Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-5/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um lagasetningu um breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF).

Áformuðu frumvarpi er ætlað að innleiða eftirstandandi ákvæði í tilskipun 2014/59/ESB (BRRD) og ákvarða hvernig staðið verður að fjármögnun skilasjóðs. Samhliða því að kveða á um og tryggja fjármögnun skilasjóðs þykir ástæða til að stöðva gjaldtöku í innstæðudeild TIF þar sem hlutverk TIF hefur breyst með lögum nr. 70/2020 og öðrum umbótum á fjármálamarkaði. Með áformuðu frumvarpi er lagt upp með að flytja fjármuni úr innstæðudeild TIF í skilasjóð þannig að stærð sjóðanna tveggja eftir tilfærslu fjármuna verði hlutfallslega sú sama og milli lögbundinna lágmarka þeirra samkvæmt Evrópureglum, eða 0,8% og 1%. Með þessu er átt við að skilasjóður verði stærri en innstæðudeild TIF sem nemur 25%. Miðað við stöðu tryggðra innstæðna í september 2021 yrðu 24,9 ma.kr. fluttir úr TIF í skilasjóð. Eftir þessa breytingu yrðu heildareignir innstæðudeildar TIF 21,8 ma.kr. eða 2% af tryggðum innstæðum og heildareignir skilasjóðs 27,3 ma.kr. sem samsvarar 2,5% af tryggðum innstæðum. Þrátt fyrir tilfærslu fjármuna úr TIF í skilasjóð yrði TIF meðal stöndugustu innstæðutryggingasjóða á EES svæðinu og eignir sjóðsins tæplega 48% af tryggðum innstæðum lánastofnana sem ekki teljast kerfislega mikilvægar. Sjóðirnir yrðu með þessu móti báðir ríflega tvöfalt stærri en áskilnaður er gerður um samkvæmt Evrópureglum. Líkt og framan greinir er í því ljósi áformað að hætta greiðslum í TIF að svo stöddu en að þær hefjist aftur ef tilefni reynist til.

S-5/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. jan. 2022 – 20. jan. 2022· 1 umsögn

Áform um lagasetningu um breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-5/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 531)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júní 2022)

Frumvarp var lagt fram á Alþingi og samþykkt sem lög.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-5/2022: Áform um lagasetningu um breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (fjármögnun skilasjóðs og iðgjöld í TIF) · Alviti