Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-174/2022 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi um lengingu greiðslutímabils endurhæfingarlífeyris

Frumvarp um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Í frumvarpinu er lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt úr þremur árum í fimm ár.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Frumvarpið inniheldur fyrsta skref í átt að nýju greiðslu- og þjónustukerfi vegna starfsgetumissis. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum, hvað varðar greiðslur endurhæfingarlífeyris. Er annars vegar lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt þannig að tímabilið verði allt að 36 mánuðir í stað 18 mánaða samkvæmt gildandi lögum og hins vegar að heimild til að framlengja greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengd úr 18 mánuðum í 24 mánuði. Þannig er gert ráð fyrir að tímabil endurhæfingarlífeyris verði allt að fimm ár í stað þriggja ára samkvæmt gildandi lögum. Jafnframt er lagt til það skilyrði fyrir framlengingu greiðslna að endurhæfing með aukna atvinnuþátttöku að markmiði sé enn metin raunhæf og því gert ráð fyrir auknum kröfum um framvindu endurhæfingar og áherslu á endurkomu viðkomandi á vinnumarkað.

S-174/2022· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. sep. 2022 – 7. okt. 2022· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi um lengingu greiðslutímabils endurhæfingarlífeyris

Frumvarp um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Í frumvarpinu er lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt úr þremur árum í fimm ár.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-174/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (9. júlí 2026)

Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda 23. september 2022 (mál nr. S-174/2022) og var helstu hagsmunaaðilum gert viðvart um birtingu frumvarpsins. Ráðuneytinu bárust alls sex umsagnir um frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 15. nóvember 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður ses.

    Umsögn frá VIRK - Starfsendurhæfingarsjóði. Sjá meðfylgjandi skjal.

  • #2Hugarafl - Notendastýrð starfsendurhæfing

    Umsögn um drög að frumvarpi um lengingu greiðslutímabils endurhæfingarlífeyris er í pdf viðhengi.

  • #3Margrét Ólafía Tómasdóttir
    Umsögn frá Félagi íslenskra heimilislækna: Félag íslenskra heimilislækna fagnar því ef rýmka á tíma til endurhæfingar eftir veikindi. Hins vegar vill félagið benda á að nauðsynlegt er að breyta allri umgjörð umsókna og áætlana á endurhæfingartíma til að slíkt geti gengið eftir. Sem stendur er ferli endurhæfingar flókið og mótsagnarkennt og streituvaldandi fyrir þá sem þurfa á endurhæfingu að halda. Margir skjólstæðingar falla ekki innan ramma VIRK endurhæfingar eða fá ekki að njóta þjónustu þeirra nema hluta þess tíma sem endurhæfing þyrfti að standa yfir. Bið í önnur endurhæfingarúrræði (S… Lesa alla

    Umsögn frá Félagi íslenskra heimilislækna: Félag íslenskra heimilislækna fagnar því ef rýmka á tíma til endurhæfingar eftir veikindi. Hins vegar vill félagið benda á að nauðsynlegt er að breyta allri umgjörð umsókna og áætlana á endurhæfingartíma til að slíkt geti gengið eftir. Sem stendur er ferli endurhæfingar flókið og mótsagnarkennt og streituvaldandi fyrir þá sem þurfa á endurhæfingu að halda. Margir skjólstæðingar falla ekki innan ramma VIRK endurhæfingar eða fá ekki að njóta þjónustu þeirra nema hluta þess tíma sem endurhæfing þyrfti að standa yfir. Bið í önnur endurhæfingarúrræði (Sem eru allt of fá) er mjög langur, gjarnan 2-3 ár. Á þeim tíma sem formlegt endurhæfingarúrræði er ekki nýtt þarf endurtekna og flókna vottorðagerð af hálfu heimilislæknis (sem ekki allir hafa aðgang að) þar sem setja þarf upp endurhæfingaráætlun og fá vottun frá hverjum og einum þeim aðila sem tekur þátt í endurhæfingarferlinu. Ef slík endurhæfingaráætlun er samþykkt (Sem of oft er ekki) er hún einungis samþykkt í stuttan tíma, 2-4 mánuði í senn, sem þýðir að nánast um leið og endurhæfingartíminn hefst þarf að fara að huga að næstu áætlun og vottorðagerð með tilheyrandi streitu og álagi fyrir skjólstæðinginn. Þá vill FÍH einnig benda á að ekki er alltaf viðeigandi fyrir skjólstæðinginn að yfirgripsmikil virk endurhæfing sé í gangi heldur frekar þörf á hvíld eða léttri hreyfingu sem þó sjaldan fæst samþykkt undri hatti endurhæfingarlífeyris. Heimilislæknar hafa þá oft orðið vitni að afturför hjá skjólstæðingum sínum vegna þeirrar streitu sem óvissa um framfærslu skapar. Til viðbótar hefur borið á mótsagnakenndum skilaboðum frá TR þar sem ekki fæst frekari endurhæfing ef VIRK telur að endurhæfing sé fullreynd en á sama tíma er beiðni um örorku hafnað þar sem TR telur að endurhæfing sé ekki fullreynd (þar sem tímalengd mögulegrar endurhæfingar hefur ekki verið fullnýtt). Skiljanlega skapar þetta enn meiri streitu og núning og algjör skortur er á samtali milli TR og meðhöndlandi lækna. Þá má velta vöngum yfir hvort eðlilegt sé að möguleikar á framfærslu skjólstæðinga sé í höndum lækna þeirra. FÍH vill því benda á að taka þarf kerfi endurhæfingarlífeyris og upphaf örorku til gagngerrar endurskoðunar með hag skjólstæðing að leiðarljósi og óskar eftir að við þá endurskoðun verði rætt við þá fagaðila sem helst koma að gerð endurhæfingaráætlana og vottorðagerð.

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.

  • #5Öryrkjabandalag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-174/2022: Drög að frumvarpi um lengingu greiðslutímabils endurhæfingarlífeyris · Alviti