Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-227/2021 · Innviðaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á hafnalögum. Innleidd verða ákvæði EES-gerðar um veitingu hafnarþjónustu og um gagnsæi í fjármálum hafna. Auk þess mun frumvarpið hafa að geyma ákvæði um gjaldtöku af fiskeldi, rafræna vöktun, stjórnsýslukærur vegna gjaldskrárákvarðana, skilgreiningu hafnarsvæða o.fl.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu verða í fyrsta lagðar til lagabreytingar til innleiðingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir. Reglugerðin nær til hafna sem eru hluti af samevrópska flutninganetinu. Breytingar þessar snúa m.a. að setja ákvæði um það þegar annar aðila en höfn býður upp á þjónustu í höfnum, möguleika hafnar eða lögbærs yfirvalds til að gera lágmarkskröfur til utanaðkomandi aðila til að bjóða upp á þjónustu við skip eða heimildir til að takmarka fjölda þeirra sem bjóða upp á þessa þjónustu og að hafnarstjórn ráðfæri sig við notendur hafna við álagningu gjalda. Þá verður lögð til heimild fyrir hafnir til að veita umhverfisafslætti frá hafnargjöldum. Mun sú heimild ná til allra hafna hér á landi. Í öðru lagi verður með frumvarpinu lagt til ákvæði um gjaldtöku hafna vegna fiskeldisstarfsemi. Er lagagrundvöllur slíkrar gjaldtöku talinn óskýr samkvæmt gildandi lögum. Hefur gjaldtakan grundvallast á e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga um aflagjöld og hefur framkvæmd við gjaldtöku verið mismundandi eftir sveitarfélögum. Í þriðja lagi verður kveðið á um rafræna vöktun í höfnum. Er talin þörf á ákvæði þessa efnis til að vinnsla persónuupplýsinga byggist á viðhlítandi lagastoð en ekki er að finna ákvæði þessa efnis í hafnalögum. Í fjórða lagi verður lögð til breyting á 27. gr. hafnalaga um stjórnsýslukærur. Þar segir að heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórna, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Samgöngustofu. Í reglugerð (ESB) 2017/352 er mælt fyrir um kæruferli vegna ágreinings um beitingu reglugerðarinnar og þörf á breytingu vegna þess ákvæðis. Þá segir í athugasemdum við frumvarp sem varð að hafnalögum nr. 61/2003, að ágreiningur vegna gjaldskrárákvarðana hafna heyri undir Samkeppnisstofnun (nú Samkeppniseftirlitið). Samkeppniseftirlitið hefur talið að hlutverk þess er lýtur að gjaldskrárkvörðunum sé bundið við ákvæði samkeppnislaga. Þarf því jafnframt að skýra í hafnalögum hvernig leyst skuli úr ágreiningi vegna gjaldskrárákvarðana, t.a.m. með kæruheimild til Samgöngustofu. Í fimmta lagi verður lögð til skilgreining á hafnarsvæðum þannig að sett verði fram viðmið um hvernig beri að afmarka hafnasvæði á sjó í hafnarreglugerðum. Í sjötta lag verður lagt til að efni III. kafli laga um vakstöð siglinga, nr. 41/2003, um hafnsögu og leiðsögu, verði færð í hafnalög. Í sjöunda lagi kemur til skoðunar að setja heimild fyrir ráðherra til setningar reglugerðar um hafnamál, m.a. þannig að ráðherra verði heimilað að setja almenna hafnarreglugerð fyrir hafnir sem hafa ekki sett sér hafnarreglugerð. Loks verða í áttunda lagi lagðar til breytingar á verkaskiptingu Samgöngustofu og Vegagerðarinnar á sviði hafnamála, m.a. er lýtur að eftirliti með hönnun og byggingu hafnarmannvirkja, sbr. 6. gr. laganna, og upplýsingar um hafnir, sbr. 9. gr. laganna.

S-227/2021· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 3. des. 2021 – 17. des. 2021· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.

Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á hafnalögum. Innleidd verða ákvæði EES-gerðar um veitingu hafnarþjónustu og um gagnsæi í fjármálum hafna. Auk þess mun frumvarpið hafa að geyma ákvæði um gjaldtöku af fiskeldi, rafræna vöktun, stjórnsýslukærur vegna gjaldskrárákvarðana, skilgreiningu hafnarsvæða o.fl.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-227/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. desember 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 712)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-227/2021: Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. · Alviti