Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-234/2021 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál

Áformað er að leggja til breytingar á lögum um loftslagsmál. Lagt er til að orðaröðun í 6. gr. b. laganna verði lagfærð og að innleidd verði ákvæði EES-gerðar sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars).

Með frumvarpinu verður lögð til breyting á orðaröðun 1. mgr. 6. gr. b. svo inntak ákvæðisins verði rétt með því að færa til röðun orða í 1. málslið. Ákvæðið fjallar um að losun gróðurhúsalofttegunda og upptaka sem fellur undir flokk landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar hjá milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skuli ekki leiða af sér nettólosun á tímabilinu 2021–2025 annars vegar og 2026–2030 hins vegar til að tryggja framlag Íslands til sameiginlegs markmiðs Íslands, Noregs og Evrópusambandsins. Með upptöku er átt við bindingu kolefnis úr andrúmslofti með tilteknum aðgerðum. Jafnframt verður lagt til að EES-gerð verði innleidd og henni bætt við 47. gr. laganna. Um er að ræða ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB)2021/1416 sem breytir tilskipun 2003/87/EB og varðar flug frá Bretlandi sem eru undanþegin gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir.

S-234/2021· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. des. 2021 – 7. jan. 2022· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál

Áformað er að leggja til breytingar á lögum um loftslagsmál. Lagt er til að orðaröðun í 6. gr. b. laganna verði lagfærð og að innleidd verði ákvæði EES-gerðar sem breytir tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-234/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 471)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. ágúst 2022)

Frumvarp var lagt fram á vorþingi 2022 og það samþykkt sem lög þann 14. júní 2022 sbr. lög nr. 47/2022

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-234/2021: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál · Alviti