Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-240/2021 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mútuboð til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðaviðskiptum)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery)

Frumvarpið er samið til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery), sbr. skýrslu vinnuhópsins frá desember 2020 í tilefni af fjórðu úttekt vinnuhópsins um framkvæmd Íslands á samningi um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum (erlend mútubrot) frá 17. desember 1997 (mútusamningurinn). Í frumvarpinu er mælt fyrir um breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga sem taka til erlendra mútubrota. Helstu efnisatriði frumvarpsins lúta að breytingum á 264. gr. a laganna í því skyni að taka af allan vafa um að ákvæðið nái einnig til mútubrota er beinast að starfsmönnum erlendra fyrirtækja í opinberri eigu með sama hætti og 109. gr. nær almennt til erlendra opinberra starfsmanna. Jafnframt er kveðið á um breytingu á refsihámarki vegna brota gegn 109. og 264. gr a. Er það annars vegar til að bregðast við tilmælum um að refsingar fyrir erlend mútubrot skuli vera sambærilegar og fyrir mútuþágur samkvæmt 128. gr. laganna, þ.e. að hámarki 6 ára fangelsi. Hins vegar er kveðið á um hækkun refsihámarks til að unnt verði að beita upptökuheimild í 69. gr. b. laganna þegar sakfellt er fyrir erlend mútubrot. Loks er kveðið á um breytingu á 81. gr. laganna sem felur í sér að fyrningarfrestur refsiábyrgðar lögaðila vegna brota gegn 2. mgr. 109. gr. og 1. mgr. 264. gr. a. verði 10 ár í stað núverandi 5 ára.

S-240/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2021 – 7. jan. 2022· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mútuboð til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðaviðskiptum)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum til að bregðast við tilmælum vinnuhóps Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD) um mútur í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-240/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 318)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. mars 2022)

Engar umsagnir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-240/2021: Drög að frumvarpi til breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mútuboð til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðaviðskiptum) · Alviti