Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-163/2022 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur

Umhverfis,- orku og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Í desember 2019 var á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkt að stofnað yrði opinbert hlutafélag, CarbFix ohf., um þá starfsemi sem áður var rekin innan OR um varanlega bindingu koldíoxíðs í bergi. Mikill áhugi er á því að nýta aðferðafræði Carbfix víða um heim og stendur vilji til þess að stofnuð verði sérstök félög um hvert verkefni, jafnvel með eignaraðild samstarfsaðila hverju sinni, m.a. í þeim tilgangi að takmarka áhættu CarbFix ohf. af hverju verkefni. Stjórn Carbfix ohf. telur því æskilegt, eigi hugmyndir félagsins um framtíðarnýtingu tækninnar fram að ganga, að stofna hefðbundið hlutafélag, Carbfix hf., um rekstur tækninnar. Að mati stjórnar Carbfix er möguleiki á samstarfi um einstök verkefni með þátttöku og eignaraðild ytri samstarfsaðila. Núverandi félagsform muni ekki eitt og sér nægja til að til slíkrar eignaraðildar geti komið því félagsform Carbfix ohf. útilokar að aðrir fjárfestar en opinberir aðilar geti lagt félaginu áhættufé. Opinbert hlutafélag sem félagsform takmarkar auk þess möguleika til að sækja um og afla styrkja, m.a. frá Evrópusambandinu og Rannís. Í 1. mgr. 2. gr. laga um Orkuveitu Reykjavíkur nr. 136/2013 er kveðið á um að OR sé heimilt að eiga dótturfélög og eiga hlut í félögum. Í 2. mgr. 2. gr. er fjallað um hlutverk og heimildir fyrirtækisins. Þar kemur fram skilyrði um að önnur starfsemi OR sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað fyrirtækjanna, sem og iðnþróun og nýsköpun, þurfi að tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Einnig hefur Orkuveita Reykjavíkur bent á að þörf sé á heimild til vinnslu persónuupplýsinga í lög um Orkuveitu Reykjavíkur.

S-163/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. sep. 2022 – 27. sep. 2022· 2 umsagnir

Breyting á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur

Umhverfis,- orku og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-163/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. september 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 821)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)

Drög að frumvarpi voru birt til samráðs, sbr. mál nr. 223/2022. Fruvarp samþykkt á Alþingi sem lög nr. 29/2023

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Hörður Einarsson

    Of margt er óupplýst um mál þetta í þeim tveimur skjölum, sem fylgja, til þess að unnt sé að senda inn málefnalega og gagnlega umsögn. Það eina, sem virðist vera alveg ljóst, er það, að til stendur að einkavæða hluta af Orkuveitu Reykjavíkur. Ég undirritaður fer því hér með fram á að fá afhent afrit af öllum þeim gögnum, sem fyrir liggja um málið. Virðingarfyllst, Hörður Einarsson

  • #2Samtök iðnaðarins

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-163/2022: Breyting á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur · Alviti