Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-222/2021 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um landamæri

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um landamæri.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um landamæri. Sérstök lög um landamæri hafa ekki verið sett áður en hugmyndin er þó ekki ný. Undanfarin ár hafa málefni landamæra tekið örum breytingum og leitt af sér fjölmargar áskoranir, m.a. vegna aukins eftirlits með löglegri umferð um landamæri. Áherslan á Schengen-vettvangnum hefur verið á stefnumótun, upplýsingaskipti, nýtingu tækninýjunga og styrkingu landamæraeftirlits, m.a. með því að styrkja fyrirliggjandi upplýsingakerfi samstarfsins, kynna ný til sögunnar og efla Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex). Þróun hér á landi í málefnum landamæra og landamæraeftirlits hefur tekið mið af stefnu Schengen-samstarfsins og þróun þess. Megintilgangur frumvarps til laga um landamæri er að tryggja að landamæravarsla sé framkvæmd með öruggum og skilvirkum hætti og til samræmis við lög, reglugerðir og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Lög um landamæri þykja til þess fallin að kveða með skýrum hætti á um réttindi og skyldur bæði borgara og ríkisins þegar kemur að för einstaklinga yfir innri og ytri landamæri Íslands. Almennt gilda reglurnar bæði fyrir íslenska ríkisborgara sem og útlendinga, nema sérstaklega sé kveðið á um annað í ákvæðum frumvarpsins. Efni frumvarpsins tekur að miklu leyti mið af núgildandi lögum og reglum sem gilda um för einstaklinga yfir landamæri, þá aðallega lögum um útlendinga, nr. 80/2016 og reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/399 um för fólks yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar). Með frumvarpinu er ekki síður stefnt að því að styrkja lagastoðina fyrir reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, setja lagastoð fyrir reglugerðir sem ætla má að þurfi að innleiða á grundvelli laganna, m.a. vegna þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi og innleiða ákveðin efnisákvæði Schengen-gerða um komu og brottfararkerfi á ytri landamærum, sbr. reglugerð (ESB) 2017/2225 og (ESB) 2017/2226, um ferðaheimildarkerfi (ETIAS) sbr. reglugerð (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2018/1241 og um samvirkni þeirra við önnur upplýsingakerfi ESB, sbr. reglugerð (ESB) 2019/817 og (ESB) 2019/818. Fyrrnefndar gerðir verða síðan innleiddar í íslenskan rétt með reglugerðum sem munu hafa lagastoð í lögum um landamæri, verði frumvarpið óbreytt að lögum, enda er slík innleiðing nauðsynleg til að innleiða gerðirnar að fullu. Ísland er skuldbundið til að innleiða framangreindar gerðir á grundvelli Schengen-samstarfsins. Vegna náins samspils við lög um útlendinga eru jafnframt lagðar til ákveðnar breytingar á lögum um útlendinga i frumvarpinu.

S-222/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2021 – 12. jan. 2022· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um landamæri

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um landamæri.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-222/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 536)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. ágúst 2022)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um landamæri á 152. löggjafarþingi. Tekið hafði verið tillit til nokkurra athugasemda sem bárust um samráðsgáttina. Frumvarpið náði ekki fram að ganga fyrir þinglok.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-222/2021: Drög að frumvarpi til laga um landamæri · Alviti