Drög að frumvarpi til laga um lög um breytingu á lögum um meðferð einkmála, nr. 91/1991, lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (ýmsar breytingar)
Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um meðferð einkamála, lögum um meðferð sakamála og lögum um dómstóla.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-243/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. janúar 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 460)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. júní 2022)
Alls bárust fjórar umsagnir um frumvarpið, frá Lögmannafélagi Íslands, Reykjavíkurborg, dr. Hauki Loga Karlssyni og Leifi Runólfssyni lögmanni. Í tilefni ábendinga sem þar komu fram var fellt brott úr frumvarpinu ákvæði sem fjallaði um tilnefningu dómstólasýslunnar í dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara. Aðrar breytingar voru ekki gerðar. Ítarlega er fjallað um umsagnir og viðbrögð við þeim í frumvarpi sem lagt var fyrir Alþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Haukur Logi Karlsson
Gerðar eru þrjár athugasemdir við fyrirliggjandi drög, dags. 23. desember 2021, og lúta þær allar að dómsstólalögum nr. 50/2016. I. Skipan dómnefndar Lagðar eru til breytingar á 11. gr. laganna á þann hátt að fellt verði út það skilyrði að sá nefndarmaður sem dómsstólasýslan tilnefnir í dómnefnd um hæfi umsækjenda um embætti dómara skuli ekki vera starfandi dómari. Tillagan er rökstudd með eftirfarandi hætti í greinargerð: "Þeim áskilnaði var við setningu gildandi laga um dómstóla ætlað að tryggja fjölbreytileika nefndarmanna en reynslan hefur sýnt, þegar litið er til tilnefninga á að… Lesa alla
Gerðar eru þrjár athugasemdir við fyrirliggjandi drög, dags. 23. desember 2021, og lúta þær allar að dómsstólalögum nr. 50/2016. I. Skipan dómnefndar Lagðar eru til breytingar á 11. gr. laganna á þann hátt að fellt verði út það skilyrði að sá nefndarmaður sem dómsstólasýslan tilnefnir í dómnefnd um hæfi umsækjenda um embætti dómara skuli ekki vera starfandi dómari. Tillagan er rökstudd með eftirfarandi hætti í greinargerð: "Þeim áskilnaði var við setningu gildandi laga um dómstóla ætlað að tryggja fjölbreytileika nefndarmanna en reynslan hefur sýnt, þegar litið er til tilnefninga á aðal- og varamönnum síðustu ár, að ekki er nauðsynlegt að kveða á um þetta atriði í lögum. Þá er einnig litið til þess að aðrir tilnefningaraðilar eru ekki bundnir við skilyrði af nokkru tagi, ef frá eru talin skilyrði sem varða kynjasjónarmið, og þykir rétt að það sama eigi við um tilnefningu dómstólasýslunnar." Þvert á það sem haldið er fram í ofangreindum rökstuðningi, þá skal því haldið fram hér að áskilnaður um vissan fjölbreytileika nefndarmann í téðri dómnefnd sé nauðsynlegur til þess að tryggja þá valddreifingu, sem löggjafinn hafði í huga þegar kemur að samsetningu nefndarinnar. Nefndin fer með veigamikið vald í stjórnskipuninni, en hún fer í reynd með stóran hluta valds til skipunar á dómurum. Það er því eðlilegt að löggjafinn hafi komið því þannig fyrir að ein fámenn starfsstétt geti ekki án lýðræðislegs umboðs komið sér í þá stöðu að hafa úrslitavald um hverjir veljist til þess að fara með dómsvald yfir allri þjóðinni. Með því að setja dómsstólasýslunni mörk um hverja hún megi tilnefna var ætlunin að tryggja að sitjandi dómarar hefðu ekki meirihlutavald innan nefndarinnar. Meiri ástæða var til að ætla að dómsstólasýslan, sem stjórnað er af sitjandi dómurum, myndi skipa nefndarmann sem gætti sömu hagsmuna innan nefndarinnar og þeir sem tilnefndir eru af Hæstarétti og Landsrétti, heldur en þeir sem tilnefndir eru af Alþingi og Lögmannafélaginu. Ekki verður séð að þau rök sem voru fyrir þessari skipan í upphafi eigi ekki lengur við, nema síður sé. Jafnvel mætti hugsa sér að ganga lengra í áskilnaði um tilnefningu dómstólasýslunnar, t.d. þannig að hún skuli tilnefna sérfræðing í mannauðsmálum til þess að auka fagmennsku í málsmeðferð nefndarinnar. Það væru enda slíkir hagsmunir sem hægt væri að ætlast til þess að hún ynni að innan hennar, fremur en að stéttarhagsmunum sitjandi dómara, sem þegar er gætt af tveimur af fimm nefndarmönnum. Nái sú tillaga sem er í drögunum fram að ganga leiðir það til röskunar á því valdajafnvægi sem löggjafinn ákvað upphaflega að skyldi ríkja innan dómnefndarinnar. Sú röskun er veigamikil sökum þeirra miklu valda sem nefndin fer með og hún hefði líklega ekki jákvæð áhrif á störf nefndarinnar og ásýndar hennar í augum almennings. II. Varadómarar Lagðar eru til breytingar á 17. gr., 18. gr., 25. gr. og 26. gr. dómstólalaga. Miða þær að því að færa til fyrra horfs skipun varadómara við Hæstarétt og Landsrétt, sem felur í sér að forsetar viðkomandi dómsstóla geti gert tillög til ráðherra um hverjir taki sæti í einstökum málum, eða að dómnefnd um hæfi umsækjenda um embætti dómara geri tillögu um hvern ráðherra setji í embætti dómara til skemmri tíma en 6 mánaða. Núverandi regla bindur forseta dómstólanna og nefndina við slíkar tilnefningar að því leyti að fyrst skuli leitað til dómara sem látið hafa af störfum. Taka má undir með að sú regla hafi ekki verið hugsuð til enda. Það má enda gera ráð fyrir að dómarar sem látið hafa af störfum hafi ekki endilega starfsþrek eða vilja til að halda áfram að sinna dómsstörfum í forföllum. Hitt er þó víst að rökin að baki því að binda hendur þessara aðila við vala á varadómurum eru enn þá til staðar. En þau voru að hætta þótti á að geðþótti réð því hverjir væru settir dómarar til skamms tíma og að þetta vald væri notað til þess að lyfta þóknanlegum framtíðar umsækjendum um dómaraembætti yfir aðra með því að veita þeim dómarareynslu. Óheppilegt væri að endurvekja þessa áru yfir störfum dómsstólanna með því að færa regluna til fyrra horfs og væri það til þess fallið að draga úr trausti á störfum þeirra. Til þess að þjóna þörfum dómsstólanna á varadómurum og til þess að tryggja gagnsæi og sanngirni í vali á slíkum dómendum mætti hugsa sér fastan lista af varadómurum. Hægt væri að útbúa listann þannig að þeim umsækjendum um embætti dómara, sem teljast af dómnefnd hæfir til að taka sæti en hljóta ekki embætti, væri boðið að taka sæti á þessum lista. Jafnframt mætti bjóða dómurum sem látið hafa af störfum að vera á listanum og mögulega mætti auglýsa reglulega eftir fólki á listann, sem yrði þá hæfismetið líkt og dómaraefni af dómnefndinni. Listann ætti að birta opinberlega og skrá ætti hagsmunatengsl og lögfræðileg sérsvið þeirra sem á honum eru. Loks ætti að birta tölfræði í ársskýrslu dómstólasýslunnar um hverjir eru kallaðir til að taka sæti á hverju ári. Gagnsæi og formfesta um störf og val varadómara ætti að koma í veg fyrir þá gagnrýni sem varð tilefni þeirrar reglu sem frumvarpsdrögin leggja til að verði breytt til fyrra horfs. III. Aukastörf dómara Í ljósi þess að verið er að leggja til ýmsar breytingar á dómsstólalögum sakna ég þess að ekki sé horft til breytinga á 45. gr. um aukastörf dómara. Vísa má til þess að nefnd um dómarastörf hefur kallað eftir slíkum breytingum og nokkur umræða hefur verið í samfélagi lögfræðinga um hversu óheppilegir hagsmunaárekstrar geti skapast ef dómarar gegni slíkum störfum í miklu mæli eða fyrir aðila sem þeir ættu ekki að tengjast hagsmunaböndum. Fram hefur komið í opinberri umræðu að dómarar telji sér engu að síður heimilt að gegna umfangsmiklum aukastörfum, en ýmsum þykir sú túlkun ganga í berhögg við lagabókstafinn. Það er því full ástæða til þess að skerpa á því sem þar stendur í 45. gr. dómstólalaga um aukastörf dómara og tilvalið væri að nýta tækifærið núna þegar verið er að leggja til ýmsar breytingar lögunum. Virðingarfyllst, Haukur Logi Karlsson
- #2Reykjavíkurborg
Sjá meðfylgjandi skjal.
- #3Leifur Runólfsson
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.