Útlendingalög (alþjóðleg vernd)
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd) og lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002 (atvinnuleyfi). Endurflutt að hluta.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-20/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 11. febrúar 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 26 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 595)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. apríl 2022)
Ráðuneytinu bárust 26 umsagnir vegna frumvarpsins sem unnið hefur verið úr. Í samræmi við þær athugasemdir sem bárust voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu, sbr. meðfylgjandi niðurstöðuskjal.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (26)
- #1Ragnar Árnason
Umsögn Í heiminum eru hundruð milljóna fólks sem er til í að leggja mikið á sig til að ná búsetu í vestrænum velferðarríkjum eins og Íslandi. Á síðustu áratugum hafa tækifærin til að gera þetta aukist stórlega. Er það einkum vegna samgöngubóta, viðhorfsbreytinga, lagabreytinga og breyttrar framkvæmdar laga. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa. Milljónir manna frá fátækari hlutum heimsins hafa lagt á sig dýrt, erfitt og jafnvel hættulegt ferðlag til að setjast að í ríkari löndum þar sem þeir telja lífsskilyrði betri. Afar mikilvægt er að átta sig á því að meginástæða þessara fólk… Lesa alla
Umsögn Í heiminum eru hundruð milljóna fólks sem er til í að leggja mikið á sig til að ná búsetu í vestrænum velferðarríkjum eins og Íslandi. Á síðustu áratugum hafa tækifærin til að gera þetta aukist stórlega. Er það einkum vegna samgöngubóta, viðhorfsbreytinga, lagabreytinga og breyttrar framkvæmdar laga. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa. Milljónir manna frá fátækari hlutum heimsins hafa lagt á sig dýrt, erfitt og jafnvel hættulegt ferðlag til að setjast að í ríkari löndum þar sem þeir telja lífsskilyrði betri. Afar mikilvægt er að átta sig á því að meginástæða þessara fólksflutninga eru ekki hörmungar á einstökum svæðum, styrjaldir, hungursneyðir eða ofsóknir. Meginástæðan fyrir fólksflutningum nútímans er sú sama og ráðið hefur fólksflutningum í heiminum í árþúsundir; innflytjendur eru einfaldlega að leita sér að betra og auðveldara lífi. Þetta er efnahagsleg ástæða. Þess vegna munu fólksflutningarnir ekki stöðvast fyrr en væntanlegur ábati af ferðinni verður lægri en væntanlegur kostnaður. Miðað við þann mikla fjölda fólks sem vill gerast innflytjendur í vestrænum ríkjum er Ísland mjög mannfátt. Það er enginn vafi á því að ef dyr væru hér nægilega opnar myndu hundruð þúsunda, jafnvel milljónir taka því fegins hendi að fá búseturétt á Íslandi. Slíkt innflæði myndi ekki stöðvast fyrr en lífskjör hér á landi væru komin niður undir það nú er í fátækari hluta heimsins. Við slíkar aðstæður yrði lítið eftir af íslenskri menningu og þjóðargildum. Um árabil hafa kjörnir fulltrúar þjóðarinnar annaðhvort ekki áttað sig á þessum staðreyndum málsins eða skellt skollaeyrum við þeim. Afleiðingin hefur verið innflæði útlends fólks af alls kyns toga og menningu sem nemur nú á tiltölulega fáum árum verulegum hlut þjóðarinnar. Ég hygg að fáar vesturlandaþjóðir hafi tekið við svo stóru hlutfalli innflytjenda á svo skömmum tíma. Samfélagslegar og efnahagslegar afleiðingar þessa mikla innflutnings eru þegar farnar að koma fram og munu gera það í enn ríkari mæli á komandi árum eins og reynsla annarra þjóða sýnir. Frumvarp það sem hér er kynnt felur í sér vissa viðleitni til að hamla á móti þessari þróun. Því ber að fagna. Það gengur hina vegar að mínu viti allt of skammt í þessu efni. Hagmunir Íslendinga og þeirra innflytjenda sem þegar eru komnir til landsins og jafnvel þeirra sem eftir eiga að koma eru að skynsamlegri stjórn verði komið á flæði innflytjenda til landsins og tala innflytjenda verði takmörkuð við það sem samræmst getur sæmilegum félagslegum og efnahagslegum stöðugleika í landinu. Frumvarpið er skref í þessa átt. Vonandi koma stærri skef í framhaldinu. Ragnar Árnason Prófessor emeritus
- #2Jón Frímann Jónsson
Þetta frumvarp er rasískur fjandi sem á ekki heima á Íslandi á 21 öldinni. Eins og önnur lög um útlendinga þá er þetta frumvarp keyrt áfram af sturluðu útlendingahatri og þeir sem keyra þetta áfram ættu ekki að vera á Alþingi og alls ekki með ráðherravald. Mannréttindi á að virða og svona fasísk útlendingalög á að stöðva og senda í tætarann og fólk sem leggur fram svona lög á Alþingi á að segja af sér embætti án tafar.
- #3Einar Sveinn Hálfdánarson
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd) Ég tel í frumvarpið vanti ákvæði þess efnis að flugrekendum og skipaútgerðum sé skylt að ganga úr skugga um að útlendir farþegar á leið til Íslands skuli framvísa gildu vegabréfi eða evrópsku nafnskírteini áður en gengið er um borð í flugvél eða skip. Þeir farþegar sem eru frá löndum þar sem Ísland gerir kröfu um vegabréfsáritun skuli jafnframt framvísa gildri vegabréfsáritun. Jafnframt tel ég að setja þurfi ákvæði þess efnis að farþegar á leið til landsins skuli fylla út forskráningarform með helstu upplýsi… Lesa alla
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd) Ég tel í frumvarpið vanti ákvæði þess efnis að flugrekendum og skipaútgerðum sé skylt að ganga úr skugga um að útlendir farþegar á leið til Íslands skuli framvísa gildu vegabréfi eða evrópsku nafnskírteini áður en gengið er um borð í flugvél eða skip. Þeir farþegar sem eru frá löndum þar sem Ísland gerir kröfu um vegabréfsáritun skuli jafnframt framvísa gildri vegabréfsáritun. Jafnframt tel ég að setja þurfi ákvæði þess efnis að farþegar á leið til landsins skuli fylla út forskráningarform með helstu upplýsingum um sig (e. APIS). Nánar verði kveðið á um framkvæmd forskráningar í reglugerð.
- #4Eyrún Ólöf Sigurðardóttir
Í frumvarpinu er stigið jákvætt skref í átt að því að greiða fyrir atvinnuþátttöku einstaklinga sem hlotið hafa dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi eða vegna sérstakra tengsla við landið. Fólk úr þessum hópum hefur sjálft kallað eftir að liðkað verði fyrir möguleika þess á að sjá sér farborða með sjálfstæðum hætti og er ánægjulegt að sjá brugðist við þeirri ósk. Eins og gefur að skilja mun aðgengi að vinnumarkaði alltaf styrkja bæði einstaklingana sem í hlut eiga sem og samfélagið í heild og því ber að fagna allri viðleitni til að liðka fyrir því. Heilt á litið einkennist frumvarpið… Lesa alla
Í frumvarpinu er stigið jákvætt skref í átt að því að greiða fyrir atvinnuþátttöku einstaklinga sem hlotið hafa dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi eða vegna sérstakra tengsla við landið. Fólk úr þessum hópum hefur sjálft kallað eftir að liðkað verði fyrir möguleika þess á að sjá sér farborða með sjálfstæðum hætti og er ánægjulegt að sjá brugðist við þeirri ósk. Eins og gefur að skilja mun aðgengi að vinnumarkaði alltaf styrkja bæði einstaklingana sem í hlut eiga sem og samfélagið í heild og því ber að fagna allri viðleitni til að liðka fyrir því. Heilt á litið einkennist frumvarpið hins vegar af grimmilegri og útilokandi stefnu þar sem lagt er til að tilteknir einstaklingar eða heilu samfélagshóparnir séu sviptir ákveðnum grundvallarréttindum sem aðrir samfélagsþegnar njóta, svo sem réttinum til einkalífs og persónuverndar og möguleikanum á að búa sér líf sem byggir á öryggi, frelsi og mannhelgi. Í frumvarpinu er stigið stórt og alvarlegt skref í átt að mannréttindabrotum, með því að leggja til formfestingu á þvinguðum læknisrannsóknum og heilbrigðisskoðunum. Að sama skapi er gengið nærri siðareglum heilbrigðisstarfsfólks með því að leggja til að upplýsingum úr þeim skoðunum eða rannsóknum verði deilt með þriðja aðila (þ.e. lögreglu). Í frumvarpinu er jafnframt vegið að getu íslenska ríkisins um að rækja skyldu sínu um að senda ekki einstaklinga aftur í hættulegar aðstæður (non-refoulment), sem ítrekað hefur verið bent á að ekki er hægt að gera um án efnislegrar skoðun á hverju máli fyrir sig. Sú tillaga að svipta fólk húsnæði og framfærslu eftir synjun á umsókn er ávísun á heimilisleysi og fátækt, sem er líklegt til að leiða til fjölþættari og flóknari samfélagslegs vanda ef marka má reynsluna hérlendis og erlendis. Umsækjendur um alþjóðlega vernd, og flóttafólk almennt, er samfélagshópur í gríðarlega viðkvæmri stöðu. Fólk á flótta býr jafnan við margþætta mismunun þar sem kyn, kynþáttur, fötlun, þjóðernisuppruni og trú, svo eitthvað sé nefnt, fléttast saman við oft flókna áfallasögu og kerfislægar hindranir sem standa í vegi fyrir öryggi og velferð. Mikilvægt er að taka tillit til þessara þátta þegar opinber stefna í málaflokknum er mótuð. Mikilvægt er að hafna þeirri nálgun sem hér er lögð til en tryggja í staðinn að íslenska ríkið bæði standi við alþjóðlegar skuldbindingar í málefnum flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd, á sama tíma og það nálgist málaflokkinn af virðingu fyrir mannslífum og mannréttindum, óháð uppruna og bakgrunni þeirra sem um ræðir.
- #5Julius Pollux Rothlaender
Ef lög leiða til þess að manneskjur búa ekki yfir sama grundvallarmannréttindum og aðrar, kallast það ekki mismunun og rasismi? Af hverju var mér veitt tækifæri að búa og starfa hér, á meðan það að er komið fram við aðrar manneskjur eins og þær séu að fremja glæp með því að vilja koma hingað og eignast nýtt líf? Mig langar að búa í samfélagi þar sem manneskjur eru velkomnar óháð því hvaðan þær koma. Af hverju er svo miklum tíma eytt í því að semja flókna lagatexta og finna mörg orð yfir því hvernig að halda sem flestum manneskjum frá landinu eða senda þær tilbaka - í staðinn fyrir að t… Lesa alla
Ef lög leiða til þess að manneskjur búa ekki yfir sama grundvallarmannréttindum og aðrar, kallast það ekki mismunun og rasismi? Af hverju var mér veitt tækifæri að búa og starfa hér, á meðan það að er komið fram við aðrar manneskjur eins og þær séu að fremja glæp með því að vilja koma hingað og eignast nýtt líf? Mig langar að búa í samfélagi þar sem manneskjur eru velkomnar óháð því hvaðan þær koma. Af hverju er svo miklum tíma eytt í því að semja flókna lagatexta og finna mörg orð yfir því hvernig að halda sem flestum manneskjum frá landinu eða senda þær tilbaka - í staðinn fyrir að taka sér tíma til að hlusta á sögur og þarfir fólks, gefa þeim tækifæri og hjálpa þeim að byrja nýtt líf, og þar með gera þetta samfélag að betra stað þar sem mannréttindum er virt?
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.