Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-17/2022 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðar á bláuggatúnfiski)

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið að drögum að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. vegna mögulegra veiða á bláuggatúnfiski.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar).

Ísland hefur náð að tryggja sér umtalsverðar veiðiheimildir af bláuggatúnfiski á vettvangi Atlantshafs-túnfiskveiðiráðsins (ICCAT). Undanfarin ár hafa íslensk skip þó ekki stundað þessar veiðar, þannig að íslenskur sjávarútvegur nýtur ekki góðs af þessum veiðiheimildum og gætu þær rýrnað eða horfið vegna þess. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur verið með til skoðunar valkosti um hvernig hægt sé að stuðla að því að túnfiskveiðar íslenskra skipa hefjist að nýju og verði hluti af íslenskum sjávarútvegi til framtíðar, með fullnýtingu hlutdeildar Íslands. Frumvarpsdrögin leggja til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Gert er ráð fyrir að ákvæðin verði tímabundin bráðabirgðaákvæði sem miða að því að heimilt verði í þessum sérstöku aðstæðum sem uppi eru að veiðiheimildir eru ekki nýttar að íslenskir aðilar geti tekið á leigu erlend skip til veiðanna, eingöngu til veiða á bláuggatúnfiski skv. heimildum frá ICCAT. Markmiðið er að viðhalda veiðireynslu Íslands, kanna hagkvæmni veiðanna, hvetja til fjárfestinga og byggja upp innlenda sérþekkingu á slíkum veiðum. Áform um lagasetningu ásamt frummati á áhrifum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda frá 5. janúar 2022 til og með 18. janúar 2022 (mál nr. 4/2022).

S-17/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2022 – 4. feb. 2022· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðar á bláuggatúnfiski)

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið að drögum að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. vegna mögulegra veiða á bláuggatúnfiski.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-17/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 451)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. ágúst 2022)

Engar umsagnir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-17/2022: Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðar á bláuggatúnfiski) · Alviti