Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-8/2022 · Heilbrigðisráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða

Lögð er í samráðsgátt drög að tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða.

Í drögunum er lagt til að Alþingi álykti um að aldrað fólk á Íslandi skuli búa við örugga og hagkvæma heilbrigðisþjónustu þar sem aðgengi allra sé tryggt. Til þess að framtíðarsýnin verði að veruleika er í drögunum lagt til að áhersla verði á eftirfarandi viðfangsefni heilbrigðisstefnu til ársins 2030: 1. Forysta til árangurs 2. Rétt þjónusta á réttum stað 3. Fólkið í forgrunni 4. Virkir notendur 5. Skilvirk þjónustukaup 6. Gæði í fyrirrúmi 7. Hugsað til framtíðar Þær tillögur sem lagðar eru til í drögunum er ætlað að verða eitt megin gagna í vinnu verkefnastjórnar um stefnu í þjónustu við eldra fólk, sem skipa skal samkvæmt stjórnarsáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem kynntur var 26. nóvember 2021. Hluti af þeim tillögum að aðgerðum sem Alþingi leggur til svo framangreind framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu við aldraða verði að veruleika heyra undir önnur ráðuneyti eða stjórnvöld en heilbrigðisráðherra. Til að hrinda framtíðarsýn um heilbrigðisþjónustu við aldraða í framkvæmd verði gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn í samráði við helstu hagsmunaaðila. Slíkar áætlanir verði uppfærðar árlega.

S-8/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2022 – 7. feb. 2022· 10 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða

Lögð er í samráðsgátt drög að tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 7. febrúar 2022
  2. Birt í Samráðsgátt (S-8/2022)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 418)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júlí 2022)

Umrædd tillaga til þingsályktunar var samykkt á vorþingi 152. löggjafarþings með breytingum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-8/2022: Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða · Alviti