Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (rafvæðing smábáta)
Áform um lagasetningu snúa að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða sem mynda eiga hvata til rafvæðingar smábáta á strandveiðum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-147/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 1. september 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 539)
Niðurstöður samráðs (8. september 2022)
Sjá niðurstöðuskjal.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Þorsteinn Másson
Meðfylgjandi er umsögn Bláma vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um stjórn fiskveiða.
- #2Sigurjón Þórðarson
Auka á frelsi og afleggja óþörf og órökstudd atvinnuhöft Ef það er raunverulegur vilji stjórnvalda, að efla vistvænar handfæraveiðar smábáta í þágu; umhverfisins, sjávarbyggðanna og almenns þjóðfélagslegs ávinnings, þá væri nærtækast að opnað væri fyrir alfrjálsar handfærveiðar 8 mánuði á ári. Hvernig sem á það er litið þá er ekki nokkur lifandi leið að stunda eitthvað sem kallað er ofveiði á smábátum sem notast við 12 til 16 öngla til veiða og veiðarnar er aðeins hægt að stunda í birtu og í góðu veðri. Aukið frelsi myndi án nokkurs vafa leiða til þess að ekki væri langt að bíða þess að… Lesa alla
Auka á frelsi og afleggja óþörf og órökstudd atvinnuhöft Ef það er raunverulegur vilji stjórnvalda, að efla vistvænar handfæraveiðar smábáta í þágu; umhverfisins, sjávarbyggðanna og almenns þjóðfélagslegs ávinnings, þá væri nærtækast að opnað væri fyrir alfrjálsar handfærveiðar 8 mánuði á ári. Hvernig sem á það er litið þá er ekki nokkur lifandi leið að stunda eitthvað sem kallað er ofveiði á smábátum sem notast við 12 til 16 öngla til veiða og veiðarnar er aðeins hægt að stunda í birtu og í góðu veðri. Aukið frelsi myndi án nokkurs vafa leiða til þess að ekki væri langt að bíða þess að handfærabátar yrðu rafvæddir. Tækni til þess er nú til staðar, en stofnkostnaður á búnaði er um 50 milljónir króna. Tillagan að lagasetningu sem hér er til umfjöllunar er að óbreyttu ómerkileg syndarmennska. Hún felur í sér að strandveiðibátar sem leggja í hátt í 50 milljón kr. fjárfestingu, við að breyta bátum úr því að vera knúnir jarðefnaeldsneyti og rafvæðast, fá að veiða 100 kg meira í hverri veiðiferð en ella. Væntanlega er síðan gert ráð fyrir að sú aukning verði tekin af öðrum strandveiðibátum. Það er tímaeyðsla fyrir ráðuneytið að vinna að frumvarpi á þessum forsendum og ábyrgðahluti að fara að ætla þingmönnum þjóðarinnar að fjalla um það. Sigurjón Þórðarson, líffræðingur
- #3Axel Helgason
Eins og þessi áform eru kynnt hér í samráðsgátt, munu þau ekki skila neinum árangri í átt að rafvæðingu smábáta og eru ástæðurnar aðallega eftirfarandi að mínu mati: Sá búnaður sem til er til að rafvæða smábáta er dýr og engin mun fjárfesta í honum með engan fyrirsjáanleika í að borga búnaðin upp. En áformin gera einungis ráð fyrir einu ári (strandveiðitímabilið 2023) með ívilnun upp á 100kg í hverri veiðiferð sem eins og vanalega verður óvissa um hve margar verða. Fyrirvarinn fyrir næsta strandveiðitímabil er of skammur og ef þessi drög verða að frumvarpi, þá á eftir að leggja það fyrir… Lesa alla
Eins og þessi áform eru kynnt hér í samráðsgátt, munu þau ekki skila neinum árangri í átt að rafvæðingu smábáta og eru ástæðurnar aðallega eftirfarandi að mínu mati: Sá búnaður sem til er til að rafvæða smábáta er dýr og engin mun fjárfesta í honum með engan fyrirsjáanleika í að borga búnaðin upp. En áformin gera einungis ráð fyrir einu ári (strandveiðitímabilið 2023) með ívilnun upp á 100kg í hverri veiðiferð sem eins og vanalega verður óvissa um hve margar verða. Fyrirvarinn fyrir næsta strandveiðitímabil er of skammur og ef þessi drög verða að frumvarpi, þá á eftir að leggja það fyrir Alþingi og því ljóst að einungis nokkrir mánuðir munu verða til stefnu til kaupa á búnaði og til breytinga á bátum fyrir næsta tímabil. Breyta þarf núverandi fyrirkomulagi strandveiða ef möguleiki á að vera á að nota rafknúna báta til veiðanna. En haghvæmur ganghraði báta sem eru knúnir rafmagni er um 4-6 mílur og farsviðið því mjög takmarkað. En með núverandi fyrirkomulagi veiðana er ekki leitast við að hámarka afla þegar veiðanleikin er mestur hvað varðar fiskgengd og tíðarfar sem er mjög misjafnt milli landshluta eins og marg oft hefur komið fram. Til að mynda raunhæfa hvata til rafvæðingar smábáta mætti taka til skoðunar eftirfarandi: Gera að lágmarki 10 ára áætlun um ívilnanir til þeirra sem fjárfesta í að rafvæða sína báta. Festa þyrfti dagafjölda sem rafvæddir bátar fengu úthlutað á hverju ári og auka sveigjanleika varðandi magn í hverri veiðiferð. Veiðitímabilið þyrfti að lengjast og vera frá miðjum mars til loka september. Rafknúnir bátar þyrftu að hafa heimild til að vera útbúnir varaafli (dísel rafstöð) sem þessi drög virðast ekki gera ráð fyrir. Regluverk um smíði báta þyrfti að endurskoða með það að markmiði að smíði þeirra verði raunhæf, hagkvæm og uppfylli kröfur um öryggi. Undirritaður er plastbátasmiður og útgerðaraðili smábáts. Axel Helgason
- #4Hjörtur Sævar Steinason
Hvað er HYBRID Hvað er Strandveiðibátur Hvað er Strandveiðibátur annað en HYBRID ??? Nú á tímum orku þetta og orku hitt er rétt að vekja athygli á því að strandveiði bátar hafa allatíð verið TVÍORKUSKIP eða HYBRID !!! Eins og það heitir í dag. Löngu fyrir okkar tíma er menn ekki einu sinni hugsuðu um Hybrid. Það bara var ekki til. Þá voru strandveiði bátar orðnir HYBRID. Því við Strandveiði sjómenn erum Umhverfis vænir, okkur er annt um Jörðina og það sem á henni þrífst. Fólk var varla byrjað að hugsa um þessa hluti þá. Það var varla orðið til. Þá vildu menn allt til þess gera svo menn g… Lesa alla
Hvað er HYBRID Hvað er Strandveiðibátur Hvað er Strandveiðibátur annað en HYBRID ??? Nú á tímum orku þetta og orku hitt er rétt að vekja athygli á því að strandveiði bátar hafa allatíð verið TVÍORKUSKIP eða HYBRID !!! Eins og það heitir í dag. Löngu fyrir okkar tíma er menn ekki einu sinni hugsuðu um Hybrid. Það bara var ekki til. Þá voru strandveiði bátar orðnir HYBRID. Því við Strandveiði sjómenn erum Umhverfis vænir, okkur er annt um Jörðina og það sem á henni þrífst. Fólk var varla byrjað að hugsa um þessa hluti þá. Það var varla orðið til. Þá vildu menn allt til þess gera svo menn gætu drepið á vélum meðan fiskað væri. Svo síðar komu rafmagns vindur og svo smám saman tölvuvæddust vindurnar. Og þá þurfti töluvert rafmagn til að þær gætu unnið þann tíma sem á veiðum stóð. Svo ekki þyrfti að vera með vélar bátanna í gangi og losna við auka mengun á meðan fiskað var voru settir 2 auka mjög öflugir og stórir rafgeymar fyrir vindurnar. Og þannig er það enn þann dag í dag allt til að minka UMHVERFIS og KOLEFNISSPORIÐ svo við tölum nú ekki um GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDIR !!! “Svo ætlar ráðherra sjávar að verðlauna þá smábáta eða fiskiskip sem knúin eru rafmagni sem aðalaflgjafa að sækja um að landa 750 kg í þorskígildum talið af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð á strandveiðum á fiskveiðiárinu 2022/2023 í stað 650 kg.” En í raun má segja að við notum rafmagn sem aðalaflgjafa, því við eiðum töluvert mikið meiri tíma í veiðarnar en siglingu bátsins !!! Það er ekki hægt að tala um vélina sem knýr bátinn sem aðalaflgjafa þegar við notum vindurnar við veiðar megnið af dags prógrammi. Megnið af deginum erum við við veiðar. Svo góðir hálsar við Strandveiði Sjómenn erum svo sannarlega á HYBRID bátum !!! Meðan tæknin er ekki komin lengra og fyrirsjáanleikinn ekki meiri en raunin er er rökréttast að við notum okkar HYBRID báta áfram
- #5Kolbeinn Óttarsson Proppé
Grænafl ehf. fagnar áformum um hagræna hvata til rafvæðingar strandveiðibáta. Ljóst er að ef markmið stjórnvalda um orkuskipti í sjávarútvegi eiga að nást, þarf að beita öllum þeim aðferðum sem stjórnvöld búa yfir til að styðja við umbreytinguna. Þar skipta hagrænir hvatar miklu, en einnig stuðningur við umskipti sem og það að beita skatta- og gjaldakerfi til að hvetja til notkunar vistvænnar orku. Grænafl ehf. vinnur að breytingu eldri báta þannig að þeir keyri á rafmagni eingöngu og fagnar öllum skrefum í átt til þess að draga úr útblæstri strandveiðiflotans. Ljóst er að það er kostnaðars… Lesa alla
Grænafl ehf. fagnar áformum um hagræna hvata til rafvæðingar strandveiðibáta. Ljóst er að ef markmið stjórnvalda um orkuskipti í sjávarútvegi eiga að nást, þarf að beita öllum þeim aðferðum sem stjórnvöld búa yfir til að styðja við umbreytinguna. Þar skipta hagrænir hvatar miklu, en einnig stuðningur við umskipti sem og það að beita skatta- og gjaldakerfi til að hvetja til notkunar vistvænnar orku. Grænafl ehf. vinnur að breytingu eldri báta þannig að þeir keyri á rafmagni eingöngu og fagnar öllum skrefum í átt til þess að draga úr útblæstri strandveiðiflotans. Ljóst er að það er kostnaðarsamt að rafvæða strandveiðibát, hvort heldur sem eldri báti er breytt eða fjárfest er í nýjum. Að auka heimildir í hverri veiðiferð um 100 kg. er skref í rétta átt, en ef stjórnvöld vilja hraða orkuskiptum þurfa hagrænu hvatarnir að vera enn meiri. Grænafl ehf. hvetur matvælaráðuneytið til að beita sér fyrir enn meiri ívilnunum fyrir báta sem keyra á vistvænni orku og hefja viðræður við önnur ráðuneyti um niðurfellingu gjalda og tolla á nauðsynlegum búnaði, líkt og gert var varðandi rafvæðingu bílaflotans. Helsti ljóður á ráði þessara annars göfugu áforma er hve stutt þau vara. Ef ætlunin er að hvetja eigendur smábáta til að fara í kostnaðarsamar breytingar á bátum sínum, liggur ljóst fyrir að hagrænu hvatarnir þurfa að gilda lengur en eina vertíð. Sá ábati sem aukaskammturinn gefur dugar skammt upp í þann kostnað og líklegasta niðurstaðan er því að fáir, ef nokkrir, muni sjá sér hag í því að leggja út í þann mikla kostnað sem breytingunum fylgir. Grænafl ehf. hvetur til þess að í stað bráðabirgðaákvæðis verði lögunum breytt og aukaskammturinn gerður varanlegur, auk þess sem bætt verði í hann þannig að hvatinn til orkuskipta verði enn meiri. Að lokum vill Grænafl nýta tækifærið til að hvetja til enn frekari aðgerða í þessum efnum. Besta leiðin til að ýta við fyrirtækjum til þess að fara í breytingar er að setja skýr mælanleg markmið til lengri tíma. Þannig gæti ráðherra sett þá stefnu að eftir ákveðinn árafjölda þyrftu allir strandveiðibátar að notast við vistvæna orkugjafa. Með slíku yrðu markmið stjórnvalda ljós, en um leið yrði fólki gefinn nægur tími til að bregðast við. Má í þeim efnum horfa til samþykkta um að árið 2030 verði nýskráning bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti óheimil. Virðingarfyllst, Kolbeinn Óttarsson Proppé Framkvæmdastjóri Grænafls
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.