Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-14/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga til innleiðingar á tilskipun 2014/92/EB (e. Payment Accounts Directive).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um greiðslureikninga. Frumvarpið er innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/92/EB frá 23. júlí 2014 um samanburð gjalda vegna greiðslureikninga, skipti á greiðslureikningum og aðgengi að greiðslureikningum með grunneiginleikum. Með lögfestingu frumvarpsins verður tryggt að allir sem dvelja löglega til lengri tíma á Íslandi, fái aðgang að almennum greiðslureikningi. Þá verður neytendum auðveldað að skipta um greiðslureikninga og aðgengi almennings að upplýsingum um gjaldtöku vegna greiðslureikningi bætt, meðal annars með samanburðarvefsetri um gjöld sem tengjast greiðslureikningum. Samkvæmt frumvarpinu er ráðherra falið að setja reglugerð um samanburðarvefsetur um gjöld sem tengjast greiðslureikningum en slík vefsetur skulu vera óháð greiðsluþjónustuveitendum og veita áreiðanlegar og hlutlausar upplýsingar.

S-14/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2022 – 4. feb. 2022· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga til innleiðingar á tilskipun 2014/92/EB (e. Payment Accounts Directive).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-14/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 417)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. ágúst 2022)

Frumvarpsdrög voru birt í Samráðsgátt 21. janúar 2021 og bárust engar umsagnir. Frumvarp til laga um greiðslureikninga var lagt fram á Alþingi 2. mars 2021 en hlaut ekki þinglega meðferð. Frumvarpið verður lagt fram að nýju í haust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-14/2022: Drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga · Alviti