Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-210/2022 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um stefnumarkandi stefnur á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála

Með frumvarpinu er lögð til ný hugsun og mikilvæg viðhorfsbreyting í opinberri stefnumótun og áætlanagerð.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpsdrögunum er markaður rammi um þessa nýja hugsun í stefnumótun og verklag við undirbúning og gerð áætlana á sviði málefna er heyra undir innviðaráðuneytið. Kemur það í stað ákvæða um gerð samgönguáætlunar, stefnumótunar á sviði húsnæðismála, og byggðaáætlunar en auk þess eru lagðar til breytingar á skipulagslögum er varðar landsskipulagsstefnu en breytingar eiga að fela í sér einföldun lagareglna á þessu sviði. Virk stefnumótun er forsenda framfara og er samfélaginu, atvinnulífinu og hinu opinbera nauðsynleg. Það er lýðræðissamfélögum nauðsynlegt, þegar takast þarf á við sameiginlegar áskoranir að móta sér stefnu og áætlanir. Þá þarf að sameina kraftana og því brýnt að allir hlutaðeigandi komi að lausnum svo að þær nýtist á fjölþættan hátt. Með virkri stefnumótun næst meiri árangur fyrir samfélagið, hún leiðir til aukinnar samvinnu milli málaflokka, meira gagnsæi, betri nýting fjármuna og aukinna lífsgæða. Frumvarpið er í samræmi við áherslur sáttmála um ríkisstjórnarsamstarfs Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs en fram kemur í sáttmálanum að ein af áherslunum er að samþætta áætlanir í samgöngumálum, húsnæðismálum og skipulagsmálum og lagðar fram samhliða.

S-210/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2022 – 21. nóv. 2022· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um stefnumarkandi stefnur á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála

Með frumvarpinu er lögð til ný hugsun og mikilvæg viðhorfsbreyting í opinberri stefnumótun og áætlanagerð.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-210/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. nóvember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 735)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. nóvember 2023)

Sjá 5. kafla um samráð í frumvarpi til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Samtök atvinnulífsins

    Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.

  • #2Veturliði Þór Stefánsson
    Vil hér koma á framfæri tillögu að breytingu á heiti frumvarpsins svo endanlega heiti laganna samræmist betur efni þeirra. Í drögunum er notast við heitið "Frumvarp til laga um stefnumarkandi stefnur á sviði húsnæðis- og skipulagsmála". Í ljósi þess að stefnur eru í eðli sínu jafnan stefnumarkandi, þá sýnist vera ákveðin tvítekning í frumvarpsheitinu. Geri því að tillögu að skipta út orðunum " stefnumarkandi stefnur" í heitinu og nefna frumvarpið frekar "Frumvarp til laga um stefnumótunarframkvæmd á sviði húsnæðis- og skipulagsmála". Virðingarfyllst, Veturlið Þór Stefánsson, lög… Lesa alla

    Vil hér koma á framfæri tillögu að breytingu á heiti frumvarpsins svo endanlega heiti laganna samræmist betur efni þeirra. Í drögunum er notast við heitið "Frumvarp til laga um stefnumarkandi stefnur á sviði húsnæðis- og skipulagsmála". Í ljósi þess að stefnur eru í eðli sínu jafnan stefnumarkandi, þá sýnist vera ákveðin tvítekning í frumvarpsheitinu. Geri því að tillögu að skipta út orðunum " stefnumarkandi stefnur" í heitinu og nefna frumvarpið frekar "Frumvarp til laga um stefnumótunarframkvæmd á sviði húsnæðis- og skipulagsmála". Virðingarfyllst, Veturlið Þór Stefánsson, lögfr.

  • #3Skipulagsstofnun

    Sæl Hjálögð er umsögn Skipulagsstofnunar Ottó Björgvin Óskarsson

  • #4Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins Valgerður Rún

  • #5Bændasamtök Íslands

    Sjá í viðhengi umsögn Bændasamtaka Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-210/2022: Frumvarp til laga um stefnumarkandi stefnur á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála · Alviti