Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 153. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 153. þings
Af málum sem komu fram voru 24 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 65 seinna en áætlað var.
Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga
Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.
- 158. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur · yfirstandandi1 % samþykkt · 1 af 1501 samþykkt32 í vinnslu117 ekki komið fram
- 157. þing · Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur62 % samþykkt · 91 af 14791 samþykkt24 dagaði uppi eða fellt32 kom aldrei fram
- 154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur44 % samþykkt · 88 af 20088 samþykkt19 dagaði uppi eða fellt93 kom aldrei fram
- 153. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur43 % samþykkt · 64 af 14964 samþykkt25 dagaði uppi eða fellt60 kom aldrei fram
| Þing | Dagsetning | Lögð fram | Samþykkt |
|---|---|---|---|
| 158. þing | 27. okt. 2026 | 33 af 150 | 1 |
| 157. þing | 28. okt. 2025 | 45 af 147 | 7 |
| 154. þing | 31. okt. 2023 | 26 af 200 | 0 |
| 153. þing | 1. nóv. 2022 | 23 af 149 | 0 |
155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Forsætisráðherra
4 af 5 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Ríkislögmann
Áætlað: mars942. mál· Dagaði uppi· lagt fram 30. mar. 2023Í Samráðsgátt:S-23/2023 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-45/2023 (drög að frumvarpi til laga, 0 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum um ríkislögmann, nr. 51/1985.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um ríkislögmann.
Dómsmálaráðherra
12 af 20 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: september· Endurflutt153. mál· Dagaði uppi· lagt fram 20. sep. 2022Í Samráðsgátt:S-9/2022 (drög að frumvarpi til laga, 130 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lögð til breyting á 5. mgr. 40. gr. laganna um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, þess efnis að reikningshald Kirkjugarðasjóðs verði fært f rá skrifstofu biskups til kirkjugarðaráðs, sem bera mun ábyrgð á reikningshaldi sjóðsins og því hvernig haldið er utan um fé hans, eftir atvikum með því að semja við einhvern um að annast fjárreiður sjóðsins með fullnægjandi hætti. Jafnframt verði felld brott tvö ákvæði er snúa að Bálfarar félagi Íslands sem hefur verið lagt niður og ekki starfað í um 60 ár.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (reikningshald Kirkjugarðasjóðs o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: október535. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-57/2022 (drög að frumvarpi til laga, 4 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er ætlunin að skýra heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar afbrot eða athafnir sem raskað geta öryggi borgaranna og ríkisins, afbrot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi og afbrot sem framin eru á netinu. Jafnframt er í frumvarpinu kveðið á um meðferð vopna hjá lögreglu, en ákvæði þess efnis hefur fram til þessa aðeins verið að finna í reglugerð á grundvelli vopnalaga.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (aðgerðir til að koma í veg fyrir brot).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: nóvember893. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. mar. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-143/2022 (áform um lagasetningu, 2 umsagnir)S-29/2023 (drög að frumvarpi til laga, 6 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Samkvæmt lögum um dómstóla eru héraðsdómstólarnir átta sjálfstæðar stofnanir með aðsetur víða um land. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem sameina þessar stofnanir í einn héraðsdómstól en með starfss töðvar á þeim stöðum þar sem héraðsdómstólarnir eru nú. Með sameiningu héraðsdómstólanna aukast möguleikar á að jafna starfsálag milli héraðsdómstóla og færa verkefni til dómstóla á landsbyggðinni. Af þessu leiðir að nauðsynlegt er að gera ýmsar breytingar á réttarfarslögum, sérstaklega lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála (sameining héraðsdómstólanna).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: nóvember· EES-innleiðing946. mál· Dagaði uppi· lagt fram 30. mar. 2023· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að breyta reglum um innflutning á skotvopnum með það að markmiði að herða reglur um skotvopn og veitingu undanþága frá banni við innflutningi sjálfvirkra og hálfsjálfvirkra skotvopna. Jafnframt er ætlunin að breyta lögunum vegna innleiðingar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/555 frá 21. mars 2021 um eftirlit með öflun og eign vopna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á vopnalögum, nr. 16/1998 (öflun og varsla skotvopna).
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
2 af 5 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÞingsályktunartillaga
Stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekking arsamfélags á Íslandi
Áætlað: nóvember982. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-50/2023 (drög að stefnu, 45 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Tillagan byggir á sýn nýs háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis um að lykillinn að bættum lífsgæðum og fleiri tækifærum sé að hugvit verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Hugvitið, sem er okkar dýrmætasta en um leið vannýttasta auðlind, verði að virkja betur og þannig megi koma í veg fyrir of miklar sveiflur í hagkerfinu og einsleitni starfa. Draga eigi úr því að þekking flæði frá Íslandi og út í heim og jafnframt stuðla að því að þeir sem leiti til landsins séu í auknum mæli sérfræðingar sem skapi ný og spennandi störf. Með aðgerðum sem kynntar eru í tillögunni er ætlunin að leysa úr læðingi þá krafta sem myndast við sameiningu málaflokkanna og þær nýju hugmyndir sem verða til í suðupotti háskóla, vísinda, rannsókna, hugverka, iðnaðar, fjarskipta, upplýsingasamfélags og nýsköpunar.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekking arsamfélags á Íslandi.
Heilbrigðisráðherra
6 af 9 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Sóttvarnalaga
Áætlað: september· Endurflutt529. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-226/2021 (áform um lagasetningu, 75 umsagnir)S-26/2022 (drög að frumvarpi til laga, 25 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögunum í kjölfar heildarendurskoðunar á lögunum sem ráðist var í veturinn 2021-2022 með hliðsjón af fenginni reynslu eftir heimsfaraldur SARS - CoV-2- veirunnar. Breytingar frá gildandi lögum varða einkum stjórnsýslu sóttvarna, feril ákvarðana um opinberar sóttvarnaráðstafanir og aukna aðkomu Alþingis að þeim.
Heiti á skránni: Frumvarp til sóttvarnalaga.
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 (innihaldsefni, rekjanleiki, umbúðir tóbaksvara o.fl.)
Áætlað: október· EES-innleiðing530. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-225/2021 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)S-109/2022 (áform um lagasetningu, 2 umsagnir)S-176/2022 (drög að frumvarpi til laga, 6 umsagnir)Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að gerð verði breyting á lögunum til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að innleiddar verði reglur tilskipunarinnar um umbúðir tóbaksvara, rekjanleika og skráningu þeirra og tilkynningar um nýjar vörur. Jafnframt verður lagt til að innleiddar verði reglur um jurtavörur til reykinga og takmarkanir á einkennandi bragði og tilteknum aukaefnum í tóbaksvörum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 (innihaldsefni, rekjanleiki, umbúðir tóbaksvara o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: desember986. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-133/2022 (áform um lagasetningu, 19 umsagnir)S-40/2023 (drög að frumvarpi til laga, 16 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að festa í lög um heilbrigðisþjónustu ákvæði um hlutlæga refsiábyrgð heilbrigðisstofnana til að tryggja betur öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna. Þannig væri hægt að sækja til saka stofnunina (lögaðilann) þegar margir samverkandi þættir eða röð atvika eru orsök alvarlegs atviks. Einnig er lagt til að gerðar verði breytingar á reglum um rannsókn óvæntra atvika þannig að hún fari fyrst og fremst fram hjá embætti landlæknis en ekki samtímis hjá því embætti og lögreglu. Embætti landlæknis geti hins vegar kært mál til lögreglu þegar grunur er um stórkostlegt gáleysi eða ásetning.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheilsu (refsiábyrgð heilbrigðisstofnan aog rannsókn óvæntra atvika).
Innviðaráðherra
13 af 19 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: september· EES-innleiðing531. mál· Dagaði uppi· lagt fram 2. des. 2022· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er í fyrsta lagi áformað að setja lagastoð fyrir innleiðingu framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1263 frá 20. september 2018 um eyðublöð fyrir framlagningu upplýsinga frá veitendum bögglaútburðarþjónustu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/644. Í öðru lagi er áformað að breyta 1. málsl.5. mgr. 27. gr. laga um póstþjónustu, nr. 98/2019, í því skyni að greiða fyrir aukinni notkun bréfakassasamstæða. Þá er í þriðja lagi áformað að lagfæra mistök sem urðu við frumvarpsgerð þegar málaflokkurinn var fluttur til Byggðastofnunar en þá láðist að afmá orðið „Póst- og fjarskiptastofnun“ út úr lögunum að fullu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019 (úrbætur á póstmarkaði).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: október· EES-innleiðing589. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. des. 2022· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-123/2022 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-172/2022 (drög að frumvarpi til laga, 33 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að tryggja lagastoð til innleiðingar tiltekinna EES- gerða sem varða markaðseftirlit og öryggi ökutækja og jafnframt greiða fyrir fullgildingu Íslands á tveimur alþjóðlegum samningum um gerð og búnað ökutækja, gagnkvæma viðurkenningu o.fl.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (EES-reglur, ökutæki o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: október1052. mál· Dagaði uppi· lagt fram 8. maí 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-202/2022 (drög að frumvarpi til laga, 10 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að tryggja framboð hagkvæms húsnæðis með því að lögfesta heimild sveitarfélaga til að skilyrða notkun lands til uppbyggingar hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði, óháð eignarhaldi lóða. Breytingin er í samræmi við aðgerðaáætlun rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023 – 2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum sem var undirrituð 12. júlí 2022.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum, nr. 123/2012 (framboð hagkvæms húsnæðis).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: febrúar975. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-228/2021 (áform um lagasetningu, 1 umsögn)S-55/2022 (drög að frumvarpi til laga, 0 umsagnir)S-52/2023 (drög að frumvarpi til laga, 1 umsögn)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér endurskoðun ákvæða um stjórnun og hlutverk vaktstöðvar siglinga. Þá er kveðið á um heimild til að gera þjónustusamninga um einstaka þætti rekstursins og um tilkynningarskyldu farþegaskipa sem sigla milli hafna hér á landi.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003 (skipulag, gjaldtaka o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÞingsályktunartillaga
Stefnumótun ríkisins í málefnum sveitarfélaga
Áætlað: janúar1109. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. maí 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Í sveitarstjórnarlögum er kveðið á um að ráðherra sveitarstjórnarmála skuli að minnsta kosti á þriggja ára fresti leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára í senn. Í áætluninni skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára á þessu sviði. Hinn 29. janúar 2020 var gildandi áætlunsamþykkt fyrir árin 2019- 2033 og aðgerðaáætlun fyrir 2019- 2023.
Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótun ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Matvælaráðherra
10 af 12 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: febrúar861. mál· Dagaði uppi· lagt fram 21. mar. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-199/2022 (drög að frumvarpi til laga, 6 umsagnir)S-212/2022 (áform um lagasetningu, 37 umsagnir)S-22/2023 (drög að frumvarpi til laga, 131 umsögn)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði að nýju upp svæðis- og kvótaskipting strandveiða sem miði við fjögur svæði með hliðsjón af veiðanleika botnfisks á hverju svæði um sig.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (svæðaskipting strandveiða).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: febrúar976. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-4/2022 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-17/2022 (drög að frumvarpi til laga, 0 umsagnir)S-239/2022 (áform um lagasetningu, 0 umsagnir)S-3/2023 (áform um lagasetningu, 29 umsagnir)S-67/2023 (drög að frumvarpi til laga, 44 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lögð til markvissari veiðistjórnun á grásleppu. Horft er til þeirra sjónarmiða sem komið hafa fram um veiðistjórn grásleppu undanfarin ár, þ.m.t. um skiptingu milli svæða og aðgerðir sem sporni gegn samþjöppun.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (veiðistjórn grásleppu).
Menningar- og viðskiptaráðherra
10 af 21 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: nóvember· EES-innleiðing981. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í samræmi við ábendingar og athugasemdir haghafa og innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/56/ESB um breytingu á tilskipun 2006/43/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og lögum um ársreikninga (upplýsingar um hluthafa, siðareglur endurskoðenda, endurskoðunarnefndir, innleiðing, o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: nóvember980. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpinu er ætlað að skapa traustari grundvöll fyrir þinglýsingu rafrænna skjala og þannig styðja við framgang rafrænna þinglýsinga almennt. Frumvarpið er samið í starfshópi með fulltrúum menningar- og viðskiptaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, og fleiri lögum (rafrænar þinglýsingar, skuldaviðurkenningar o.fl.).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: janúar· EES-innleiðing979. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á tilskipun 2010/13/ESB um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hljóð- og myndmiðlunarþjónusta).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: mars899. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2023
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laganna þar sem einkum verður horft til þess að samræma framkvæmd þeirra við framkvæmd á öðrum Norðurlöndum.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum,nr. 62/2006 (heildarendurskoðun).
Mennta- og barnamálaráðherra
3 af 7 komin fram
- Dagaði uppi eða felltFrumvarp
Menntarannsóknasjóð
Áætlað: desember956. mál· Dagaði uppi· lagt fram 31. mar. 2023· seinna en áætlaðHvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér lögfestingu á Menntarannsóknasjóði sem er nýr rannsóknasjóður sem er ætlað að styðja með markvissum hætti við skólaþróun og umbætur í menntamálum á öllum skólastigum. Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um stofnun sjóðsins, hlutverk hans og tilgang. Þar verður einnig fjallað um skilyrði úthlutana úr sjóðnum og fleiri atriði.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Menntarannsóknasjóð.
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: desember922. mál· Dagaði uppi· lagt fram 30. mar. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-33/2022 (drög að frumvarpi til laga, 1 umsögn)S-44/2023 (drög að frumvarpi til laga, 7 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að samræma löggjöf við ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.).
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
8 af 17 komin fram
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: október· EES-innleiðing889. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. mar. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-149/2022 (áform um lagasetningu, 2 umsagnir)S-35/2023 (drög að frumvarpi til laga, 6 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VI. kafla A laganna sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu sem eru nauðsynlegar til að samræma orðalag laganna við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2009/31/EB frá 23. apríl 2009 um geymslu koltvísýrings í jörðu ogum breytingu á tilskipun ráðsins 85/337/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB, 2001/80/EB, 2004/35/EB, 2006/12/EB, 2008/1/EB og reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og til að tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunarinnar.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: desember943. mál· Dagaði uppi· lagt fram 30. mar. 2023· seinna en áætlað
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði á fót kerfi sem felur í sér að sölufyrirtæki raforku sjái um að koma á samningum við notendur um raforkukaup. T il skoðunar er að setja notendur í þrautavaraviðskipti þegar nauðsynlegt er vegna tæknilegra eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Heiti á skránni: Frumvarptil laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (samningar um raforkukaup).
- Dagaði uppi eða felltÁætlað: mars983. mál· Dagaði uppi· lagt fram 3. apr. 2023· seinna en áætlaðÍ Samráðsgátt:S-250/2022 (áform um lagasetningu, 9 umsagnir)S-17/2023 (áform um lagasetningu, 3 umsagnir)S-46/2023 (drög að frumvarpi til laga, 4 umsagnir)
Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til að útfæra nánar ákvæði raforkulaga og laga um Orkustofnun í ljósi athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA og krafna tilskipunar 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku og um niðurfellingu tilskipunar 2003/54/EB gagnvart sjálfstæðu raforkueftirliti.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (sjálfstæði raforkueftirlits).
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
- Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)