Áform um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 - bætt nýting virkjana
Áformað er að vinna frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun á þann hátt að tæknilega aflaukningar virkjana í rekstri þurfi ekki að fara í gegnum ferli áætlunarinnar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-31/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 583)
Niðurstöður samráðs (21. febrúar 2022)
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun var kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 21. febrúar 2022. Með hliðsjón af umsögnum um áformaskjal var sú leið farin að leggja til að ekki eingöngu tæknilegar aflaukningar virkjana verði undanskildar ferli rammaáætlunar heldur einnig stækkanir virkjana í rekstri sem hafa eingöngu áhrif á svæði sem þegar hefur verið raskað af viðkomandi virkjun. Stækkanir virkjana sem gera það að verkum að uppsett rafal verði yfir 10 MW í vatnsafli eða 50 MW í jarðvarma þurfa hins vegar ávallt að fá umfjöllun í rammaáætlun.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Þorbergur Steinn Leifsson
Þetta er ákaflega þörf og góð breyting á lögunum um rammaáætlun. Rammaáætlun á að vera aðferð til að velja staði og/eða svæði til að virkja eða friða gegn virkjunum og reyndar allri orkunýtingu sem reyndar kann að vera tvíbent. Þegar staður eða svæði hefur verið sett í nýtingaflokk skiptir uppsetta aflið litlu máli varðandi umhverfisáhrif, umfram það sem tekið verður á í mati á umhverfisáhrifum. Það væri hinsvegar líka æskilegt að skýra og einfalda fleiri atriði. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig Rammaáætlun tekur á hækkun inntakslóna, stækkun miðlunarlóna eða nýjum miðlunarlónum inn… Lesa alla
Þetta er ákaflega þörf og góð breyting á lögunum um rammaáætlun. Rammaáætlun á að vera aðferð til að velja staði og/eða svæði til að virkja eða friða gegn virkjunum og reyndar allri orkunýtingu sem reyndar kann að vera tvíbent. Þegar staður eða svæði hefur verið sett í nýtingaflokk skiptir uppsetta aflið litlu máli varðandi umhverfisáhrif, umfram það sem tekið verður á í mati á umhverfisáhrifum. Það væri hinsvegar líka æskilegt að skýra og einfalda fleiri atriði. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig Rammaáætlun tekur á hækkun inntakslóna, stækkun miðlunarlóna eða nýjum miðlunarlónum innan virkjanasvæðisins, eða veitingu vatns inna svæða eða frá nálægum svæðum, sem þegar hefur verið sett í nýtingarflokk. Slíkar framkvæmdir hafa aðeins óbeina skírskotun í MW, þó þær geti með aflaukningu virkjana verið grundvöllur miklu stærri aflaukningar en 10 MW. Þessar framkvæmdir eru oft grundvöllur aflaukningar og oft tengdar henni. Slíkar framkvæmdir ætti ekki að þurfa að taka sérstaklega fyrir í rammaáætlun á svæðum sem þegar hafa verið sett í nýtingarflokk, mat á umhverfisáhrifum ætti að vera nægjanlegt. Eðlilegt væri að miða við tilteknar GWh, td. 70 GWh (sem jafngildir um 10 MW) eða tiltekið hlutfall aukinnar orkuframleiðslu, til að þurfa ekki að fara sérstaklega í rammaáætlun. Þorbergur Steinn Leifsson Verkfræðingur Verkís
- #2Sveitarfélagið Skagafjörður
Á 1002. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 9. febrúar 2022 var eftirfarandi bókað um mál 31/2022 til samráðs "Áform um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 - bætt nýting virkjana". Byggðarráð tekur undir meginmarkmið frumvarpsins. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #3Landvernd, landgræðslu- og umhverisverndarsamtök Íslands
Vinsamlegast sjá umsögn Landverndar í viðhengi.
- #4Náttúrufræðistofnun Íslands
Sjá viðhengi.
- #5Verkfræðingafélag Íslands
Í viðhengi er umsögn Verkfræðingafélags Íslands.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.