Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu)
Áform um bann við tegundatilfærslu deilistofna botnfisks í 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, auk þess að setja hámark varðandi flutning aflamarks í deilistofnum og öðrum nytjastofnum milli ára.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-184/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. október 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 596)
Niðurstöður samráðs (24. október 2022)
Ein umsögn barst í umsagnarferli um áform um lagasetningu, frá Landssambandi smábátaeigenda, einkum um upplýsingar sem óskað er eftir í greinargerð. Mikið af upplýsingum liggur þegar fyrir í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og á vef Fiskistofu. Að öðru leyti verður tekið mið af umsögninni við samningu frumvarps, eftir því sem við á.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Örn Pálsson
Umsögn frá Landssambandi smábátaeigenda - afnám tegundatilfærslu í deilistofnun botnfisk, gullkarfa og grálúðu Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Umsögn frá LS við áform um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu. 9. október 2022 Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur kynnt sér það efni í fylgiskjali „Áform um lagasetning… Lesa alla
Umsögn frá Landssambandi smábátaeigenda - afnám tegundatilfærslu í deilistofnun botnfisk, gullkarfa og grálúðu Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Umsögn frá LS við áform um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu. 9. október 2022 Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur kynnt sér það efni í fylgiskjali „Áform um lagasetningu“. LS leggst ekki gegn því að frumvarp þessa efnis verði lagt fram, en áskilur sér rétt til athugasemda við væntanlegt frumvarp. LS óskar eftir að í greinargerð með frumvarpinu komi fram upplýsingar um leyfilegan afla í gullkarfa og grálúðu á undanförnum fimm árum, ásamt afla hvers árs og upplýsingum um hvaða áhrif tegundatilfærsla hefur haft á hverju ári. Einnig verði greint frá hversu mikið magn hefur verið flutt milli ára á tímabilinu. Jafnframt óskar LS að með frumvarpinu fylgi greinargerð frá Hafrannsóknastofnun um mat stofnunarinnar á gildi breytingana, það er hvaða áhrif þær hafa á viðgang og vöxt stofna grálúðu og gullkarfa. Virðingarfyllst Örn Pálsson framkvæmdastjóri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.