Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-54/2023 · Utanríkisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna

Frumvarpið felur í sér að tvenn lög, sem eru nátengd, og sem varða framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, verða sameinuð í ein lög til að stuðla að samræmingu í löggjöf.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar).

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildstæð rammalöggjöf um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða. Frumvarpið felur í sér að lög um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008 og lög um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, nr. 64/2019 verða sameinuð í ein heildarlög þar sem á einum stað er fjallað um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, þ.m.t. frystingu fjármuna vegna slíkra aðgerða og um skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir. Núgildandi lög um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eru stutt og fjalla fyrst og fremst um innleiðingu alþjóðlegra þvingunaraðgerða hér á landi, þ.m.t. heimild til að setja reglugerðir vegna einstakra þvingunaraðgerða. Þá er stuttlega fjallað um brottfall þvingunaraðgerða, undanþágur og afskráningu aðila af listum yfir aðila sem sæta þvingunaraðgerðum. Í núgildandi lögum um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna eru hins vegar ítarleg ákvæði um framkvæmd frystingar fjármuna, skráningu og afskráningu aðila af listum yfir þvingunaraðgerðir. Með því að sameina þessi tvö lög í ein lög verða ákvæði tveggja laga sem eru nátengd sett fram í heildarlöggjöf með stuðlar að skýrleika og gagnsæi. Lög um framkvæmd þvingunaraðgerða tóku gildi árið 2008 í allt öðru alþjóðlegu umhverfi. Á síðustu árum hefur fjöldi þvingunaraðgerða sem Ísland tekur þátt í hefur stóraukist, ekki síst eftir ólögmæta yfirtöku Rússlands á Krímskaga 2014 og innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022. Það er því einnig mikilvægt að endurskoða ýmis ákvæði framangreindra laga með hliðsjón af framkvæmd síðustu ára og standa með tryggum hætti að innleiðingu slíkra alþjóðlegra skuldbindinga hér á landi. Að miklu leyti er um samræmingu núgildandi laga og ákvæða að ræða en meðal þess sem talin var þörf á skýrari eru ákvæði um framkvæmd eignaupptöku þegar kveðið er á um slíkt í þvingunaraðgerðum. Í auknum mæli kveða alþjóðlegar þvingunaraðgerðir á um eignaupptöku, en engin heimild hefur verið fyrir slíku í íslenskum lögum um þvingunaraðgerðir. Frá innrás Rússa í Úkraínu hefur meðal annars verið kveðið á um haldlagningu sjófara í eigu aðila sem sæta þvingunum o.fl. Lög um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, nr. 64/2019 voru sett í kjölfar úttektar alþjóðlega fjármálaaðgerðarhópsins Financial Action Task Force (FATF) á vörnum Íslands gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem lauk með útgáfu skýrslu í byrjun apríl 2018. Niðurstöður þeirrar úttektar leiddu í ljós að ráðast þurfti í umfangsmiklar aðgerðir til að bregðast við þeim athugasemdum sem gerðar voru við og bæta framkvæmd íslenskra stjórnvalda á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmið laga nr. 64/2019 var að samræma löggjöf og starfsreglur að tilmælum FATF og er það markmið áfram haft að leiðarljósi í þessu frumvarpi. Á árinu 2021 birti FATF skýrslu um eftirfylgni með þeim athugasemdum sem gerðar höfðu verið í úttektarskýrslunni frá apríl 2018 en þar má sjá að Ísland uppfyllir þau tilmæli sem FATF setti fram í skýrslu sinni frá 2018 og vörðuðu þau málefnasvið sem frumvarp þetta tekur til (tilmæli 6 og 7). Löggjöf hér á landi er nú í samræmi við tilmæli FATF er varða þvingunaraðgerðir og frystingu fjármuna og eru þær lagareglur hér felldar inn í frumvarp um nýja heildstæða löggjöf.

S-54/2023· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 10. mar. 2023· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna

Frumvarpið felur í sér að tvenn lög, sem eru nátengd, og sem varða framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, verða sameinuð í ein lög til að stuðla að samræmingu í löggjöf.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-54/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 974)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. júní 2023)

Engar umsagnir bárust í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið fór til þinglegrar meðferðar og var frumvarpið samþykkt 9. júní 2023.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-54/2023: Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna · Alviti