Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-26/2022 · Heilbrigðisráðuneytið

Sóttvarnalög

Frumvarp til laga um sóttvarnir sem hér er til kynningar og samráðs er samið af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skipaður var 18. júní 2021 og skilaði drögum að frumvarpi 1. febrúar 2022.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: september).

Heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum á 151. löggjafarþingi sem miðaði einkum við að styrkja og skýra lagastoð fyrir opinberum sóttvarnaráðstöfnum. Frumvarpið varð að lögum í febrúar 2021 en við meðferð málsins hjá velferðarnefnd Alþingis kom m.a. fram að sú stjórnsýsla sem mælt væri fyrir um í núgildandi lögum væri að mörgu leyti ágæt en þarfnaðist úrbóta og skýringa. Þá sagði jafnframt að hlutverk sóttvarnalæknis og landlæknis með tilliti til stjórnsýslulegrar ábyrgðar og samspils við lög um landlækni og almannavarnir væri að nokkru leyti ábótavant. Nefndin sagði í áliti sínu að óheppilegt gæti reynst að ráðast í of víðtækar breytingar, m.a. á stjórnsýslu sóttvarnamála, í miðjum heimsfaraldri og gæti það valdið óvissu um hlutverk hvers stjórnvalds á viðkvæmum tíma, þegar hvað brýnast sé að verkefnaskipting væri skýr og boðleiðir vel þekktar. Nefndin tók samt fram að mikilvægt væri að vinna við endurskoðun laganna hefðist sem allra fyrst, óháð þeim faraldri sem nú geisaði, og að því sambandi væri mikilvægt að horfa til norrænnar löggjafar við endurskoðun sóttvarnalaga. Þann 18. júní 2021 skipaði ráðherra nýjan starfshóp sem falið var að skrifa drög að heildarlögum um sóttvarnir m.a. í samræmi við áðurnefnda umræðu hjá velferðarnefnd Alþingis og í þingsal. Frumvarp þess starfshóps er nú til kynningar og samráðs. Í starfshópnum voru fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, landlæknis, sóttvarnalæknis, sóttvarnaráðs, Landspítala, og ríkislögreglustjóra auk starfsmanns úr heilbrigðisráðuneytinu. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða einna helst stjórnsýslu sóttvarna og opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna þeirrar reynslu sem fengist hefur hér á landi vegna heimsfaraldurs SARS-CoV-2 veirunnar. Má þar nefna tilkomu farsóttanefndar, skipuð níu einstaklingum, sem tekur að nokkru leyti við verkefnum sóttvarnalæknis samkvæmt gildandi lögum, þ.e. að koma með tillögur til ráðherra um beitingu veigamestu opinberu sóttvarnaráðstafanna. Markmiðið með tilkomu farsóttanefndar er að færa framangreint verkefni og ábyrgð sem því fylgir yfir á fleiri hendur með breiðari þekkingu og skírskotun. Ekki síður er markmiðið með skipun nefndarinnar að styrkja sóttvarnalækni og almannavarnir varðandi stefnu og ákvarðanir þegar farsótt geisar sem og að koma formlega á laggirnar virkum samráðsvettvangi helstu viðbragðsaðila. Helstu nýmæli sem lagt er til með meðfylgjandi frumvarpinu eru eftirfarandi: • Lagt er til að sérstakt markmiðsákvæði komi inn í sóttvarnalög. • Lagt er til gildissviðsákvæði og sérstakt ákvæði um þá sjúkdóma sem lögin taka til. Í því ákvæði er lögð til tiltekin stigskipting sjúkdóma, þ.e. smitsjúkdómar, alvarlegir sjúkdómar og samfélagslega hættulegir sjúkdómar. • Lagt er til að heimildir stjórnvalda til sóttvarnaráðstafana taki mið af framangreindri stigskiptingu sambærilegt því og gildir í Danmörku. Einungis megi grípa til veigamestu ráðstafananna þegar um samfélagslega hættulegan sjúkdóm er að ræða. • Lagðar eru til breytingar á stjórnsýslu sóttvarna. Þannig er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra líkt og landlæknir og aðrir forstöðumenn stofnana samhliða því að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórn ráðherra en ekki landlækni. Enn fremur að nýtt fjölskipað stjórnvald, farsóttanefnd, verði sett á laggirnar sem skilar inn tillögum til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegra sjúkdóma. • Samhliða stofnun farsóttanefndar verður sóttvarnaráð í núverandi mynd lagt niður í nýjum heildarlögum um sóttvarnir. Þó er lagt til í frumvarpinu að sóttvarnalæknir hafi heimild til að kveða sér til ráðgjafar sérfræðinga vegna þeirra verkefna sem falla undir hlutverk sóttvarnalæknis. • Lagt er til að kaflinn um opinberar sóttvarnaráðstafanir og einstaka ákvæði hans verði brotin upp og framsetning einfölduð frá sóttvarnalögum nr. 19/1997. Jafnframt eru settar tilteknar skorður við tímalengd opinberra sóttvarnaráðstafana. • Lagt er til að aðkoma og eftirlitshlutverk Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfunum verði styrkt. • Lagt er til að viðurlagaákvæði laganna verði uppfært í samræmi við löggjafarþróun síðari ára. Frestur til að skila inn umsögnum við frumvarpið er til og með 15. febrúar 2022. Af hálfu velferðarnefndar Alþingis hefur komið fram áskorun um að frumvarpinu yrði flýtt eins og kostur væri þannig að Alþingi fengi meiri tíma til að fjalla um málið. Í því ljósi er frumvarpið sett í samráðsgátt í tvær vikur en gera má ráð fyrir að velferðarnefnd Alþingis muni sjálf óska eftir umsögnum þegar málið kemur til nefndarinnar.

S-26/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2022 – 15. feb. 2022· 25 umsagnir

Sóttvarnalög

Frumvarp til laga um sóttvarnir sem hér er til kynningar og samráðs er samið af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skipaður var 18. júní 2021 og skilaði drögum að frumvarpi 1. febrúar 2022.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-26/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 498)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júlí 2022)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga á 152. löggjafarþingi að teknu tilliti til nokkurra athugasemda sem bárust um samráðsgáttina. Frumvarpið náði aftur á móti ekki fram að ganga fyrir þinglok.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Kristján H Kristjánsson
    Geðlæknir á að vera í farsóttanefnd til þess að taka þátt í að skipuleggja sóttvarnir þannig að þær hafi sem minnst skaðleg áhrif á geð manna. Margir þjást af kvíða og þunglyndi í faraldrinum og sumir hafa jafnvel gefist upp á lífinu. Ástæður geta m.a. verið hringlandaháttur í sóttvörnum. Aðferðin að herða og slaka getur valdið því að margir verða stressaðir þegar ákveðið er að slaka á vörnum enn eitt skiptið. Vegna þess að sumir ráðherrar hafa sóst mikið eftir að slakað er á vörnum okkur er mjög hættulegt að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra og að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna he… Lesa alla

    Geðlæknir á að vera í farsóttanefnd til þess að taka þátt í að skipuleggja sóttvarnir þannig að þær hafi sem minnst skaðleg áhrif á geð manna. Margir þjást af kvíða og þunglyndi í faraldrinum og sumir hafa jafnvel gefist upp á lífinu. Ástæður geta m.a. verið hringlandaháttur í sóttvörnum. Aðferðin að herða og slaka getur valdið því að margir verða stressaðir þegar ákveðið er að slaka á vörnum enn eitt skiptið. Vegna þess að sumir ráðherrar hafa sóst mikið eftir að slakað er á vörnum okkur er mjög hættulegt að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra og að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórnráðherra.

  • #2Björn Arnar Hauksson
    Bæta þarf frumvarpið hvað varðar gegnsæji og þverfaglega þekkingu. Slíkt er hægt að gera með ákvæðum um birtingu fundargerða, birtingu upplýsinga úr smitrakningagrunni og aðild hagfræðings í farsóttanefnd. Forgangsraða þarf öllum sóttvarrnaraðgerðum m.t.t. skilvirkni og kostnaðs. Hagfræðileg greining myndi liggja til grundvallar slíkri forgangsröðun. Slík greining hefur ekki farið fram í núverandi Covid-19 faraldri. Opið aðgengi að gögnum myndi virkja ritrýni og tillögur frá fleiri aðilum ásamt því að upplýsa almenning og hagsmunaaðila um forsendur einstakra aðgerða. Sjá nánar í meðfylg… Lesa alla

    Bæta þarf frumvarpið hvað varðar gegnsæji og þverfaglega þekkingu. Slíkt er hægt að gera með ákvæðum um birtingu fundargerða, birtingu upplýsinga úr smitrakningagrunni og aðild hagfræðings í farsóttanefnd. Forgangsraða þarf öllum sóttvarrnaraðgerðum m.t.t. skilvirkni og kostnaðs. Hagfræðileg greining myndi liggja til grundvallar slíkri forgangsröðun. Slík greining hefur ekki farið fram í núverandi Covid-19 faraldri. Opið aðgengi að gögnum myndi virkja ritrýni og tillögur frá fleiri aðilum ásamt því að upplýsa almenning og hagsmunaaðila um forsendur einstakra aðgerða. Sjá nánar í meðfylgjandi skjali.

  • #3Umboðsmaður barna

    Meðfylgjandi er umsögn embættis umboðsmanns barna um frumvarp til sóttvarnalaga.

  • #4Hildigunnur Svavarsdóttir

    Framkvæmdastjórn Sjúkrahússins veltir fyrir sér 8. grein frumvarpsins varðandi samsetningu farsóttarnefndar. Við teljum mikilvægt að horfa til þess að í farsóttarnefndinni verði einnig fulltrúi frá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.

  • #5Sigurður Magnús Magnússon

    Geislavarnir ríkisins telja mikilvægt að tekið verði á skörun laga um geislavarnir og laga um sóttvarnir þannig að ekki fari á milli mála um hlutverk, verksvið og ábyrgð aðila ef á reynir. Geislavirkum efnum var bætt í lög um sóttvarnir árið 2007. Ekki er alltaf ljóst við hvað er átt og á það einnig við um það frumvarp sem nú er til umsagnar. Það getur valdið óvissu um túlkun laganna.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-26/2022: Sóttvarnalög · Alviti