Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-33/2022 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: desember).

Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á fjórum lagabálkum á málefnasviði félag- og vinnumarkaðsráðuneytisins, nánar tiltekið lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008, og lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Þá eru lagðar til minni háttar breytingar á nýsamþykktum lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021. Ákvæði frumvarpsins hafa það að markmiði að afnema lagalegar hindranir sem tengjast setningu og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, laga um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021, og laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að skapa skilyrði til að bregðast fyrr við tilteknum aðstæðum eða erfiðleikum í lífi barns með viðeigandi stuðningi þegar þörf þykir. Þá er ætlunin með frumvarpinu að bæta og skýra réttindi barna.

S-33/2022· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. feb. 2022 – 28. feb. 2022· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 530)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. ágúst 2022)

Frumvarpið var samþykkt á Alþingi 15. júní 2022

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.