrar stofnunar sem gleggst veit um meðferð íslensks máls; Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Meðfylgjandi er svar málfarssérfræðings Árnastofnunar, sem staðfestir minn skilning varðandi þessi ólög. Sjálfur er ég forráðamaður einkahlutafélags og gat með góðri samvisku játast undir eignarhald á því. Öðru máli gegndi um áhugamannasamtök sem ég er formaður fyrir. Ég neitaði að sölsa undir mig það félag með því að skrá mig "raunverulegan eiganda" þess. Mér var þá hótað dagsektum og einhverju verra, en gaf ekki eftir. Um það samdist loks milli mín og skattyfirvalda að ég mætti undirrita með mínum fyrirvörum; sem ég gerði. Ég vil þó nota tækifærið hér og mótmæla því harðlega að vera þannig þvingaður til lögbrota vegna gallaðrar lagasetningar frá Alþingi. Auðveldlega má ná tilgangi laganna án þess að níðast með þessum hætti á íslensku máli, með því að nota orðið "forráðamaður" eða "forsvarsmaður" í stað "eigandi", þar sem um er að ræða lögaðila í dreifðri eignaraðild. Ég skora því á Alþingi að gera úrbætur í þá veru á þessum lögum; jafnvel þó slíkt sé ekki efni þeirra breytinga sem hér standa til. Jafnframt skora ég á Alþingi að vanda til alls málfars í lagasetningu. Bregðist Alþingi þeirri skyldu sinni að standa vörð um íslenska tungu og íslenskan málskilning er engin von til að almenningur geri betur. Hnignun íslenskrar tungu er um leið hnignun sjálfstæðis þjóðarinnar. Meðfylgjandi eru bréfaskriftir mínar við sérfræðing Árnastofnunar frá 2020, ofanrituðu til staðfestu.
- #2Samtök fjármálafyrirtækja
Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Virðingarfyllst, F.h. SFF Margrét A. Jónsdóttir, lögfræðingur
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.