Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-18/2022 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla)

Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. Með frumvarpinu er lagt til að lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu verði felld brott í heild sinni og ákvæði er varða lífræna framleiðslu verði felld inn í matvæla- og fóðurlöggjöfina. Meginmarkmið frumvarpsins er að innleiða í íslenskan rétt reglugerð (ESB) 2018/848 um lífræna framleiðslu en um er að ræða nýja reglugerð sem leysa af hólmi eldri reglur sem innleiddar voru í íslenska löggjöf. Frumvarpið felur í sér tillögur að efnisbreytingum á gildandi rétti sem nauðsynlegar þykja til innleiðingar en miðar jafnframt að því að einfalda regluverkið.

S-18/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. jan. 2022 – 8. feb. 2022· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla)

Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 475)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
    Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) telja mikilvægt að framleiðendur landbúnaðarafurða á Íslandi búi við sömu rekstrarskilyrði og framleiðendur landbúnaðarafurða í Noregi og ESB búa við. SAM telja að sú samræming reglna sem lögð er til með máli 18/2022 í samráðsgáttinni sé jákvætt skref í þá átt að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart erlendri samkeppni. SAM er kunnugt um að túlkun og framkvæmd evrópskra reglna um framleiðslu matvæla er misjöfn milli landa ESB. Sem dæmi má nefna að framleiðsla undir merkjum lífrænnar framleiðslu hefur víðast í ESB krafist… Lesa alla

    Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) telja mikilvægt að framleiðendur landbúnaðarafurða á Íslandi búi við sömu rekstrarskilyrði og framleiðendur landbúnaðarafurða í Noregi og ESB búa við. SAM telja að sú samræming reglna sem lögð er til með máli 18/2022 í samráðsgáttinni sé jákvætt skref í þá átt að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart erlendri samkeppni. SAM er kunnugt um að túlkun og framkvæmd evrópskra reglna um framleiðslu matvæla er misjöfn milli landa ESB. Sem dæmi má nefna að framleiðsla undir merkjum lífrænnar framleiðslu hefur víðast í ESB krafist staðfestingar frá sjálfstæðum vottunarstofum, en í Danmörku hefur vottun og túlkun reglna um lífræna framleiðslu verið á hendi stjórnvalda. Einnig er SAM kunnugt um að veittar hafa verið undanþágur frá reglugerð ESB um lífræna framleiðslu og að undanþágur sem veittar eru í hverju landi séu tilkynntar til ESB og þær séu aðgengilegar stjórnvöldum á vefsíðu þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um allar undanþágur allra landa innan ESB (einungis aðgengilegt stjórnvöldum). Þegar vitað er að innan ESB eru veittar undanþágur frá reglugerðum nægir þess vegna ekki að taka upp evrópskar reglugerðir til að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu. SAM hvetja stjórnvöld til að fylgjast vel með undanþágum sem þjóðir innan ESB veita frá eigin reglugerðum; að öðrum kosti mun samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu skerðast. Reykjavík 4. febrúar 2022 F.h. Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði Sigurjón R. Rafnsson, formaður stjórnar

  • #2Eygló Björk Ólafsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Verndun og ræktun, VOR - félag framleiðenda í lífrænum búskap, kt 500594-2179, um breytingu á lögum vegna lífrænnar framleiðslu.

  • #3Bændasamtök Íslands

    Sjá hjálagða umsögn BÍ.

  • #4Óskar Ísfeld Sigurðsson

    Umsögnin er send inn fyrir hönd Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur

  • #5Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um mál nr. 18/2022; Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla).

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-18/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla) · Alviti