Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-120/2022 · Innviðaráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Áformuðu frumvarpi er ætlað að tryggja lagastoð til innleiðingar á Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. Einnig er til skoðunar hvort tilefni séu til að gera breytingar til einföldunar á leyfafyrirkomulagi skv. lögunum. Gildissvið laga nr. 28/2017 er ekki í fullu samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 sem til stendur að innleiða hér á landi. Þannig gilda lög nr. 28/2017, um farmflutninga með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn og leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 km á klst. eða meiri. Vegna þeirra breytinga sem felast í reglugerð (ESB) 2020/1055 er nauðsynlegt að útvíkka gildissvið laganna svo þau taki einnig til farmflutninga milli ríkja þegar leyfð heildarþyngd fer yfir 2,5 tonn.

S-120/2022· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2022 – 27. júl. 2022· 0 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-120/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. júlí 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 279)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2023)

Niðurstaða málsins er í stuttu máli sú að samið var frumvarp sem breytti lögum nr. 28/2017 (sjá mál nr. 156/20221).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-120/2022: Áform um breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 · Alviti