Útlendingalög (dvalarleyfi)
Áform um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (dvalarleyfi). Endurflutt að hluta.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-1/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. janúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 944)
Niðurstöður samráðs (21. febrúar 2023)
Ein umsögn barst vegna áforma um breytingu á útlendingalögum (dvalarleyfi) og verður umsögnin tekin til skoðunar við vinnslu frumvarps. Þegar drög að frumvarpinu eru tilbúin verða þau sett í Samráðsgátt og óskað umsagna.
- Áform um breytingu á lögum um útlendinga (dvalarleyfi)
- Frummat á áhrifum breytinga á lögum um útlendinga (dvalarleyfi)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Bryndís Björnsdóttir
Ég skrifa umsögnina sem meðlimur AIVAG hópsins eða Artists in Iceland Visa Action Group. Hópurinn starfar sem hagsmunasamtök aðfluttra listamanna og réttindi þeirra. Sérstaklega viljum við standa vörð um möguleika þess að listamenn utan Evrópusambandsins eigi möguleika að koma sér hér fyrir. Í því tilliti vildum við skrifa umsögn sem brýnir fyrir mikilvægi þess að gluggin til atvinnuleitar eftir útskrift eigi einnig við nýútskrifaða úr Listaháskólanum. Eins og helstu menningarstofnanir vita, líkt og Listaháskólinn sem er með ákveðið hlutfall af erlendum nemendum innan sinna veggja, e… Lesa alla
Ég skrifa umsögnina sem meðlimur AIVAG hópsins eða Artists in Iceland Visa Action Group. Hópurinn starfar sem hagsmunasamtök aðfluttra listamanna og réttindi þeirra. Sérstaklega viljum við standa vörð um möguleika þess að listamenn utan Evrópusambandsins eigi möguleika að koma sér hér fyrir. Í því tilliti vildum við skrifa umsögn sem brýnir fyrir mikilvægi þess að gluggin til atvinnuleitar eftir útskrift eigi einnig við nýútskrifaða úr Listaháskólanum. Eins og helstu menningarstofnanir vita, líkt og Listaháskólinn sem er með ákveðið hlutfall af erlendum nemendum innan sinna veggja, er mjög mikilvægt að fjölbreytileiki sé fyrir stafni þegar kemur að auðugu menningarlífi. Líkt og með aðra sérþekkingu er afar mikilvægt að sporna sem mest við því sem kallast spekileki (enska brain drain). Þegar um er að ræða menningartengda starfsemi og eða nýsköpun er fjölbreytileiki og nýgyrni undirstaðan að því að slík starfsemi þrífist. Atvinnuleit fyrir þennan hóp þýðir að kynnast betur menningarstofnunum, starfsemi og samfélagi og því er afar mikilvægt að gluggin til að staðsetja sig innan samfélagsins eftir útskrift sé rýmkaður. Þess ber að geta að atvinnuleit þessa hóps þýðir ekki í öllum tilfellum að starfssamningur náist þó að slíkir samningar séu vissulega fyrir stafni. Oftar en ekki er um verktakavinnu, sölu verka og annarri tilfallandi vinnu sem aðilin aflar sér tekna. Samhliða þessari umsögn viljum við einnig brýna fyrir því að það þarf að taka til greina verktaka vinnu þegar kemur að því að móta forsendur landvistarleyfis en við munum orða þá breytu einnig frekar á öðrum vettvangi en varðar þetta tiltekna frumvarp. Bestu kveðjur, Bryndís
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.