Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-156/2022 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 vegna fyrirhugaðrar innleiðingar Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. Hins vegar er með frumvarpinu lagt til að gerðar verði breytingar til einföldunar á ákvæðum laganna er varða leyfisveitingar. Með reglugerð (ESB) 2020/1055 hefur gildissvið reglna sem gilda um farmflutninga á landi verið útvíkkað svo þær taka nú til farmflutninga á vegum milli ríkja með ökutækjum sem eru yfir 2,5 tonn að leyfðri heildarþyngd en ekki aðeins um ökutæki sem eru yfir 3,5 að leyfðri heildarþyngd líkt og verið hefur. Þar sem lög nr. 28/2017 ekki um farmflutninga á landi með ökutækjum sem eru 3,5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd er nauðsynlegt að breyta gildissviðsákvæði laganna svo innleiða megi reglugerð (ESB) 2020/1055. Gildandi lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 ráð fyrir þrenns konar leyfum til farþegaflutninga sem gefin eru út af Samgöngustofu, þ.e. almennu rekstrarleyfi til farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem eru skráðar fyrir níu farþega eða fleiri, leyfi til farþegaflutninga með sérútbúnum bifreiðum sem rúma færri farþega en níu og loks ferðaþjónustuleyfi til farþegaflutninga með bifreiðum sem rúma færri farþega en níu. Breytingar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi gera ráð fyrir því að ekki verði lengur gefin út leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða eða ferðaþjónustuleyfi. Þessi í stað gefi Samgöngustofa aðeins út eina tegund leyfa til farþegaflutninga eða farmflutninga skv. lögunum en leyfi verði skilyrt og bundin við tiltekna tegund flutninga.

S-156/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. ágú. 2022 – 12. sep. 2022· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-156/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. september 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 279)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2023)

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 birtist í Samráðsgátt stjórnvalda 31. ágúst 2022 og frestur til að skila umsögnum var til 12. september sama ár. Engin umsögn barst vegna frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á 153. löggjafarþingi og tók lagabreytingin gildi 7. janúar 2023.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-156/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 · Alviti