Áform um frumvarp til laga um peningamarkaðssjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um peningamarkaðssjóði sem mun innleiða reglugerð (ESB) 2017/1131 (reglugerð um peningamarkaðssjóði).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-1/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. janúar 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. febrúar 2022)
Ein umsögn barst. Samtök fjármálafyrirtækja vekja athygli á því að samtökin telji ekki raunhæft að miða gildistöku laganna við 1. október 2022 eins og gert er ráð fyrir í áformunum. Þeir sem reka sjóði sem munu falla undir skilgreiningu peningamarkaðssjóða muni þurfa lengri tíma til að aðlaga reksturinn að ákvæðum reglugerðarinnar. Tekur ráðuneytið undir þetta og er tekið tillit til þess í drögum að lagafrumvarpi. Drög að frumvarpi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Samtök fjármálafyrirtækja
Í viðhengi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja um áformin. Bestu kveðjur, Jóna Björk
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.