Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um menningarminjar - aldursfriðun
Lögð er til breyting á aldursfriðunarákvæði húsa og annarra mannvirkja í lögum um menningarminjar, svokallaðri 100 ára reglu.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-171/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. október 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 429)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. nóvember 2025)
Frumvarpið var í kjölfar samráðs lagt fram á Alþingi - sjá 5. kafla greinargerðar þess um viðbrögð við umsögnum. https://www.althingi.is/altext/153/s/0489.html Frumvarpið var samþykkt á Alþingi 16. desember 2022 og tóku lögin gildi 1. janúar 2023.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Verksýn ehf.
Verksýn er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem -utan. Verkefni okkar snúa að húsum sem eru allt frá því að vera um og yfir 100 ára gömul og upp í nýbyggingar. Við fögnum þeim breytingum sem eru boðaðar í þessu frumvarpi og teljum nauðsynlegt að binda sjálfvirka friðun við fast ártal. Við tökum undir þá umsögn Reykjavíkurborgar að heppilegra væri að miða ártalið við 1915-1918. Í störfum okkar höfum við æði oft komið að ástandsskoðun húsa sem falla undir ,,100 ára regluna” þar sem húsin eru orðin það skemmd að það er orðið nær ógerlegt… Lesa alla
Verksýn er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem -utan. Verkefni okkar snúa að húsum sem eru allt frá því að vera um og yfir 100 ára gömul og upp í nýbyggingar. Við fögnum þeim breytingum sem eru boðaðar í þessu frumvarpi og teljum nauðsynlegt að binda sjálfvirka friðun við fast ártal. Við tökum undir þá umsögn Reykjavíkurborgar að heppilegra væri að miða ártalið við 1915-1918. Í störfum okkar höfum við æði oft komið að ástandsskoðun húsa sem falla undir ,,100 ára regluna” þar sem húsin eru orðin það skemmd að það er orðið nær ógerlegt að gera við þau svo vel sé og í sumum tilfellum færi betur á því að skrásetja vel sögu húsins og teikningar, frekar en að reyna að gera við þau eða það sem oft vill verða að láta þau grotna meira niður og verða hreinlega hættuleg því kostnaðurinn er meiri en eigendur húsins ráða við. Við viljum taka undir umsagnir sem fram hafa komið um nauðsyn þess að vinna að heildarendurskoðun laga um menningarminjar og þá sérstaklega hvernig tekið er á mikið skemmdum húsum sem falla undir friðunarákvæði laganna. Bæði með tilliti til þess að meta betur hvort nauðsyn sé til þess að varðveita húsið og/eða hvernig opinberir aðilar eiga að koma að þeim kostnaði sem er við að varðveita þau. Virðingarfyllst, Reynir Kristjánsson, frkvstj. Verksýnar ehf.
- #2Minjastofnun Íslands
Góðan dag. Viðfest er umsögn Minjastofnunar Íslands vegna framlagðra draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um menningarminjar - aldursfriðun. Með kveðju, Gísli Óskarsson sviðsstjóri lögfræðisviðs
- #3Félag fornleifafræðinga
Í viðhengi er umsögn Félags fornleifafræðinga um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um menningarminjar - aldursfriðun. Kærar kveðjur, Gylfi Helgason, f.h. stjórnar Félags fornleifafr.
- #4Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um málið. Sambandið kallar sérstaklega eftir því að aflað verði umsagnar húsafriðunarnefndar um frumvarpið áður en lengra verður haldið. F.h. sambandsins Guðjón Bragason sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.