Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-232/2021 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fiskeldi, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana (leyfisveiting til bráðabirgða)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um fiskeldi og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um fiskeldi og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Frumvarpið er unnið í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þann 3. september 2020, mál nr. 170/2020. Með frumvarpinu er komið til móts við sjónarmið eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem fram koma í bráðabirgðarniðurstöðu stofnunarinnar vegna innleiðingar á tilskipun 2011/92/ESB um umhverfismat framkvæmda. Athugasemdirnar varða heimildir laga um fiskeldi og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir til veitingar rekstrarleyfis til bráðabirgða og tímabundinnar undanþága frá starfsleyfi vegna reksturs fiskeldisstöðva. Með breytingunum er heimild til veitingar rekstrarleyfis til bráðabirgða samkvæmt lögum um fiskeldi færð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu til Matvælastofnunar og heimild til veitingar bráðabirgðaheimildar fyrir starfsemi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir færð frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til Umhverfisstofnunar. Í frumvarpinu er sérstaklega mælt fyrir um skilyrði fyrir veitingu heimildar til starfsemi og rekstrarleyfis til bráðabirgða við þær aðstæður að leyfi fyrir starfsemi hafi verið felld brott sökum annmarka á umhverfismati. Í frumvarpinu er m.a. fjallað um aðkomu almennings að leyfisveitingum og kæruheimildir fyrir framangreindri starfsemi. Samhliða er mælt fyrir um tilteknar breytingar á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana til samræmis.

S-232/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. des. 2021 – 5. jan. 2022· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fiskeldi, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana (leyfisveiting til bráðabirgða)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um fiskeldi og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-232/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. janúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 457)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

Samþykkt sem lög nr. 28/2023

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-232/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fiskeldi, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana (leyfisveiting til bráðabirgða) · Alviti