Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-131/2022 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Sú stefnumörkun sem unnin er í innviðaráðuneytinu samkvæmt lögum er eftirfarandi: • Samgönguáætlun, samkvæmt lögum um samgönguáætlun, nr. 33/2008. • Stefnumótun á sviði húsnæðismála, samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998. • Landsskipulagsstefna, samkvæmt skipulagslögum, nr. 123/2010. • Byggðaáætlun, samkvæmt lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015. • Stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga, samkvæmt sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 53/2018. Þessar áætlanir varða öll meginverkefni ráðuneytisins og með þeim er lagður grunnur að mikilvægum innviðum samfélagsins. Þær tengjast mjög náið og framtíðarsýn, meginmarkmið og aðgerðir snerta gjarnan þær allar samtímis. Lög um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, nr. 53/2018, sem gildi tóku í júní 2018, fólu í sér fyrsta áfangann í aukinni samhæfingu á stefnum og áætlunum þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Var markmiðið að ná fram aukinni skilvirkni og samhæfingu áætlana, auk þess sem komið var á sérstakri stefnumörkun í málefnum sveitarfélaganna. Verklag við gerð áætlananna var samræmt, sem og form þeirra og tímaspönn, m.a. út frá forsendum laga um opinber fjármál. Frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, sem fól í sér næsta áfanga í átt að aukinni samhæfingu áætlana á þessum sviðum, var lagt fram á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Við myndun núverandi ríkisstjórnar í kjölfar kosninga til Alþingis í september 2021 tók nýtt innviðaráðuneyti við málaflokkum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, að fjarskiptum frátöldum. Jafnframt færðust undir ráðuneytið mannvirkja-, húsnæðis- og skipulagsmál. Tilgangur þessara breytingar kemur fram með skýrum hætti í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem lögð er áhersla á mikilvægi aukinnar samþættingar áætlana á sviði húsnæðis-, skipulags- og samgöngumála og samhæfingu þeirra við sveitarfélögin í landinu. Með því að samhæfa stefnur og áætlanir á verkefnasviði ráðuneytisins gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumótunarinnar enda verði tekið mið af tengdum málefnum og horft lengra en til sérstakra verkefna einstakra málaflokka. Byggt verður á skýrum áherslum með sameiginlegri framtíðarsýn, meginmarkmiðum og sameiginlegum verkefnum fyrir alla málaflokka sem ganga þurfa með samræmdum hætti í gegnum allar áætlanirnar. Með frumvarpinu verður unnið að framgangi næsta áfanga á þeirri braut. Með því má ná meiri árangri fyrir samfélagið með aukinni samvinnu málaflokka, meira gagnsæi og hagkvæmari nýtingu fjármuna.

S-131/2022· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. júl. 2022 – 2. ágú. 2022· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála

Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-131/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. ágúst 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 735)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. nóvember 2023)

Sjá 5. kafla um samráð í frumvarpi til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-131/2022: Áform um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála · Alviti