Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-32/2022 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 (Mannvirkjaskrá)

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til umsagnar. Fyrirhugaðar breytingar eru nauðsynlegar til að greiða götu nýrrar mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vorið 2021 fór af stað verkefni sem snýst um að byggja upp nýja mannvirkjaskrá hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Verkefnið er hluti af stærra viðfangsefni sem lýtur að því að til verði áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð, tegundir fasteigna, notkunarsvið og stöðuna á húsnæðismarkaði með rekstri nútímalegra gagnagrunna. Þannig er stefnt að því til lengri tíma að öll byggingastig fasteigna verði samviskusamlega færð inn í grunninn sem verður opinn en einnig meiriháttar viðhaldsframkvæmdir á eldri byggingum, svo sem lagnaviðgerðir unnar að fagmönnum, meiriháttar þakviðgerðir o.s.frv. Til stóð að leggja fram frumvarp til að setja lagastoð undir mannvirkjaskrá, setja á fót fagráð og gera aðrar nauðsynlegar breytingar samanber áform nr. 230/2021 hér í samráðsgáttinni. Við nánari greiningu kom í ljós að lagastoðin var til staðar bæði fyrir mannvirkjaskránna og fagráðið. Með þeim frumvarpsdrögum sem hér eru lögð fram til umsagnar er því aðeins lagðar til lágmarksbreytingar á lögum um skráningu og mat fasteigna til að greiða götu mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

S-32/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. feb. 2022 – 18. feb. 2022· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 (Mannvirkjaskrá)

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til umsagnar. Fyrirhugaðar breytingar eru nauðsynlegar til að greiða götu nýrrar mannvirkjarskrár hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-32/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 684)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. apríl 2026)

Við frumvarpsdrögin bárust tvær umsagnir. Frumvarpið tók miklum breytingum eftir umsagnarferlið svo sem sjá má á frumvarpinu sem lagt var fram. Sjá link hér að neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-32/2022: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 (Mannvirkjaskrá) · Alviti