Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-33/2022· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. feb. 2022 – 28. feb. 2022· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur)
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.
- Komið til AlþingisS-32/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. feb. 2022 – 18. feb. 2022· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 (Mannvirkjaskrá)
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til umsagnar. Fyrirhugaðar breytingar eru nauðsynlegar til að greiða götu nýrrar mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Komið til AlþingisS-31/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. feb. 2022 – 18. feb. 2022· 9 umsagnir
Áform um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 - bætt nýting virkjana
Áformað er að vinna frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun á þann hátt að tæknilega aflaukningar virkjana í rekstri þurfi ekki að fara í gegnum ferli áætlunarinnar.
- Komið til AlþingisS-26/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2022 – 15. feb. 2022· 25 umsagnir
Sóttvarnalög
Frumvarp til laga um sóttvarnir sem hér er til kynningar og samráðs er samið af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skipaður var 18. júní 2021 og skilaði drögum að frumvarpi 1. febrúar 2022.
- Komið til AlþingisS-24/2022· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2022 – 14. feb. 2022· 1 umsögn
Áform um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs
Markmiðið með frumvarpi til breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála fái viðhlítandi heimildir í lögum og að löggjöfin verði
- Komið til AlþingisS-23/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2022 – 11. feb. 2022· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs (losun úrgangs í náttúrunni)
Umhverfis- og auðindaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs (losun úrgangs í náttúrunni).
- Komið til AlþingisS-21/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2022 – 11. feb. 2022· 6 umsagnir
Áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar
Umhverfis- og auðindaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.
- Komið til AlþingisS-20/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2022 – 11. feb. 2022· 26 umsagnir
Útlendingalög (alþjóðleg vernd)
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd) og lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002 (atvinnuleyfi). Endurflutt að hluta.
- Komið til AlþingisS-18/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. jan. 2022 – 8. feb. 2022· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla)
Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru.
- Komið til AlþingisS-17/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2022 – 4. feb. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðar á bláuggatúnfiski)
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið að drögum að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. vegna mögulegra veiða á bláuggatúnfiski.
- Komið til AlþingisS-14/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2022 – 4. feb. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um greiðslureikninga til innleiðingar á tilskipun 2014/92/EB (e. Payment Accounts Directive).
- Komið til AlþingisS-16/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. jan. 2022 – 4. feb. 2022· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991.
- Komið til AlþingisS-15/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. jan. 2022 – 7. feb. 2022· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (leiðrétting o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um loftslagsmál. Lagt er til að orðaröðun í 6. gr. b. laganna verði lagfærð og að innleidd verði EES-gerð sem breytir tilskipun 2003/87/EB.
- Komið til AlþingisS-10/2022· Annað· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2022 – 8. feb. 2022· 18 umsagnir
Drög að þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum hinsegin fólks
Í framkvæmdaáætluninni eru kynnt verkefni sem ætlað er að skilgreina stefnu stjórnvalda og lýsa tilteknum verkefnum sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks í samfélaginu eða fela í sér beinar aðgerðir til hagsbóta fyrir samfélag hinsegin fólks.
- Komið til AlþingisS-11/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. jan. 2022 – 31. jan. 2022· 24 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (stjórn Landspítala)
Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kemur fram að skipuð verði fagleg stjórn yfir Landspítala að norrænni fyrirmynd. Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar þess efnis.
- Komið til AlþingisS-8/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2022 – 7. feb. 2022· 10 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða
Lögð er í samráðsgátt drög að tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða.
- Komið til AlþingisS-9/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. jan. 2022 – 21. jan. 2022· 130 umsagnir
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu
Lagðar eru til breytingar á reikningshaldi Kirkjugarðasjóðs. Jafnframt er lagt til að felld verði brott ákvæði um Bálfarafélag Íslands.
- Komið til AlþingisS-7/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2022 – 26. jan. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerð (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF).
- Komið til AlþingisS-5/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. jan. 2022 – 20. jan. 2022· 1 umsögn
Áform um lagasetningu um breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF)
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF).
- Komið til AlþingisS-4/2022· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. jan. 2022 – 18. jan. 2022· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (Veiðar á bláuggatúnfiski)
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. vegna mögulegra veiða á bláuggatúnfiski.
- Komið til AlþingisS-1/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. jan. 2022 – 18. jan. 2022· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um peningamarkaðssjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um peningamarkaðssjóði sem mun innleiða reglugerð (ESB) 2017/1131 (reglugerð um peningamarkaðssjóði).
- Komið til AlþingisS-243/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. des. 2021 – 10. jan. 2022· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um lög um breytingu á lögum um meðferð einkmála, nr. 91/1991, lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (ýmsar breytingar)
Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um meðferð einkamála, lögum um meðferð sakamála og lögum um dómstóla.
- Komið til AlþingisS-222/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2021 – 12. jan. 2022· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um landamæri
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um landamæri.
- Komið til AlþingisS-240/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2021 – 7. jan. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mútuboð til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðaviðskiptum)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery)
- Komið til AlþingisS-239/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. des. 2021 – 7. jan. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði (ESB-endurbótalýsing)
Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð (ESB) 2021/337 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 að því er varðar endurbótalýsingu ESB verði innleidd í íslenskan rétt.
- Komið til AlþingisS-238/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. des. 2021 – 14. jan. 2022· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
Áformað er að breyta sveitarstjórnarlögum á þann veg að mælt verði með skýrari hætti fyrir um hvaða reglur skuli gilda um íbúakosningar.
- Komið til AlþingisS-234/2021· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. des. 2021 – 7. jan. 2022· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál
Áformað er að leggja til breytingar á lögum um loftslagsmál. Lagt er til að orðaröðun í 6. gr. b. laganna verði lagfærð og að innleidd verði ákvæði EES-gerðar sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
- Komið til AlþingisS-232/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. des. 2021 – 5. jan. 2022· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fiskeldi, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana (leyfisveiting til bráðabirgða)
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um fiskeldi og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
- Komið til AlþingisS-228/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 3. des. 2021 – 17. des. 2021· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003.
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003. Með frumvarpinu verður leitast við að einfalda stjórnsýslu og skýra ábyrgð að því er varðar vakstöð siglinga. Þá er talin þörf á að skýra ákvæði laganna um árgjald.
- Komið til AlþingisS-227/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 3. des. 2021 – 17. des. 2021· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á hafnalögum. Innleidd verða ákvæði EES-gerðar um veitingu hafnarþjónustu og um gagnsæi í fjármálum hafna. Auk þess mun frumvarpið hafa að geyma ákvæði um gjaldtöku af fiskeldi, rafræna vöktun, stjórnsýslukærur vegna gjaldskrárákvarðana, skilgreiningu hafnarsvæða o.fl.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)