Hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna í starfi hjá ríkinu
Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að lögum um breytingu á lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, varðandi hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í 75 ár.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-228/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. janúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 987)
Niðurstöður samráðs (10. janúar 2023)
Í kjölfar birtingar í Samráðsgátt var frumvarpinu breytt þannig að aðeins væri um bráðabirgðaákvæði til fimm ára að ræða í stað varanlegrar breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012. Fjallað er um umsagnir sem bárust við frumvarpsdrögin í Samráðsgátt ásamt viðbrögðum við þeim í samráðskafla frumvarpsins eins og það var lagt fram á Alþingi 3. apríl 2023. Vísast til samráðskaflans varðandi niðurstöður úr samráði, sjá 5. kafla frumvarpsins í slóð hér.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Helga Bragadóttir
5. janúar, 2023 Til: Heilbrigðisráðuneytisins Varðandi Mál nr. 228/2022, birt: 06.12.2022 Síðast uppfært 21.12.2022 Umsögn Helga Bragadóttir, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala Málsefni Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að lögum um breytingu á lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, varðandi hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í 75 ár Umsögn Undirrituð ítrekar fyrri umsögn frá 15. ágúst sl. Í kynningu málsins í Samráðsgátt og Frumvarpi til… Lesa alla
5. janúar, 2023 Til: Heilbrigðisráðuneytisins Varðandi Mál nr. 228/2022, birt: 06.12.2022 Síðast uppfært 21.12.2022 Umsögn Helga Bragadóttir, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands, formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala Málsefni Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að lögum um breytingu á lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, varðandi hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í 75 ár Umsögn Undirrituð ítrekar fyrri umsögn frá 15. ágúst sl. Í kynningu málsins í Samráðsgátt og Frumvarpi til laga um breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 (hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna ríkisins), kemur fram að heimilt verði „að ráða heilbrigðisstarfsmann sem náð hefur 70 ára aldri til starfa við veitingu heilbrigðisþjónustu sem ríkið veitir þrátt fyrir 2. mgr. 43. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, enda felist starfið í beinum samskiptum við sjúklinga eða handleiðslu yngra heilbrigðisstarfsfólks eða nema.“ Eins og bent er á í fyrri umsögn frá ágúst sl. er mikilvægt að lagabreytingin nái til heilbrigðisstarfsmanna skóla sem sjá um menntun heilbrigðisstarfsfólks. Ekki er eingöngu skortur á hjúkrunarfræðingum í klínískum störfum við beina aðhlynningu, heldur er ekki síður skortur á hjúkrunarkennurum. Ein aðalforsenda þess að fjölga hjúkrunarfræðingum er að hafa hæfa kennara. Kennsla og nám og þar með þjálfun í klíník, er á forræði skólanna, ekki heilbrigðisstofnana. Afar mikilvægt er að lagabreytingin taki tillit til þessa. Ábending um mikilvægi starfsumhverfis hjúkrunarfræðinga er jafnframt ítrekuð. Í því sambandi er sérstaklega mikilvægt að huga að sjálfstæði og sjálfræði hjúkrunarfræðinga og að þeir séu ávallt hafðir með í ráðum þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku í heilbrigðisþjónustu. Virðingarfyllst, Helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur, PhD, FAAN, prófessor, deildarforseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands og formaður fagráðs hjúkrunarstjórnunar Landspítala.
- #2Þóra Leósdóttir
Iðjuþjálfafélag Íslands
- #3Edda Dröfn Daníelsdóttir
Í viðhengi er að finna umsögn frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh). Kær kveðja Edda Dröfn Daníelsdóttir Sviðsstjóri fagsviðs Fíh
- #4Félag Lífeindafræðinga-FL
Í viðhengi er að finna umsögn frá Félagi lífeindafræðinga (FL)
- #5Bandalag háskólamanna
Umsögn BHM um hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna hjá ríkinu er að finna í viðhengi. Athugið að hér er rétt skjal, fyrri sendingu fylgdi umsögnin um fyrra frumvarp.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.