Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-238/2021 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011

Áformað er að breyta sveitarstjórnarlögum á þann veg að mælt verði með skýrari hætti fyrir um hvaða reglur skuli gilda um íbúakosningar.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er í þremur tilvikum gert ráð fyrir íbúakosningum. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir kosningum um skipan nefndar samkvæmt 38. gr. laganna, í öðru lagi kosningum um einstök málefni samkvæmt 107. gr. og í þriðja lagi kosningum um sameiningu sveitarfélaga samkvæmt 125. gr. Fengin reynsla hefur leitt það í ljós að þær reglur sem nú gilda um íbúakosningar mættu vera skýrari. Jafnframt hefur komið fram að þær kröfur sem gerðar eru til íbúakosninga á grundvelli núgildandi sveitarstjórnarlaga kunna að vera óþarflega miklar sem leitt hefur til þess að sveitarfélög nýta sér ekki þau úrræði sem sveitarstjórnarlögin bjóða til þess að kanna vilja íbúa, heldur halda þess í stað sérstakar kannanir. Með þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga nr. 21/150 samþykkti Alþingi meðal annars að stefna að því að sveitarfélög á Íslandi yrðu öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi. Í samræmi við það markmið þykir mikilvægt að þau ákvæði sveitarstjórnarlaga sem mæla fyrir um íbúakosningar séu skýr og að allri óvissu um framkvæmd slíkra kosninga verði eytt. Vinna er því hafin, á grundvelli framangreindra sjónarmiða, að útfærslu þeirra reglna sem eiga að gilda um íbúakosningar.

S-238/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. des. 2021 – 14. jan. 2022· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011

Áformað er að breyta sveitarstjórnarlögum á þann veg að mælt verði með skýrari hætti fyrir um hvaða reglur skuli gilda um íbúakosningar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-238/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 571)
Niðurstöður samráðs (4. mars 2022)

Þrjár umsagnir bárust um áform þessi og er umsagnaraðilum þakkað fyrir þær. Drög að frumvarpi til laga var birt í Samráðsgátt 4. mars 2022 til umsagnar (sjá mál nr. 53/2022).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Gísli Halldór Halldórsson

    Í frummati á áhrifum er getið um fylgiskjal en það fylgiskjal er ekki sjáanlegt í gáttinni. Eingöngu er getið um áhrif á ríkissjóð en ekkert minnst á sveitarsjóði eða aðra þætti sem gætu orðið fyrir áhrifum, s.s. framkvæmd kosninga, aðgengi kjósenda eða því um líkt.

  • #2Akureyrarbær

    Bæjarráð Akureyrarbæjar telur mjög mikilvægt að endurskoða lagaumhverfi íbúakosninga til þess að þær gagnist sem hluti af íbúasamráði. Bæjarráð fagnar því fyrirhuguðum áformum um breytingu á X. kafla sveitarstjórnarlaga um samráð við íbúa.

  • #3Sveitarfélagið Skagafjörður

    Á 998. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 12. janúar 2022 var tekið fyrir mál 238/2021,, Áform um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011". Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir markmið frumvarpsins. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-238/2021: Áform um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 · Alviti