Breyting á kosningalögum
Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu er leitast við að bregðast við þeim ágöllum sem komið hafa í ljós við beitingu nýrra kosningalaga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-42/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 945)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. maí 2023)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 30. mars 2023. Í greinargerð með frumvarpinu er gerð grein fyrir þeim umsögnum sem bárust um frumvarpið.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Skagafjörður
Á 37. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 1. mars 2023 var tekið fyrir 42. mál til samráðs "Breyting á kosningalögum" og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar tillögu að breytingum á kosningalögum sem varða vanhæfisákvæði kjörstjórnarmanna en gildandi kosningalög ollu sem kunnugt er miklum vandræðum við mönnun kjörstjórna fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með að leitast sé við að skýra betur ákvæði er varða kostnað við sveitarstjórnarkosningar og aðrar kosningar. Nauðsynlegt er að fyrirhuguð reglugerð sem kveður á um fjár… Lesa alla
Á 37. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 1. mars 2023 var tekið fyrir 42. mál til samráðs "Breyting á kosningalögum" og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar tillögu að breytingum á kosningalögum sem varða vanhæfisákvæði kjörstjórnarmanna en gildandi kosningalög ollu sem kunnugt er miklum vandræðum við mönnun kjörstjórna fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með að leitast sé við að skýra betur ákvæði er varða kostnað við sveitarstjórnarkosningar og aðrar kosningar. Nauðsynlegt er að fyrirhuguð reglugerð sem kveður á um fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna hlutverks þeirra við framkvæmd annarra kosninga svo og um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga vegna þeirra verkefna sem Þjóðskrá Íslands fer með vegna framkvæmdar kosninga, verði unnin í nánu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. f.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #2Baldvin Björgvinsson
Af hverju 20 atkvæði? Er ekki eðlilegra að þetta sé hlutfallstala greiddara atkvæða í kjördæminu? Hvernig væri að lagfæra atkvæðavægið í leiðinni?
- #3Gísli Baldvinsson
Bendi á að ekki fer saman föst atkvæðatala (20-40) í mismunandi fjölda kjósenda. Hlutfallstala á hér betur við, sérlega m.t.t mismunandi atkvæðavægi. Gísli Baldvinsson, stjórnmálafræðingur.
- #4Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingu á kosningalögum
- #5Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga gerir ekki aðrar efnislegar athugasemdir við frumvarpið en að eftir er að ljúka mati á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög og af þeirri ástæðu áskilur sambandið sér rétt til að koma að athugasemdum á síðari stigum. Gildir þessi fyrirvari einkum varðandi 39. gr. frv., um breytingar á 139. gr. kosningalaga. Einnig telur sambandið mikilvægt að fram fari samtal á milli dómsmálaráðuneytis og innviðaráðuneytis um hvort mögulegt er að gera breytingar á frumvarpinu áður en það er lagt fram á Alþingi, hvað varðar tengsl ákvæða sveitarstjórnarlaga og kosnin… Lesa alla
Samband íslenskra sveitarfélaga gerir ekki aðrar efnislegar athugasemdir við frumvarpið en að eftir er að ljúka mati á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög og af þeirri ástæðu áskilur sambandið sér rétt til að koma að athugasemdum á síðari stigum. Gildir þessi fyrirvari einkum varðandi 39. gr. frv., um breytingar á 139. gr. kosningalaga. Einnig telur sambandið mikilvægt að fram fari samtal á milli dómsmálaráðuneytis og innviðaráðuneytis um hvort mögulegt er að gera breytingar á frumvarpinu áður en það er lagt fram á Alþingi, hvað varðar tengsl ákvæða sveitarstjórnarlaga og kosningalaga sem reynt getur á við framkvæmd íbúakosninga í sveitarfélögum. Markmið slíkra breytinga væri eingöngu að létta á framkvæmd íbúakosninga. F.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.