Frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um leigubifreiðar. Markmiðið með frumvarpinu er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-115/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 27. júlí 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 167)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Sigurjóna Guðnadóttir
Umsögn frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar: Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur gerir almennt ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpið en vill benda á eftirfarandi: - Til að öðlast rekstrarleyfi (6. gr) er ein krafan að viðkomandi sé með lögheimili innan EES, en ekki er gerð slík krafa á atvinnuleyfi (5. gr). Ekki verður í ljót bragði séð hvers vegna það er ekki samræmi þarna á milli.. - Í 5. og 6. gr. er fjallað um gott orðspor, en það felur í sér að viðkomandi fái ekki rekstrar- eða atvinnuleyfi ef viðkomandi hafi m.a. gerst sekur um refsiverða háttsemi. Heimil… Lesa alla
Umsögn frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar: Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur gerir almennt ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpið en vill benda á eftirfarandi: - Til að öðlast rekstrarleyfi (6. gr) er ein krafan að viðkomandi sé með lögheimili innan EES, en ekki er gerð slík krafa á atvinnuleyfi (5. gr). Ekki verður í ljót bragði séð hvers vegna það er ekki samræmi þarna á milli.. - Í 5. og 6. gr. er fjallað um gott orðspor, en það felur í sér að viðkomandi fái ekki rekstrar- eða atvinnuleyfi ef viðkomandi hafi m.a. gerst sekur um refsiverða háttsemi. Heimilt er hins vegar að veita leyfi ef brot hefur verið smávægilegt eða meira en 5 ár hafi liðið frá uppkvaðningu dóms. Brot gegn umferðarlögum eru í langflestum tilfellum talin smávægileg, en ekkert er fjallað um það ef umferðarlög séu brotin ítrekað. Að mati sviðsins væri rétt að skoða hvort gera ætti strangari kröfur um að fylgja umferðarlögum fyrir atvinnubílstjóra en aðra, að lágmarki þegar kemur að ítrekuðum brotum.
- #2Alþýðusamband Íslands
Vísað er til fyrri umsagnar ASÍ þá er mál þetta var áður flutt. Í umsögn sambandsins eru sterk rök færð fram fyrir því, að Íslandi sé ekki skylt skv. EES samningnum að ganga eins langt og lagt var til i upphaflegu frumvarpi og í þeim drögum sem nú eru til umsagnar og sem byggja á þskj. 1285 frá 152 löggjafarþingi. Þar er ítrekað vísað til ákvæða í EES samningnum og fullyrt án nokkurs rökstuðnings að þau skilyrði sem sett eru gangi gegn 31.gr. hans. Er þetta m.a. orðað þannig: "Að mati meiri hlutans ganga umrædd skilyrði gegn meginmarkmiðum EES-samstarfsins og sjónarmið hafa komið fram um að þa… Lesa alla
Vísað er til fyrri umsagnar ASÍ þá er mál þetta var áður flutt. Í umsögn sambandsins eru sterk rök færð fram fyrir því, að Íslandi sé ekki skylt skv. EES samningnum að ganga eins langt og lagt var til i upphaflegu frumvarpi og í þeim drögum sem nú eru til umsagnar og sem byggja á þskj. 1285 frá 152 löggjafarþingi. Þar er ítrekað vísað til ákvæða í EES samningnum og fullyrt án nokkurs rökstuðnings að þau skilyrði sem sett eru gangi gegn 31.gr. hans. Er þetta m.a. orðað þannig: "Að mati meiri hlutans ganga umrædd skilyrði gegn meginmarkmiðum EES-samstarfsins og sjónarmið hafa komið fram um að þau gangi beinlínis gegn 31. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið." Um er að ræða fullyrðingu án þess að fyrir henni séu færð lögfræðileg rök sem þó er sú lágmarkskrafa sem gera verður til löggjafans þá er hann leggur mat sitt. Hvað meiri hlutanum "finnst" er uppfyllir ekki þau skilyrði. ASÍ stendur því að fullu við fyrri umsögn sína. Rétt er að benda á, að frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að liðka fyrir starfsemi farveitna eins og t.d. UBER. Starfshættir þeirra eru nú um stundir til rannsóknar sakamálayfirvalda í Frakklandi. Jafnframt hafa dómstólar á Nýja Sjálandi komist að þeirri niðurstöðu að meintir "frjálsir verktakar" í þjónusti UBER séú í reynd "launamenn" en ekki verktakar sbr. https://www.newsroom.co.nz/rebecca-on-uber-case-closing-arguments. Er sú niðurstaða í samræmi við þá dómaframkvæmd sem er að skapast almennt á vesturlöndum. Í þessu efni ber allt að sama brunni: Hið meinta frjálsræði sem frumvarpið er sagt byggjast á felur einfaldlega í sér sköpun vondra og ótryggra starfa og felur ekki annað í sér en að ganga erinda þeirra sem hagnast vilja á sköpun þeirra. Hjálagt er fyrri umsögn ASÍ.
- #3Kristinn Halldór Einarsson
Ályktun sem aðalfundur Blindrafélagsins samþykkti 26. maí 2022. Frumvarp til laga um leigubifreiðar. Aðalfundur Blindrafélagsins haldinn 26. maí 2022 skorar á Alþingi að tryggja að fyrirhuguð ný lög um leigubifreiðar leiði ekki til lakara þjónustustigs en nú er fyrir daglega reglubundna notendur þjónustunnar. Blindrafélagið leggur jafnframt áherslu á að allir rekstrarleyfishafar séu skráðir á leigubifreiðastöð sem hefur starfsleyfi gefið út af Samgöngustofu. Enda segir í 1. grein frumvarpsins að markmið þessara nýju laga sé að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri… Lesa alla
Ályktun sem aðalfundur Blindrafélagsins samþykkti 26. maí 2022. Frumvarp til laga um leigubifreiðar. Aðalfundur Blindrafélagsins haldinn 26. maí 2022 skorar á Alþingi að tryggja að fyrirhuguð ný lög um leigubifreiðar leiði ekki til lakara þjónustustigs en nú er fyrir daglega reglubundna notendur þjónustunnar. Blindrafélagið leggur jafnframt áherslu á að allir rekstrarleyfishafar séu skráðir á leigubifreiðastöð sem hefur starfsleyfi gefið út af Samgöngustofu. Enda segir í 1. grein frumvarpsins að markmið þessara nýju laga sé að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi. Blindrafélagið óttast að ofuráhersla verði á aukið framboð leigubifreiða á háannatímum um helgar. Það muni leiða til lakari rekstargrundvallar og þar með fækkun þeirra sem hafa leigubifreiðaakstur að aðalstarfi, með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum á framboð leigubifreiða á virkum dögum. Þó það sé vissulega neytendum í hag að nægt framboð sé á leigubifreiðum á hagstæðum kjörum þá eru það ekki síður mikilvægir hagsmunir neytenda að nægt framboð sé á leigubílaþjónusta alla daga ársins allan sólahringinn. Að láta þessa mikilvægu almanna þjónustu á óheft markaðstorg mun hafa þau áhrif að framboð mun minnka, þjónustustigið lækka og verð munu hækka. Notendur ferðaþjónustu Blindrafélagsins, sem reiða sig á leigubílaþjónustu hafa mjög ólíkar þarfir og eru mismikið fatlaðir. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að fatlað fólk almennt er útsettara fyrir hverskonar ofbeldi og misnotkun og þá sérstaklega í þjónustusamböndum. Því er það sérstaklega mikilvægt að allur lagarammi varðandi þjónustu og starfsmannahald sem snýr að fötluðu fólki sé skýr og gætt sé að fyllasta öruggi. Þar er ekki eingöngu um að ræða fötlun vegna sjónmissis heldur er einnig um að ræða einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu og einstaklinga, með geðrænar fatlanir og þroskaskerðingar til viðbótar við sjónmissinn. Það að afnema stöðvarskyldu og draga úr kröfum til bílstjóranna mun að mati Blindrafélagsins skerða þjónustuna og öryggi farþeganna, sérílagi farþega sem tilheyra viðkvæmum hópum. https://www.blind.is/is/blindrafelagid/frettir/thrjar-alyktanir-af-adalfundi
- #4Hörður Einarsson
Áður en lengra er farið með mál þetta verður að gera skilmerkilega og málefnalega grein fyrir því, hvort ákvæði núgildandi laga séu ekki samrýmanleg fyrirmælum stjórnarskrár Íslands um atvinnufrelsi og takmarkanir á því. Meðal annars ber við athugun á því að hafa hliðsjón af dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands um það málefni. Virðingarfyllst, Hörður Einarsson
- #5Daníel Orri Einarsson
Reykjavík, 27. júlí 2022 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur í samráðsgátt Heiðraða umhverfis- og samgöngunefnd Bifreiðastjórafélagið Frami og Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra (hér eftir nefnt B.Í.L.S.) vilja ítreka fyrri umsagnir sem þau hafa sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis varðandi fyrri frumvörp sama efnis. Vegna þeirra breytinga sem fram koma í hinu nýja frumvarpi er þó þörf á að gera frekari athugasemdir. Með þessu nýja frumvarpi, er ekki annað að sjá en að ráðherra leggi fram drög að lagabreytingum sem munu gera útaf við leigubifre… Lesa alla
Reykjavík, 27. júlí 2022 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur í samráðsgátt Heiðraða umhverfis- og samgöngunefnd Bifreiðastjórafélagið Frami og Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra (hér eftir nefnt B.Í.L.S.) vilja ítreka fyrri umsagnir sem þau hafa sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis varðandi fyrri frumvörp sama efnis. Vegna þeirra breytinga sem fram koma í hinu nýja frumvarpi er þó þörf á að gera frekari athugasemdir. Með þessu nýja frumvarpi, er ekki annað að sjá en að ráðherra leggi fram drög að lagabreytingum sem munu gera útaf við leigubifreiðaakstur hérlendis með því að heimila rekstrarform sem bjóða heim ójafnri samkeppni. Í frumvarpinu er enn fremur opnað fyrir losarabrag í atvinnugreininni með afnámi vinnuskyldu og takmörkunarsvæða. Í engu hefur verið tekið tillit til margháttaðra athugasemda leigubifreiðastjóra við fyrri frumvörp – þeirrar stéttar er eðli máls samkvæmt hefur mesta þekkingu og reynslu í viðkomandi atvinnugrein. Þá er heldur ekki horft til þeirra hörmulega afleiðinga sem afregluvæðing leigubifreiðaaksturs hefur haft á hinum Norðurlöndunum. Aftur á móti er frumvarpið sniðið eftir tillögum Viðskiptaráðs Íslands og Samkeppniseftirlitsins og lagt til að fyrirtæki megi starfrækja leigubifreiðar og að engin bönd verði á fjölda bifreiða. Það vekur upp áleitnar spurningar hvers vegna sjónarmiðum samtaka atvinnurekenda er fylgt til hlítar en röksemdir og ábendingar stéttar leigubifreiðastjóra og Alþýðusambands Íslands hundsaðar. Frumvarpið er kynnt með þeim orðum að óhjákvæmilegt sé að fara í breytingarnar þar eð Eftirlitsstofnun EFTA kalli eftir því. Íslenskum stjórnvöldum var í lófa lagið að leita undanþága sem þau gerðu ekki. Þau þurfa að svara fyrir eigin mistök í því efni og fá þau leiðrétt – ekki er hægt að leggja ábyrgðina á þeirri yfirsjón á herðar stéttar leigubifreiðastjóra og notenda þeirrar þjónustu er þeir veita. Alþýðusamband Íslands hefur leitt að því sterk rök að Íslandi sé ekki skylt samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að ganga eins langt í breytingum og lagt er til í frumvarpinu. Frami og B.Í.L.S. benda á að fullyrðingar stjórnvalda um þessi atriði séu ekki rökstuddar og vísað er til álits ASÍ um það efni. Starfshópurinn sem þáverandi samgönguráðherra skipaði (2017) og vann að skýrslu um heildarendurskoðun á íslenskum lögum um leigubifreiðar (2018) tók ekkert mið af svartri atvinnustarfsemi sem vitanlega skekkir allan markaðinn. Af þeirri ástæðu eru niðurstöður starfshópsins ómarktækar. Sama má segja um greinagerð frumvarps þess sem hér um ræðir, þar er talað í ályktunum og líkindum, í stað þess að taka til skoðunar þær afleiðingar sem nú liggja fyrir af nýlegum lagabreytingum á hinum Norðurlöndum sama efnis. Eins og fram hefur komið í fréttum frá Noregi, standa stjórnvöld fyrir breytingum á þó nýlegum lögum um leigubifreiðar í ljósi þeirra hörmulegu afleiðinga sem afregluvæðing leigubifreiðaaksturs þar í landi hafði í för með sér. Í umsögn félaga íslenskra leigubifreiðastjóra við frumvarpið, sem lagt var fram á síðasta þingi, var rækilega fjallað um stöðuna í Noregi, en sem fyrr segir er þeirra alvarlegu athugasemda í engu getið í þeim gögnum er þetta frumvarp byggir á. Enn og aftur eru sjónarmið stéttarinnar hundsuð. Nýjar fréttir af hneykslismálum Uber og áhrifa stjórnanda þeirrar farveitu á stjórnmálamenn og blaðamenn víðs vegar Evrópu, ættu út af fyrir sig að vera næg ástæða til að falla frá áformum um afregluvæðingu leigubifreiðaaksturs hér á landi – sér í lagi að koma í veg fyrir að útlend stórfyrirtæki á borð við Uber fái að hasla sér völl hérlendis. Líklegt má telja að íslenskir ráðamenn – líkt og ráðamenn víðs vegar annars staðar í álfunni – séu undir áhrifum af undirróðursstarfsemi Uber. Frá farveitum í Noregi eru þær fréttir að skattayfirvöld fá engar upplýsingar um akstur né tekjur þeirra farveitna sem þar starfa, svo sem Uber, Bolt og Yango, þvert á sérstakt ákvæði sem sett var í lög til að tryggja eftirlit í hinu nýja lagaumhverfi sem tók gildi í Noregi nóvember 2020. Af öllu framansögðu má ljóst vera þvílíkt feigðarflan samþykkt þessa frumvarps yrði fyrir leigubifreiðaakstur hér á landi. Frami og B.Í.L.S. leggjast því alfarið gegn frumvarpinu og beina því til ráðamanna þess í stað að leita leiða til að taka á ólöglegri starfsemi í atvinnugreininni með það að markmiði að uppræta hana. Hagur heillar starfstéttar og neytenda fara hér fyllilega saman, enda hafa leigubifreiðastjórar um áratugaskeið sinnt þjónustu af mikill fagmennsku í krafti núverandi kerfis sem myndar mikilvægan þátt í samgönguinnviðum landsins. Virðingarfyllst f.h. Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagsins Frama, Daníel Orri Einarsson formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.