Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-59/2022 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003

Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Með frumvarpi þessu verða í fyrsta lagðar til lagabreytingar til innleiðingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir. Reglugerðin nær til hafna sem eru hluti af samevrópska flutninganetinu. Breytingar þessar snúa m.a. að setja ákvæði um það þegar annar aðila en höfn býður upp á þjónustu í höfnum, möguleika hafnar eða lögbærs yfirvalds til að gera lágmarkskröfur til utanaðkomandi aðila til að bjóða upp á þjónustu við skip eða heimildir til að takmarka fjölda þeirra sem bjóða upp á þessa þjónustu og að hafnarstjórn ráðfæri sig við notendur hafna við álagningu gjalda. Þá verður lögð til heimild fyrir hafnir til að horfa til umhverfissjónarmiða við gjaldtöku. Mun sú heimild ná til allra hafna hér á landi. Í öðru lagi er lagt til ákvæði um gjaldtöku hafna vegna fiskeldisstarfsemi. Er lagagrundvöllur slíkrar gjaldtöku talinn óskýr samkvæmt gildandi lögum. Hefur gjaldtakan grundvallast á e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga um aflagjöld og hefur framkvæmd við gjaldtöku verið mismundandi eftir sveitarfélögum. Í þriðja lagi er lagt til ákvæði um viðmið sem horfa skuli til við afmörkun hafnarsvæða á sjó samkvæmt hafnarreglugerðum. Er í ákvæðinu vísað til landfræðilegra þátta sem og lóðspunkta eða annarra þátta sem tengjast starfsemi hafna. Í fjórða lagi er lagt til ákvæði um rafræna vöktun í höfnum. Er talin þörf á ákvæði þessa efnis til að vinnsla persónuupplýsinga byggist á viðhlítandi lagastoð en ekki er að finna ákvæði þessa efnis í hafnalögum. Í fimmta lagi verður lögð til breyting á 27. gr. hafnalaga um stjórnsýslukærur þannig að gjaldskrárákvarðanir verði kæranlegar til Samgöngustofu. Í sjötta lagi eru lögð til ákvæði um hafnsögu. Eru lagt til að þessi ákvæði færist úr III. kafli laga um vakstöð siglinga, nr. 41/2003. Þá er lögð til breytingu á lögum nr. 41/2003 þannig að ákvæði um hafnsögu falli brott úr þeim lögum. Loks eru í sjöunda lagi lagðar til breytingar á verkaskiptingu Samgöngustofu og Vegagerðarinnar á sviði hafnamála, m.a. er lýtur að eftirliti með hönnun og byggingu hafnarmannvirkja, sbr. 6. gr. laganna, og upplýsingar um hafnir, sbr. 9. gr. laganna.

S-59/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 6 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003

Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-59/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 712)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Hafnasamlag Norðurlands
    Á stjórnarfundi Hafnasamlags Norðurlands bs. miðvikudaginn 9. mars s.l. var eftirfarandi bókun samþykkt. 3. Hafnasvæði í sjó. Í ljósi þeirrar hugmynda sem ræddar hafa verið undanfarið um að minnka hafnasvæði hafna leggur stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. áherslu á að alls ekki megi skerða núvernandi hafnasvæði samlagsins og telur raunar brýna þörf á því að stækka það frekar. Með vaxandi umsvifum á fjörðum, í og við hafnir er nauðsynlegt að tryggja siglingaöryggi og siglingarými allra skipa. Með auknum kröfum um fjölbreytta þjónustu hafna við margvísleg skip og fjölbreyttari atvinnust… Lesa alla

    Á stjórnarfundi Hafnasamlags Norðurlands bs. miðvikudaginn 9. mars s.l. var eftirfarandi bókun samþykkt. 3. Hafnasvæði í sjó. Í ljósi þeirrar hugmynda sem ræddar hafa verið undanfarið um að minnka hafnasvæði hafna leggur stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. áherslu á að alls ekki megi skerða núvernandi hafnasvæði samlagsins og telur raunar brýna þörf á því að stækka það frekar. Með vaxandi umsvifum á fjörðum, í og við hafnir er nauðsynlegt að tryggja siglingaöryggi og siglingarými allra skipa. Með auknum kröfum um fjölbreytta þjónustu hafna við margvísleg skip og fjölbreyttari atvinnustarfsemi á hafnasvæðum en áður, er höfnum einnig nauðsyn á að fá auknar og skýrari heimildir til gjaldtöku fyrir þá þjónustu sem veitt er. Kröfur um þjónustu á og við hafnasvæði munu ætíð beinast að höfnunum, því verður þeim að vera kleift að standa undir þeim kröfum.

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan daginn Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hafnasambands Íslands og Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga. Virðingarfyllst, Bryndís Gunnlaugsdóttir

  • #3Vesturbyggð

    Meðfylgjandi er umsögn Vesturbyggðar.

  • #4Eimskipafélag Íslands hf.

    Meðfylgjandi er umsögn Eimskips.

  • #5Fjarðabyggðarhafnir

    Meðfylgjandi er umsögn Fjarðabyggðarhafna

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-59/2022: Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 · Alviti