Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-238/2022 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð

Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur innleiðingu varaflugvallargjalds.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu er lagt til að ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu komi í stað óskýrra og dreifðra lagaákvæða sem nú eru í gildi. Skort hefur í lögum skýr ákvæði um verkefni samgönguyfirvalda á þessu sviði og þau markmiðum sem stýra eiga för við framkvæmd þeirra. Er meginmarkmiðið að flugvellir landsins og þjónusta við flugumferð þjóni þörfum samfélagsins með skilvirkni, hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum, eins og hún birtist m.a. í flugstefnu og samgönguáætlun. Frumvarpið kynnir jafnframt til sögunnar varaflugvallargjald. Er því ætlað að bregðast við og tryggja fjármagn til uppbyggingar innviða á innanlandsflugvöllum. Markmiðið er að flugvellirnir geti sinnt hlutverki sínu sem mikilvægar gáttir inn í landið og varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll með fullnægjandi hætti. Til að svo megi vera er nauðsynlegt að ráðast í framkvæmdir á völlunum. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um brottfall úreltra laga og lagaákvæða á þessu sviði. Í dag eru í gildi þrenn lög um stofnun og starfsemi Isavia ohf. og verkefnin sem félagið annast fyrir hönd íslenska ríkisins; lög um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands, nr. 102/2006, lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar nr. 76/2008 og lög um samruna opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar nr. 153/2009. Nái frumvarpið fram að ganga falla þau á brott. Frumvarpið mun því fela í sér töluverða einföldun regluverks og jafnframt draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum. Það skal tekið fram að um almennar kröfur til starfrækslu flugvalla, rekstrarstjórnunar flugumferðar og veitingu flugleiðsöguþjónustu fer samkvæmt lögum um loftferðir, nr. 60/1998, og reglugerðum settum á grundvelli þeirra.

S-238/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 28. nóv. 2022 – 5. des. 2022· 7 umsagnir

Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð

Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur innleiðingu varaflugvallargjalds.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-238/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 941)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Landvernd, landgræðslu- og umhverisverndarsamtök Íslands

    Vinsamlegast sjá umsögn Landverndar í viðhengi. kveðja Auður

  • #2Fjórðungssamband Vestfirðinga

    Hjálagt er umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga við mál 238/2022

  • #3Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um drög að frumvarpi til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð. Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson

  • #4Isavia ohf.

    Meðfylgjandi er umsögn Isavia ohf.

  • #5Markaðsstofa Norðurlands

    Markaðsstofa Norðurlands (MN) fagnar þeim áformum að styrkja fjármögnun á rekstri og uppbyggingu alþjóðaflugvalla landsins utan Keflavíkurflugvallar. MN leggur þó ríka áherslu á að nýjar tekjur komi til viðbótar við það fjármagn sem nú þegar er veitt til innanlandsflugvalla landsins. Það fjármagn hefur verið skert á undanförnum árum og nauðsynlegt að bæta þar í. Mikilvægt er að horfa á uppbyggingu allra alþjóðaflugvalla landsins í samhengi. Bæði með tilliti til öryggissjónarmiða og með tilliti til áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu - sem er orðin stærsta atvinnugrein landsins.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-238/2022: Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð · Alviti