Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996 (geymsla og nýting fósturvísa og kynfrumna)
Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-24/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 939)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júní 2023)
Þrjár umsagnir bárust um málið og eru þær reifaðar í 5. kafla frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í mars 2023 og samþykkt sem lög 9. júní 2023 með þeim breytingum sem velferðarnefnd gerði á málinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Steinunn Jóhanna Bergmann
Meðfylgjandi er umsögn Félagsráðgjafafélags Íslands
- #2Samtökin 78
- #3Embætti landlæknis
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.