Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks o. fl.)
Lögð er til breyting á 11. gr. laga um stjórn fiskveiða sem varðar afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks og einnig heimild til færslu aflamarks og veiði tiltekinna tegunda milli ára.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-204/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. nóvember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 596)
Niðurstöður samráðs (1. desember 2022)
Í umsögnum kom fram bæði stuðningur og andstaða við að dregið sé úr sveigjanleika fiskveiðistjórnarkerfisins. Ráðuneytið tekur fram að það er markmið frumvarpsins að draga úr sveigjanleikanum er varðar tegundatilfærslu deilistofa botnfisks, sem er í tegundunum gullkarfi og grálúða. Þá má segja að verið sé að lögfesta heimild til færslu á aflamarki skipa í deilistofnum uppsjávartegunda (kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld) á milli ára. Umsagnir leiddu til breytinga á frumvarpi er varðar uppsetningu ákvæða og hlutfalls heimildar til færslu og umframveiði milli ára.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Landssamband smábátaeigenda
Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Umsögn frá LS við drög að frumvarpi um breytingar á lögumum stjórn fiskveiða, (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks o. fl.). 10. nóvember 2022 Landssamband smábátaeigenda (LS) gerir ekki athugasemdir við meginmarkmið frumvarpsins „að koma í veg fyrir ofveiði á íslenskum deilistofnum botnfisks vegna reglna um tegundatil-færslur og tryggja þannig framfylgni milliríkjasamninga um stofnana“. LS ítrekar óskir um að í greinargerð með frumvarpinu komi fram upplýsingar um leyfilegan afla í gullkarfa og grálúðu á undanförnum fimm á… Lesa alla
Samráðsgátt stjórnvalda Matvælaráðuneytið Umsögn frá LS við drög að frumvarpi um breytingar á lögumum stjórn fiskveiða, (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks o. fl.). 10. nóvember 2022 Landssamband smábátaeigenda (LS) gerir ekki athugasemdir við meginmarkmið frumvarpsins „að koma í veg fyrir ofveiði á íslenskum deilistofnum botnfisks vegna reglna um tegundatil-færslur og tryggja þannig framfylgni milliríkjasamninga um stofnana“. LS ítrekar óskir um að í greinargerð með frumvarpinu komi fram upplýsingar um leyfilegan afla í gullkarfa og grálúðu á undanförnum fimm árum, ásamt afla hvers árs og upplýsingum um hvaða áhrif tegundatilfærsla hefur haft á hverju ári. Einnig verði greint frá hversu mikið magn hefur verið flutt milli ára á tímabilinu. LS veitir því athygli að inn í frumvarpið er bætt við nokkrum ákvæðum sem ekki tengjast meginmarkmiði þess. Af þeim sökum óskar LS eftir að við lokafrágang frumvarpsins verði lagðar til breytingar á 3., 9. og 10. mgr. 11. gr., sem lúta að eftirfarandi samþykktum aðalfundar LS 2022: A. að aflamark sem flutt er til báts fylgi réttur til að flytja 15% yfir á næsta fiskveiðiár. B. að leyfilegt verði að virkja VS afla við strandveiðar. Í umræðum við staflið A var bent á vandkvæði við að stemma það magn sem tekið væri á leigu við veiðar á fiskveiðiárinu. Eðlilegt væri að við flutning aflamarks fylgdi með sami réttur til flutnings heimilda yfir á næsta fiskveiðiár eins og fylgir úthlutuðu aflamarki. Við samþykkt á staflið B var bent á að heimildin myndi tryggja að tekjur af umframafla rynnu til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegsins. Teldi þannig ekki til þeirra 650 þorskígilda sem leyfilegt væri að afla í hverri veiðiferð. Virðingarfyllst Örn Pálsson framkvæmdastjóri
- #2Samtök smærri útgerða
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, mál nr. 204/2022 Í frumvarpinu er lagt til að fella niður heimild til tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks. Samtök smærri útgerða leggjast gegn því að dregið sé úr sveigjaleika fiskveiðistjórnunarkerfisins. Tilgangur frumvarpsins á að vera að bregðast við ofveiði á karfa sem Grænlendingar og Íslendingar deila með sér. Ljóst er að sú ofveiði er að engu leiti á ábyrgð krókaleyfisbáta. Aðrir kostir eða útfærslur hljóta að vera mögulegir til að bregðast við vandamálinu, eða að halda þessarri heimild áfram… Lesa alla
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, mál nr. 204/2022 Í frumvarpinu er lagt til að fella niður heimild til tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks. Samtök smærri útgerða leggjast gegn því að dregið sé úr sveigjaleika fiskveiðistjórnunarkerfisins. Tilgangur frumvarpsins á að vera að bregðast við ofveiði á karfa sem Grænlendingar og Íslendingar deila með sér. Ljóst er að sú ofveiði er að engu leiti á ábyrgð krókaleyfisbáta. Aðrir kostir eða útfærslur hljóta að vera mögulegir til að bregðast við vandamálinu, eða að halda þessarri heimild áfram innan krókaaflamarkskerfisins. Í greinargerð með frumvarpinu segir: ,,Í aflamarkskerfið er innbyggður sveigjanleiki hvað varðar tegundatilfærslu fisktegunda. Meginmarkmiðið með honum er að auðvelda útgerðarmönnum og sjómönnum að fara að settum reglum og stuðla að ábyrgri nýtingu fiskistofna. Með tegundatilfærslu er átt við reglu sem heimilar að afli í einni tegund dragist að ákveðnu marki frá aflaheimildum skips í annarri tegund.“ Þessi sveigjanleiki er mikilvægur þáttur í kerfinu til að bregðast við ófyrirsjáanleika og sveiflum. Samtök smærri útgerða leggjast gegn því að dregið sé úr sveigjaleika fiskveiðistjórnunarkerfisins og leggja til að aðrar leiðir séu skoðaðar. Samtök smærri útgerða eru að mestu leiti samtök útgerða sem stunda veiðar í krókaaflamarki, fyrst og fremst línuveiðar. Veiðarfærið lína ,,velur“ ekki hvaða fiskitegund bítur á krókana og því er sveigjanleiki fiskveiðistjórnunarkerfisins (þótt takmarkaður sé)gríðarlega mikilvægur. Hins vegar má segja að hér kristallist það vandamál sem samtökin (SSU) hafa margoft bent á , að bátar innan krókaaflamarkskerfisins búa við strangar veiðarfæratakmarkanir,eingöngu lína og handfæri eru leyfileg veiðarfæri. Ekki er leyfilegt að færa sig yfir á önnur veiðarfæri, eins og t.d. þorskanet, til þess að forðast afla eins og, í tilviki þessa frumvarps, karfa. Örvar Marteinsson Formaður Samtaka smærri útgerða
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.