Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-11/2022 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (stjórn Landspítala)

Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kemur fram að skipuð verði fagleg stjórn yfir Landspítala að norrænni fyrirmynd. Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar þess efnis.

Frumvarpið er liður í innleiðingu þeirra áherslumála sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs en í stjórnarsáttmála kemur fram að staða og hlutverk Landspítala sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar. Er stjórn spítalans ætlað að gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun. Markmið frumvarpsins er að styrkja stjórn stærstu heilbrigðisstofnunar landsins, Landspítala, með því að veita lagastoð fyrir því að stjórn verði skipuð yfir spítalann sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekstur spítalans. Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu eru að stjórn verði sett á stofn yfir Landspítala. Stjórninni verði ætlað að starfa sem æðsta valdi innan stofnunarinnar og eiga ríkt samstarf við forstjóra stofnunarinnar sem og ráðherra heilbrigðismála um stefnu og rekstur stofnunarinnar. Stjórninni er ætlað að marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra en einnig að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun hennar og fjárhagsáætlun. Í þessu felst enn fremur að stjórninni sé ætlað að bera ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits innan Landspítala með reglubundnum aðgerðum og ráðstöfunum til að stuðla að hagkvæmni í rekstri, öryggi fjármuna, áreiðaleika upplýsinga og að markmiðum starfseminnar sé náð.

S-11/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. jan. 2022 – 31. jan. 2022· 24 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (stjórn Landspítala)

Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kemur fram að skipuð verði fagleg stjórn yfir Landspítala að norrænni fyrirmynd. Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar þess efnis.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-11/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 24 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 433)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júlí 2022)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu á vorþingi 152. löggjafarþings og varð það að lögum nr. 44/2022, með þeim breytingum sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum þingsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (24)
  • #1Guðjón Sigurðsson
    Þrátt fyrir fögur loforð um aðgengi notenda að öllum málum þá erum við notendur spítalans skyldir eftir án aðkomu að stjórn þessarar stofnunar eins og oftast áður í stjórnkerfinu. Ég skora á ráðherra og embættismenn að skoða vel samning sameinuðu þjóðana um réttindi fatlaðra sem til stendur að löggilda af sömu ríkisstjórn og leggur þetta frumvarp fram. Möguleg lausn: Að auki skal skipa tvo stjórnarmenn sem fulltrúa notenda með málsfrelsi og tillögurétt, án atkvæðisréttar. (Bætist við í lok fyrstu málsgreinar 8. gr. a ) Með von um að þessi mistök verði leiðrétt Guðjón Formaður MND á… Lesa alla

    Þrátt fyrir fögur loforð um aðgengi notenda að öllum málum þá erum við notendur spítalans skyldir eftir án aðkomu að stjórn þessarar stofnunar eins og oftast áður í stjórnkerfinu. Ég skora á ráðherra og embættismenn að skoða vel samning sameinuðu þjóðana um réttindi fatlaðra sem til stendur að löggilda af sömu ríkisstjórn og leggur þetta frumvarp fram. Möguleg lausn: Að auki skal skipa tvo stjórnarmenn sem fulltrúa notenda með málsfrelsi og tillögurétt, án atkvæðisréttar. (Bætist við í lok fyrstu málsgreinar 8. gr. a ) Með von um að þessi mistök verði leiðrétt Guðjón Formaður MND á Íslandi

  • #2Pálmi V Jónsson
    Umsagnaraðili leggur til eftirfarandi breytingar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 ( stjórn Landspítala ) 1. grein um stjórn Landspítala, önnur málsgrein, bætt verði við "auk opinberrar vísinida- og menntastefnu á heilbrigðissviði. Stjórn Landspítala skal marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra í heilbrigðismálum auk opinberrar vísinda- og menntastefnu á heilbrigðissviði og staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun. Stjórnin ber ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits, þ.e. þeirra reglubund… Lesa alla

    Umsagnaraðili leggur til eftirfarandi breytingar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 ( stjórn Landspítala ) 1. grein um stjórn Landspítala, önnur málsgrein, bætt verði við "auk opinberrar vísinida- og menntastefnu á heilbrigðissviði. Stjórn Landspítala skal marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra í heilbrigðismálum auk opinberrar vísinda- og menntastefnu á heilbrigðissviði og staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun. Stjórnin ber ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits, þ.e. þeirra reglubundnu aðgerða og ráðstafana sem spítalinn þarf að gera til að stuðla að hagkvæmni í rekstri, öryggi fjármuna, áreiðanleika upplýsinga og að markmiðum starfseminnar sé náð. Greinargerð: Landspítali hefur þríþætt hlutverk. Nýlega hafa komið fram vísbendingar um alvarlegan skort á fagfólki á heilbrigðissviði og mikinn hörgul á Landspítala. Því er mikilvægt að Landspítali skerpi enn frekar á menntunarhlutverki sínu og leggi sitt af mörkum til að laða fólk að slíkri menntun. Þá hafa komið fram gögn sem benda á hnignandi vísindavirkni tengdri Landspítala sem er áhyggjuefni, því að sterk tengsl eru milli vísindavirkni og gæða heilbrigðisþjónustu sem veitt er. 1. grein um stjórn Landspítala, þriðja málsgrein, bætt verði við: Stjórnin skal huga sérstaklega að þróun og nýsköpun, m.a. m.t.t. tækniþróunar og mikillar fjölgunar fjölveikra einstaklinga með flókin viðfangsefni svo og að öflugu samstarfi við heilsugæslu og sérfræðiþjónustu utan sjúkrahúsa Stjórn Landspítala skal taka ákvörðun um veigamikil atriði er varða rekstur stofnunarinnar og starfsemi hennar. Stjórnin skal huga sérstaklega að þróun og nýsköpun, m.a. m.t.t. tækniþróunar og mikillar fjölgunar fjölveikra einstaklinga með flókin viðfangsefni svo og að öflugu samstarfi við heilsugæslu og sérfræðiþjónustu utan sjúkrahúsa. Greinargerð: Nú um daga er tækniþróun afar ör og skapar margvísleg tækifæri til þess að efla þjónustu, gera hana skilvirkari og auka gæði hennar. Stjórn Landspítala þarf að vakta þessa þróun náið með það í huga að Landspítali dragist ekki aftur úr innleiðslu tæknilausna sem horfa til framfara. Oft leiðir tækniþróun til aukinnar skilvirkni og ábata sem meta má með kostnaðar ábata greiningu. Þá hafa sjúkrahús um víða veröld verið að þróa aukna sjúkrahúsþjónustu í heimhúsum til að létta á legudeildum sjúkrahúsa, auka öryggi, bæta sóttvarnir og bæta upplifuð gæði skjólstæðinga af sjúkrahúsþjónustunni. Haldin hafa verið heimsþing undir yfirskriftinni Sjúkrahúsið Heima ( „Hospital at Home“ ). Mikil fjölgun fjölveikra einstaklinga með flókin viðfangsefni, en í þeim hópi er yfirvikt á eldra fólki, kallar á að allir verkferlar sjúkrahússins séu aðlagaðir að þeim raunveruleika og sjúkrahúsið í heild sinni gert „aldursvænt“. Aldursvænt sjúkrahúsi er reyndar gott fyrir alla aldurshópa. Í þessu sambandi er einnig mikilvægt að taka upp náið samstarf við heilsugæslu og sérfræðiþjónustu með það fyrir augum að þessir aðilar komi sterkir inn í sínum hlutverkum og geti leyst sem flest viðfangsefni á samfélagsstigi en með góðum stuðningi og samvinnu eftir atvikum við sjúkrahúsið. Pálmi V. Jónsson, FACP, FRCP L yfirlæknir, öldrunarlækningadeild Landspítala, prófessor í öldrunarlækningum, Læknadeild Háskóla Íslands,

  • #3Geðhjálp
    Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar beinir því til heilbrigðisráðherra að eðlilegt væri að hluti stjórnarfólks í nýrri stjórn Landspítala yrðu notendur þeirrar þjónustu sem Landspítalinn sinnir - slíkt væri í anda áherslna síðustu ára um aukið vægi opins lýðræðis þar sem þjónustunotendum er ætluð virkari aðkoma að útfærslu almannaþjónustunnar. Við færumst nú hraðbyri frá almannavaldi að almannaþjónustu, við þessu gæti ráðherra og löggjafinn brugðist og skipað t.a.m. tvo af sjö stjórnarmönnum Landspítalans á hverjum tíma úr samfélagi notenda. Virðingarfyllst, Stjórn Landssamtakanna Geðhjál… Lesa alla

    Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar beinir því til heilbrigðisráðherra að eðlilegt væri að hluti stjórnarfólks í nýrri stjórn Landspítala yrðu notendur þeirrar þjónustu sem Landspítalinn sinnir - slíkt væri í anda áherslna síðustu ára um aukið vægi opins lýðræðis þar sem þjónustunotendum er ætluð virkari aðkoma að útfærslu almannaþjónustunnar. Við færumst nú hraðbyri frá almannavaldi að almannaþjónustu, við þessu gæti ráðherra og löggjafinn brugðist og skipað t.a.m. tvo af sjö stjórnarmönnum Landspítalans á hverjum tíma úr samfélagi notenda. Virðingarfyllst, Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar

  • #4Sjúkraliðafélag Íslands

    Í viðhengi er umsögn frá Sjúkraliðafélagi Íslands. Með kveðju, Sandra B. Franks

  • #5Guðrún Árný Guðmundsdóttir
    Umsögn Fagdeildar um forystu í hjúkrun, sem starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðissþjónustu nr. 40/2007 (stjórn Landspítala) Fagdeild um forystu í hjúkrun telur að sjö manna stjórn yfir Landspítala geti styrkt starfsemi spítalans. Mikilvægt er að stjórnin sé faglega skipuð. Fagdeildin telur mikilvægt að í stjórn verði skipaður a.m.k. einn sérfræðingur í hjúkrun sem hefur þekkingu á rekstri klínískrar þjónustu við sjúklinga, vísindum og menntun í hjúkrun. Hjúkrunarþáttur sjúkrahússins telur flesta starfsmenn þess og er dagleg… Lesa alla

    Umsögn Fagdeildar um forystu í hjúkrun, sem starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðissþjónustu nr. 40/2007 (stjórn Landspítala) Fagdeild um forystu í hjúkrun telur að sjö manna stjórn yfir Landspítala geti styrkt starfsemi spítalans. Mikilvægt er að stjórnin sé faglega skipuð. Fagdeildin telur mikilvægt að í stjórn verði skipaður a.m.k. einn sérfræðingur í hjúkrun sem hefur þekkingu á rekstri klínískrar þjónustu við sjúklinga, vísindum og menntun í hjúkrun. Hjúkrunarþáttur sjúkrahússins telur flesta starfsmenn þess og er daglegur rekstur klínískra þjónustueininga (sjúkradeilda) í höndum hjúkrunarfræðinga. Fjölmargar rannsóknir sýna mikilvægi þess að á öllum stigum stjórnunar sjúkrahúsa eigi hjúkrun fulltrúa, ekki síst á æðstu stigum. Gæði þjónustunnar eru hreinlega tengd þessum þætti og því afar brýnt að tryggja að fulltrúi hjúkrunar sitji í stjórn Landspítala. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að starfsmenn eigi tvo fulltrúa sem hafa þó eingöngu málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt, sem gerir vægi þeirra fulltrúa lítið. Með því móti ríkir ójafnræði milli stjórnarmanna og lítilsgildir þá fulltrúa sem ekki hafa atkvæðisrétt þannig að stjórnin er í raun aðeins fimm manna með tveimur áheyrnarfulltrúum sem hafa málfrelsi og tillögurétt. Þar sem Landspítali er stór flókin stofnun með fjölbreytta og sérhæfða starfsemi er mikilvægt stjórn hennar endurspegli sem best hið fjölþætta og veigamikla hlutverk spítalans. Stjórn er ætlað að marka stefnu spítalans, leggja upp starfs- og fjárhagsáætlanir og bera ábyrgð á innra eftirliti. Því er rétt og eðlilegt að stjórn sem gegnir svo veigamiklu hlutverki á forystu stofnun heilbrigðisþjónustu á Íslandi, sé skipuð fleiri en færri fulltrúum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að stjórnarseta sé til tveggja ára í senn. Fagdeild um forystu í hjúkrun leggur til að stjórnarseta sé til fleiri ára en tveggja. Verkefni stjórnar eru yfirgripsmikil og krefjandi og gera verður ráð fyrir að það taki nýja stjórnarmenn nokkurn tíma að ná yfirsýn yfir faglegan og fjárhagslegan rekstur svo stórrar stofnunar. Þar sem gengið er út frá því að um faglega stjórn sé að ræða, en ekki pólitíska, gæti það styrkt stöðu og störf stjórnar að skipunartími einstakra stjórnarmeðlima sé ekki öll samtímis, þ.e. að tryggt sé að reyndir stjórnarmenn vinni með nýjum stjórnarmönnum þegar mannaskipti verða í stjórn. Í Frumvarpinu er þess ekki getið hvernig samstarfi hinnar nýju stjórnar og stjórnenda Landspítala á að vera háttað. Fagdeild um forystu í hjúkrun mælir með því að tryggt verði að hjúkrunarþáttur sjúkrahússins eigi fulltrúa á öllum stigum stjórnskipulags sjúkrahússins og að með því verði órofa samskipti og samstarf við stjórn. Rannsóknir sýna að órofa stjórnunarlína frá klínískri hjúkrun sjúklinga á sjúkradeildum til yfirstjórnar stofnunar þar sem hjúkrunarfræðingar eiga fulltrúa á öllum stigum stjórnskipulagsins þar sem þeir taka þátt í ákvarðanatöku um veigamikla ætti þjónustunnar, eykur gæði hennar og öryggi. Fagdeild um forystu í hjúkrun mælir með því að fulltrúar notenda /sjúklingasamtaka fái sæti í stjórn með málfrelsi og tillögurétt. Guðrún Árný Guðmundsdóttir Formaður fagdeildar um forystu í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-11/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (stjórn Landspítala) · Alviti