Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-21/2022 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Umhverfis- og auðindaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.

Notendur sem njóta niðurgreiddrar rafhitunar eiga þess kost að sækja um eingreiðslu til Orkustofnunar vegna kaupa á varmadælu. Varmadælur bæta orkunýtingu og geta lækkað bæði rafhitunarkostnað notenda sem og niðurgreiðslukostnað af hálfu ríkisins. Núverandi stuðningskerfi felur í sér eingreiðslu byggða á krónutölu niðurgreiðslna á hverju dreifisvæði sem þýðir að styrkur getur verið mishár eftir svæðum. Kerfið hefur reynst þungt og óskilvirkt í framkvæmd enda felur það í sér hátt flækjustig fyrir notendur og tímafreka umsýslu Orkustofnunar, en áform þessi stefna að því að einfalda niðurgreiðslukerfið og fjölga með því varmadælum, sem hefðu í för með sér ávinning fyrir neytendur, ríki, raforkukerfið og orkuskipti. Áformað er að gera breytingu á 12. gr. laga nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Í ákvæðinu er fjallað um fjárhæð styrkja. Áformað er að umorða 1. mgr. með þeim hætti að styrkir á grundvelli 5. tölul. 11. gr. (þ.e. styrkir til kaupa á varmadælu) miðist við tiltekið hlutfall af kostnaði vegna kaupa á búnaðinum. Áformin eru opin til samráðs til 11. feb. nk.

S-21/2022· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2022 – 11. feb. 2022· 6 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Umhverfis- og auðindaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-21/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 582)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. nóvember 2025)

.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Sveitarfélagið Skagafjörður
    Á 1001. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. febrúar 2022 var eftirfarandi bókað um mál 21/ 2022 til samráðs, Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju sinni með áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, sem hefur það að markmiði að tryggja einfaldara og sanngjarnara kerfi í kringum mótframlag ríkisins vegna kaupa á varmadælum. Ljóst er að hvatar til aukinnar notkunar varmadæla á köldum svæðum sem njóta ekki húshitunar með jarðvarma geta skil… Lesa alla

    Á 1001. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. febrúar 2022 var eftirfarandi bókað um mál 21/ 2022 til samráðs, Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju sinni með áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, sem hefur það að markmiði að tryggja einfaldara og sanngjarnara kerfi í kringum mótframlag ríkisins vegna kaupa á varmadælum. Ljóst er að hvatar til aukinnar notkunar varmadæla á köldum svæðum sem njóta ekki húshitunar með jarðvarma geta skilað umtalsverðum ávinningi til lengri tíma litið fyrir neytendur, ríkið og raforkukerfið í heild sinni. Orkusparnaður í kjölfar aukinnar notkunar varmadæla getur skipt verulegu máli í þeim orkuskiptum sem framundan eru. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Heimir Snær Gylfason
    Ég sem íbúi á svokölluðu köldu svæði og mikill áhugamaður um varmadælur og orkuskipti þykir hér jákvætt skref tekið með þessari tillögu. En vil benda á að mikilvægt er að taka allan vafa af varðandi niðurgreiðslur vegna húshitunar, að við móttöku styrks sé einungis verið að styrkja viðkomandi húseiganda til orkusparnaðar og niðurgreiðslur vegna húshitunar haldist. Einnig tel ég að hlutfall styrkjar verður einnig að vera nokkuð veglegt svo að húseigandi telji sig hafa hag af því að fara í framkvæmdir til orkusparnaðar, hvort sé um að ræða kaup á varmadælu eða auka einangrunargildi húsnæði… Lesa alla

    Ég sem íbúi á svokölluðu köldu svæði og mikill áhugamaður um varmadælur og orkuskipti þykir hér jákvætt skref tekið með þessari tillögu. En vil benda á að mikilvægt er að taka allan vafa af varðandi niðurgreiðslur vegna húshitunar, að við móttöku styrks sé einungis verið að styrkja viðkomandi húseiganda til orkusparnaðar og niðurgreiðslur vegna húshitunar haldist. Einnig tel ég að hlutfall styrkjar verður einnig að vera nokkuð veglegt svo að húseigandi telji sig hafa hag af því að fara í framkvæmdir til orkusparnaðar, hvort sé um að ræða kaup á varmadælu eða auka einangrunargildi húsnæðis. Mæli með að styrkir nái yfir alla þætti til orkusparnaðar. Og til að nefna nokkur dæmi: Aukin einangrun veggja og lofts, kaupa á nýjum og betri gluggum sem og varmadælum.

  • #3Almar Marinósson
    Gæta þarf þess að við breytingu þessa að framsal á niðurgreiðslum við því að þyggja styrk þennan verði afnumið með öllu. Það er engin hvati fólgin í eingreiðslu á tækjakaupum í eitt skipti og afnema niðurgreiðslu um leið. Mun verðmætari aðgerð og hvatameiri er að hafa styrkumsóknir sem leiða að orkusparnaði óháðan niðrgreiðslumm, heldur bundinn fasteign hverri. Með því þarf styrkþegi ekki að velta fyrir sér því hve miklu hann fórnar, heldur aðeins hve mikið hann fær. Ef áætla á upphæðir eða hlutfall til styktar þarf að hafa margt í huga. Eitt af því er hlutfall það sem fer af rafmagni til h… Lesa alla

    Gæta þarf þess að við breytingu þessa að framsal á niðurgreiðslum við því að þyggja styrk þennan verði afnumið með öllu. Það er engin hvati fólgin í eingreiðslu á tækjakaupum í eitt skipti og afnema niðurgreiðslu um leið. Mun verðmætari aðgerð og hvatameiri er að hafa styrkumsóknir sem leiða að orkusparnaði óháðan niðrgreiðslumm, heldur bundinn fasteign hverri. Með því þarf styrkþegi ekki að velta fyrir sér því hve miklu hann fórnar, heldur aðeins hve mikið hann fær. Ef áætla á upphæðir eða hlutfall til styktar þarf að hafa margt í huga. Eitt af því er hlutfall það sem fer af rafmagni til húshitunnar. Á heimili undirritaðs voru 46.039 kW/h notaðar á 13 síðustu mánuðum (1. jan 21 til 8. feb 22). Þar af voru 43.772 kW/h til húshitunar, eða um 95% af allri orku keyptri. Eitt er að veita styrk til tækjakaupa en þó er ekki allur raunkostaður kominn við það. Varmaskiptar eru flestir nokkuð erfiðir í uppsetningu og krefjast sérþekkingar á því sviði. Ekki er víst að slík þekking sé í grend við styrkþega og því má spyrja sig hvort upphæðir eða hlutfall í kostnaði eigi eiga við verð með eða án uppsetningar. Með uppsetningu er vafrmaskiptirinn tilbúinn en ekki fyrr. Auðvelt er að valda bilunum eða eyðileggingu á slíkum búnaði með óviðeigandi uppsetningu. Við breytingar sem þessar má hafa í huga langtíma áhrif breytingana. Með betri nýtingu rafmagns á köldum svæðium og útvíkkun niðurgreiðlsu til fyrirtækja og samtaka má styrkja aðstöðu orkufrekari iðnaðar og afhenda þá orku sem sparast til nýrra kaupenda í iðnaði sem ekki hefur verið staðsettur á köldum svæðum, kuldans vegna. Hið ágætasta mál er að breyta þessu lagaákvæði í anda þess sem segir til um. Slíkir styrkir eða niðrgreiðsla á búnaði þarf að taka mið af ofantöldu. Annars er fórnað stórum tækifærum til sóknar í sjálfbærni og jafnvægi í orkumálum þjóðar.

  • #4Ívar Dan Arnarson
    Ívar heiti ég og er mikill áhugamaður um varmanýtingu og varmadælur. sjálfur á ég hús og er með varmadælu til húshitunar, en varmadælur er búnaður sem er ekki eilífur og þarf styrkjakerfið sem styrkir húseigendur til kaupa á varmadælum að taka mið af því. mér finndist eðlilegt að eftir 12 - 15 ár myndi húseigandi vera kominn með endurnýjaðan rétt á styrk til endurnýjunar á fyrri varmadælu svo að orkuskiptin haldi áfram og verði varanleg! einnig er mjög mikilvægt að húseigendur á köldum svæðum haldi áfram sínum niðurgreiðslum á fluttningskostnaði rafmagns til húshitunar þó svo að þeir nýti… Lesa alla

    Ívar heiti ég og er mikill áhugamaður um varmanýtingu og varmadælur. sjálfur á ég hús og er með varmadælu til húshitunar, en varmadælur er búnaður sem er ekki eilífur og þarf styrkjakerfið sem styrkir húseigendur til kaupa á varmadælum að taka mið af því. mér finndist eðlilegt að eftir 12 - 15 ár myndi húseigandi vera kominn með endurnýjaðan rétt á styrk til endurnýjunar á fyrri varmadælu svo að orkuskiptin haldi áfram og verði varanleg! einnig er mjög mikilvægt að húseigendur á köldum svæðum haldi áfram sínum niðurgreiðslum á fluttningskostnaði rafmagns til húshitunar þó svo að þeir nýti sér styrk til kaupa á varmadælu. núverandi kerfi er náttúrlega ekkert styrktar kerfi heldur er þetta fyrirframgreiddur afsláttur! einnig er það gífurlega mikilvægt svo að raunverulegur orkusparnaður eigi sér stað að styrkirnir séu veglegir og taki mið af kostnaði við gæðabúnað sem myndi skila sér meiri orkusparnaði.

  • #5Erlingur Hjörvar Guðjónsson
    Erlingur Guðjónsson heiti ég og starfa hjá RARIK Austurlandi og þessi málaflokkur snertir mig töluvert, bæði í mínu starfi en ekki síður vegna búsetu. Ég bý rétt utan þéttbylis þar sem er hitaveita sem talin er vera ágætlega hagstæð hitaveita þegar kemur að húshitun. Það er sorglega stutt frá okkur í þá hitaveitu sem myndi spara okkur gríðarlegan kostnað við húshitun ef við værum á þeirri veitu samanborið við það að kynda með rafmagni eins og nú er. Ég er þeirrar skoðunar að mörgu sé að huga hér, Varmadælur og að styrkja fólk með greiðsluþáttöku í formi styrks til að draga úr kostnaði noten… Lesa alla

    Erlingur Guðjónsson heiti ég og starfa hjá RARIK Austurlandi og þessi málaflokkur snertir mig töluvert, bæði í mínu starfi en ekki síður vegna búsetu. Ég bý rétt utan þéttbylis þar sem er hitaveita sem talin er vera ágætlega hagstæð hitaveita þegar kemur að húshitun. Það er sorglega stutt frá okkur í þá hitaveitu sem myndi spara okkur gríðarlegan kostnað við húshitun ef við værum á þeirri veitu samanborið við það að kynda með rafmagni eins og nú er. Ég er þeirrar skoðunar að mörgu sé að huga hér, Varmadælur og að styrkja fólk með greiðsluþáttöku í formi styrks til að draga úr kostnaði notenda við að koma sér upp hagkvæmari hitunartæki er gott og vel. En í stóra menginu er þetta svolítið tvíeggja sverð, við flytjum inn meira að keyptum búnaði til að láta fólk spara raforkunotkun, hjálpa þeim til sparnaðar með slíku er í megindráttum gott og vel meinandi concept svo ég sletti. En eins og bent hefur verið á þá eru varmadælur ekki eilífartæki og þessi tæki þarfnast bæði viðhalds og endurnýjunar eftir ákveðin ára fjölda og misjafnlega langan tíma. Uppsettning og viðhald þessara tækja er á höndum sérfróðra aðila sem hafa sérhæft sig í þessum búnaði og þessir aðilar hafa ekki allir búsetu næst þeim svæðum sem mesta þörfin fyrir þennan búnað er, þannig að þjónusta við þessi tæki mun reynast notendum sem fara í slíkar lausnir mjög dýr sökum fárra aðila sem munu hafa sérfræðiþekkingu á þessu og því ljóst að styrkurinn eða eingreiðslan mun á endanum éta börnin sín hjá þeim sem hann þyggja þegar í slíkan búnað verður farið. Ég held að almennt sé ekki óskynsamlegt að notast við orkusparandi búnað eftir fremsta megni, en ég sé ekki annað en að búnaður til slíks þurfi að reynast fólki bæði endingargóður og hagkvæmur til lengri tíma litið en styttri ef þetta á að vera talið vænlegt fyrir orkuskiptin og til orkunýtingar. Ég þykist vita að lögin eru ekki að taka afstöðu til hvaða varmadæla fólk fer í. Heldur hvað á styrkurinn að vera hár og hvernig á þetta að vera? Styrkur sem eingreiðsla, greiðsluþáttaka í kostnaði hjá notendum etc ? Ég er ekki með upphæðina í huga mér, en er klárlega þeirrar skoðunar að ef þú sækir um styrk, þá er hann til að styrkja kostnaðaðarsamar breytingar sem þú ert að ráðast í og ætti svo ekki að hegna þér í beinu framhaldi með því að taka af þér niðurgreiðslur. Af hverju getum við fengið bensín á sama verði milli landshluta, en við getum ekki fengið rafmagn á sama verði um land allt? Hvað varðar umsóknarferli og annað slíkt ætti auðvitað að einfalda það ferli eftir fremsta megni og kynna það vel fyrir fólki opinberlega með góðum kynningum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-21/2022: Áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar · Alviti