Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-160/2022 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð

Kveðið er á um réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma. Lögð er til breytt röðun á köflum og ákvæðum laga um almannatryggingar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum. Breytingarnar varða aðallega réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma og ætlaðra tímabila til framtíðar. Óbreytt er grunnskilyrði almannatryggingalaga um þriggja ára tímabil tryggingarverndar (búsetu) til að öðlast rétt til örorkulífeyris en miðað er við það tímamark þegar örorkan er metin í fyrsta sinn. Lagt er til ívilnandi frávik þegar um er að ræða einstaklinga sem voru tryggðir samkvæmt lögunum við 18 ára aldur og metnir til a.m.k. 75% örorku frá sama tíma og einnig þegar um er að ræða endurkomu einstaklinga sem áður hafa verið tryggðir samkvæmt lögunum og eiga hér geymd réttindi. Í því tilviki verði unnt að nálgast réttindin eftir eitt ár. Einnig er óbreytt að tímabil til framtíðar eru tekin með í reikninginn að fullu við ákvörðun örorkulífeyris, þ.e. tímabilið frá örorkumati fram til ellilífeyrisaldurs. Þá er lagt til að skilyrði endurhæfingarlífeyris verði 12 mánaða lögheimili samfellt áður en greiðslur geta hafist í stað þess að vísað sé til ákvæða um skilyrði fyrir örorkulífeyri í lögum um almannatryggingar. Einnig eru lagðar til nokkrar frekari breytingar, t.d. um skipun forstjóra, verkefni úrskurðarnefndar velferðarmála og hugtakanotkun samræmd. Lögð er til breytt röðun á köflum og ákvæðum laga um almannatryggingar og á númerum lagagreina með það að markmiði að lögin verði aðgengilegri, einfaldari og skýrari aflestrar án þess þó að um miklar efnislegar breytingar sé að ræða. Þannig er sumum ákvæðum laganna skipt upp í nokkur smærri ákvæði, þannig að t.d. sérstök ákvæði verða um fjárhæðir greiðslna, tekjugrunn og áhrif tekna, einnig eru kaflar færðir til, nýjum köflum er bætt við og öðrum er skipt upp. Þá eru einstaka greinar færðar til innan sama kafla eða fluttar í aðra kafla laganna. Þannig verða ákvæði um ellilífeyri í einum kafla og ákvæði um örorkulífeyri og tengdar greiðslur í öðrum kafl. Endurröðun ákvæða og skýrari framsetning er talin auðvelda frekari breytingar á löggjöf um örorku- og ellilífeyriskerfi almannatrygginga sem stefnt er að.

S-160/2022· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. sep. 2022 – 23. sep. 2022· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð

Kveðið er á um réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma. Lögð er til breytt röðun á köflum og ákvæðum laga um almannatryggingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-160/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. september 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 533)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2026)

Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 8. september 2022 (mál nr. S-160/2022) og bárust ráðuneytinu alls fjórar umsagnir um það. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 2. desember 2022

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Það er mikilvægt að ekki verði komið á starfsgetumatskerfi. Þar sem það er kerfi sem var fundið upp í Bretlandi og flutt út til annara ríkja með hrikalegum afleiðingum fyrir þá sem þurfa að komast á örorku eða aðrar tímabundnar greiðslur. Þar sem starfsgetumatskerfi er ekkert nema fátækrargildra. Ég sé í þessu frumvarpi, eftir stuttan yfirlestur að hérna er lagður grunnur að útgáfu af starfsetumatskerfi. Í þeim ríkjum þar sem slíkt kerfi hefur verið tekið upp á norðurlöndum (Danmörku), þá hefur niðurstaðan alltaf verið hörmung fyrir almenning sem þarf að nota félagslega kerfið og komast á öror… Lesa alla

    Það er mikilvægt að ekki verði komið á starfsgetumatskerfi. Þar sem það er kerfi sem var fundið upp í Bretlandi og flutt út til annara ríkja með hrikalegum afleiðingum fyrir þá sem þurfa að komast á örorku eða aðrar tímabundnar greiðslur. Þar sem starfsgetumatskerfi er ekkert nema fátækrargildra. Ég sé í þessu frumvarpi, eftir stuttan yfirlestur að hérna er lagður grunnur að útgáfu af starfsetumatskerfi. Í þeim ríkjum þar sem slíkt kerfi hefur verið tekið upp á norðurlöndum (Danmörku), þá hefur niðurstaðan alltaf verið hörmung fyrir almenning sem þarf að nota félagslega kerfið og komast á örorkubætur vegna veikinda, einhverfu, geðsjúkdóma og annara hluta. Það má ekki gera kerfið þannig að vonlaust sé fyrir fólk að komast þarna inn eins og hefur verið stefnan hjá íslenskum stjórnvöldum mjög lengi. Það þarf einnig að tryggja að örokubætur og ellilífeyrir sé aðeins hærri en lágmarslaun á Íslandi á hverjum tíma. Það gengur ekki til lengdar að halda stórum hópum íslenskra ríkisborgara á fátækt vegna aðstæðna sem fólk hefur enga stjórn á. Slíkt er mannvonska og á ekki að líðast, hvorki í dag eða framtíðinni. Ef fjármögnun er vandamálið, þá á að hækka skatta á ríkasta fólk Íslands til þess að borga fyrir þetta og koma í veg fyrir undanskot á skatttekjum á Íslandi hjá ríkasta fólki Íslands (sem felur peninga í skattaskjólum samkvæmt fréttum).

  • #2Elín Theódóra Reynisdóttir
    Í drögum um breytingar er aðallega horft til þess að breytingarnar varði réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma og ætlaðra tímabila til framtíðar. Mig langar að nýta tækifærið þar sem þessi drög eru í umsagnarferli, að vekja athygli ráðuneytisins á því að það hefur verið ákveðin hindrun, að greiðslur Tryggingastofnunar eru fyrirframgreiddar, þegar kemur að lokum endurhæfingar og viðkomandi er að hefja atvinnuþátttöku á ný. Mér vitandi eru greiðslur til framfærslu allsstaðar greiddar eftir á (atvinnutekjur, sjúkrada… Lesa alla

    Í drögum um breytingar er aðallega horft til þess að breytingarnar varði réttindaávinnslu og ákvörðun réttinda umsækjenda um örorku- og endurhæfingarlífeyri á grundvelli tryggingartíma og ætlaðra tímabila til framtíðar. Mig langar að nýta tækifærið þar sem þessi drög eru í umsagnarferli, að vekja athygli ráðuneytisins á því að það hefur verið ákveðin hindrun, að greiðslur Tryggingastofnunar eru fyrirframgreiddar, þegar kemur að lokum endurhæfingar og viðkomandi er að hefja atvinnuþátttöku á ný. Mér vitandi eru greiðslur til framfærslu allsstaðar greiddar eftir á (atvinnutekjur, sjúkradagpeningar (Sjúkratrygginga Íslands sem og stéttarfélaga), atvinnuleysisbætur, lífeyrissjóðsgreiðslur), þ.e. greiðsla fyrir ákveðið tímabil greiðist eftir á (í lok mánaðar). Þegar einstaklingur hefur náð aukinni færni og fer aftur á vinnumarkað eða atvinnuleit, greiðast laun og atvinnuleysisbætur eftirá og það þýðir framfærslulaus mánaðarmót við upphaf atvinnuþátttöku að lokinni starfsendurhæfingu (og greiðslna endurhæfingarlífeyris). Dæmi um einstakling sem er í endurhæfingu og nýtur greiðslna endurhæfingarlífeyris: 1.-31. júní- endurhæfingarlífeyrir Tryggingastofnunar – greitt 1. júní vegna júní 1.-31. júlí – endurhæfingarlífeyrir Tryggingastofnunar – greitt 1. júlí vegna júlí 1.-31. ágúst – endurhæfingarlífeyrir Tryggingastofnunar – greitt 1. ágúst vegna ágúst Fyrir lok ágúst hefur einstaklingur náð þeirri færni sem hefur aukið starfsgetu og hann hefur leitað sér að og t.d. fengið starf sem hann byrjar í 1. september. 1.-30 september – Laun - greitt 30 sept. vegna september. Þannig að viðkomandi hefur engar tekjur sér til framfærslu í byrjun sept. og getur þar af leiðandi ekki greitt reikninga eða nokkuð annað fyrr en í lok sept. Þannig gengur það koll af kolli þar til hann hefur náð sér á rétt strik. Þetta hefur sannanlega áhrif á lok starfsendurhæfingar þar sem einstaklingar verða oft hræddir, aukinn kvíði og áhyggjur af því hvernig þeir kljúfi mánuðina við þessar breytingar. Það getur leitt til bakslags og þannig komið niður á þeim árangri sem náðst hefur i endurhæfingunni. Einnig langar mig til að benda á að fyrirkomulag greiðslna endurhæfingarlífeyris í samspili við réttindi í stéttarfélagi á sjúkradagpeningum. Sjúkradagpeningaréttur í stéttarfélögum eru taldir í dögum og veikindi geta hafist hvenær mánaðarins sem er. Til að eiga rétt á endurhæfingarlífeyri þarf m.a. að vera búið að nýta rétt sinn til sjúkradagpeninga stéttarfélags og réttindi eru talin í dögum hjá stéttarfélögum. Þegar endurhæfingarlífeyrisgreiðslur eru samþykktar þá gildir samþykkið frá fyrsta degi mánuði eftir að skilyrði eru uppfyllt. Ef einstaklingur á rétt á sjúkradagpeningum hjá stéttarfélagi til 5. ágúst, hefur hafið endurhæfingu og fær samþykktar greiðslur endurhæfingarlífeyris þá fæst fyrsta greiðsla ekki fyrr en 1. sept. (fyrir 1.-30. sept). Þá er komnir tekjulausir dagar við lok greiðslna sjúkradagpeninga og áður en endurhæfingarlífeyrisgreiðslur hefjast. Ég tel fulla ástæðu til að skoða þessa tvo þætti varðandi greiðslufyrirkomulag endurhæfingarlífeyris enda ein mikilvægasta undirstaða þess að geta tekist á við heilsufarslegan vanda að hafa fjárhagslegt öryggi. Elín Reynisdóttir, félagsráðgjafi

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsin um málið.

  • #4Öryrkjabandalag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-160/2022: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð · Alviti